Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 21
KYNNING
Nýtt umboð fyrir nýja
tegund þenslutengja
MD Vélar ehf. sérhæfir sig í þenslutengjum fyrir flestar aðstæður og með nýjum
samningi við fyrirtækið Metraflex í
Chicago aukum við enn við úrvalið
og þjónustuna. Við erum mjög
ánægð með að hafa gengið frá
þessum samningi sem felur í sér að
MD Vélar ehf. er nú söluaðili fyrir
Metraflex í Norður-Evrópu.
„Í þessum mánuði fer ég á
sýningu í Madríd þar sem ég hitti
starfsmenn Metraflex og það verður
mjög spennandi að kynnast fyrir-
tækinu og vörunum betur,“ segir
Laila Björk Hjaltadóttir, fjármála- og
viðskiptastjóri MD Véla ehf.
Einstök þenslutengi
Metraflex framleiðir einstök
þenslutengi, kölluð FireLoop