Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 14
14 8. mars 2019FRÉTTIR
H
ugsunin á bak við
sameigin lega forsjá er sú
að báðir foreldrar beri
sömu skyldur gagnvart
barninu. Þrátt fyrir það þá verður
lögheimilislausa foreldrið ósýni
legt í kerfinu,“ segir Eva Björk
Sveinsdóttir verkefnastjóri en hún
telur löngu tímabært að heim
ila tvöfalda lögheimilisskráningu,
þar sem báðir foreldrar eru skráð
ir sem forsjáraðilar. Eva Björk á tvo
syni, 16 og 13 ára, með fyrrverandi
eiginmanni sínum en þegar hjón
in skildu árið 2008 var þeim ráð
lagt að hafa sameiginlega forsjá
yfir drengjunum. Í kjölfarið var sá
eldri skráður með lögheimili hjá
Evu og sá yngri hjá föður sínum.
Eva Björk segist hafa rekið sig á
það æ oftar undanfarin ár að sam
eiginleg forsjá hefur í raun ekkert
gildi hjá hinu opinbera.
„Okkur var tjáð af fulltrúa sýslu
manns á sínum tíma að sameigin
leg forsjá væri normið í dag, það
er að segja ef annað foreldrið er
ekki vanhæft. Við gerðum ráð fyrir
að við myndum hafa sameiginleg
réttindi varðandi allt,“ segir Eva
Björk í samtali við blaðamann.
Á þessum tíma, árið 2008, voru
rafrænar skráningar ekki eins al
gengar og í dag, líkt og Eva bendir á.
„Í dag er allt orðið meira og
minna rafrænt, eins og að bóka
læknatíma, sækja um sjúkrakort,
sækja um skólamáltíðir, unglinga
vinnu og svo framvegis, en þannig
var það ekki þegar við skildum.
Allar þessar stofnanir eru með
tengingu við Þjóðskrá og sækja
sínar upplýsingar þaðan. Þess
vegna erum við alltaf að reka okk
ur á vegg af því að í Þjóðskrá er
einungis pabbi stráksins skráður
sem foreldri hans.
Eva Björk nefnir sem dæmi að
þar sem hún er „umgengnisfor
eldri“ samkvæmt kerfinu þá geti
hún ekki stofnað bankareikning
fyrir yngri soninn, eða skráð hann
í tómstundir eða í mötuneytis
áskrift í skólanum. Þá getur hún
ekki skoðað sjúkrasögu sonar síns
á netinu þar sem einungis lög
heimilisforeldrið hefur aðgang að
slíkum upplýsingum.
„Eitt fáránlegasta dæmið kom
upp núna um daginn þegar við
fengum sent bréf frá Sjúkra
tryggingum Íslands þar sem fram
komu upplýsingar um heilsu
sonar míns. Bréfið var stílað á
manninn minn, stjúpföður sonar
míns, en ekki mig,“ segir Eva jafn
framt en þegar hún leitaði til
Sjúkratrygginga fékk hún þau svör
að samkvæmt reglum ætti að stíla
bréf á elstu kennitölu heimilisins.
„Maður spyr sig hreinlega hvort
þetta stangist ekki á við persónu
verndarlög, að senda sjúkraupp
lýsingar á aðila sem er ekki skyld
ur viðkomandi.“
Fær ekki að tryggja soninn
Eva Björk og núverandi eiginmað
ur hennar eiga samtals sex börn og
eru tvö þeirra, eldri sonur Evu og
stjúpdóttir hennar, skráð með lög
heimili hjá þeim. Hin fjögur búa
hjá þeim aðra hverja viku. Sam
kvæmt skilmálum tryggingafé
lagsins eru aðeins þeir sem búa á
lögheimilinu skráðir undir heimil
istrygginguna. „Til dæmis, ef son
ur minn brýtur sjónvarpið heima
hjá okkur þá þýðir það að ég þarf
að leita í tryggingar fyrrverandi
mannsins míns. Samt hef ég ekk
ert að segja um það hvernig hann
er tryggður hjá pabba sínum.
Mér finnst það mjög undar
legt að ég geti gert allt fyrir yngri
son minn, og stjúpdóttur mína, en
ekkert fyrir eldri son minn, sem ég
sá um að koma í heiminn og ala
upp jafnt á við pabba hans,“ segir
Eva jafnframt. „Það er ömurlegt að
þurfa stöðugt að segja við eldri son
minn : „Nei, ég get ekki gert þetta,
þú verður að spyrja pabba þinn.“
Eva tekur fram að vissulega
skilji hún ástæður þess að það sé
ríkinu í hag að hafa lögheimilis
skráningu á einum stað. Þá sé
skiljanlegt að tryggingafélög vilji
koma í veg fyrir möguleg bótasvik
með því að tryggja einungis þá
sem skráðir eru á lögheimili. Það
hljóti þó að vera hægt að koma í
veg fyrir slíkt með öðrum hætti.
„Ég skil ekki af hverju það er
ekki búið að uppfæra kerfið hjá
Þjóðskrá fyrir löngu, þannig að
börn séu skráð hjá báðum foreldr
um, en ekki bara lögheimilisfor
eldrinu. Það er sjálfsagt að báðir
foreldrar séu skráðir forsjáraðilar.
Það sjá það allir að þetta kerfi er
fyrir löngu orðið úrelt, enda er
það sniðið í kringum þessa hefð
bundnu vísitölufjölskyldu. Það er
mjög sárt og leiðinlegt að geta ekki
sinnt sínu eigin barni vegna þess
að samkvæmt kerfinu er ég ekki
foreldri þess.“
„Löggjafinn á ekki að gefa öðru
foreldrinu ríkari rétt“
Umræðan um tvöfalda lögheimil
isskráningu og ójafna réttarstöðu
foreldra í forsjármálum hefur far
ið hátt undanfarin misseri. Í sept
ember síðastliðnum lögðu þing
menn Viðreisnar fram frumvarp
til laga sem heimila skráningu
lögheimilis barna hjá báðum for
sjárforeldrum. Fram kom í greina
gerð að þegar foreldrar hafi tekið
ákvörðun um að fara sameiginlega
með forsjá barns í kjölfar skilnaðar
eða sambúðarslita, en hvort á sínu
heimilinu, þá eigi löggjafinn ekki
að gefa öðru foreldrinu ríkari rétt
en hinu til ákvarðanatöku um hagi
barnsins.
Samband íslenskra sveitarfé
laga studdi ekki hins vegar frum
varpið en í umsögn sambandsins,
sem skilað var inn í október síð
astliðnum, segir meðal annars að
tvöföld lögheimilisskráning barna
„geti haft veruleg áhrif á þjónustu
og útgjöld sveitarfélaga, ekki síst í
skólamálum.“
Um þessar mundir liggja fyrir
drög í samráðsgátt Stjórnarráðsins
að frumvarpi til breytinga á barna
lögum auk breytinga á ýmsum
lögum sem varða skipta búsetu
og meðlag. Fram kemur í greinar
gerð að markmiðið sé að stuðla að
sátt og jafnari stöðu þeirra foreldra
sem fara sameiginlega með forsjá
barns og ákveða að ala það upp
saman á tveimur heimilum:
„Þetta nýja fyrirkomulag gerir
ráð fyrir að foreldrar geti alfarið
unnið saman í öllum málum er
varða barnið. Samningur um
skipta búsetu barns gerir því ríkar
kröfur til foreldra um samstarf,
virðingu, tillitssemi og sveigjan-
leika. Í frumvarpinu er ekki gert
ráð fyrir að búseta barns verði að
vera nákvæmlega jöfn á báðum
heimilum. Almennt skal gera ráð
fyrir því að barn búi álíka jafnt til
skiptis hjá foreldrum, en að öðru
leyti er það í höndum foreldra að
finna það fyrirkomulag sem hent-
ar best þörfum barnsins.
Foreldrar skulu komast að
samkomulagi um hjá hvoru þeirra
barn eigi lögheimili og hjá hvoru
þeirra barn eigi búsetuheimili. Í
frumvarpinu er gert ráð fyrir að
samningur um skipta búsetu sé
háður staðfestingu sýslumanns.
Með hliðsjón af ríkum kröfum um
samstarf foreldra og sameiginlega
ákvarðanatöku er ekki gert ráð
fyrir að dómstóll geti dæmt skipta
búsetu barns þegar foreldra grein-
ir á.“ n
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Er ekki móðir sonar síns samkvæmt kerfinu:
„Það er mjög sárt og leiðinlegt að
geta ekki sinnt sínu eigin barni“
Segir að sameiginleg forsjá hafi ekkert gildi hjá hinu opinbera„Þess vegna erum við
alltaf að reka okkur
á vegg af því að í þjóðskrá
er einungis pabbi stráksins
skráður sem foreldri hans
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Eva Björk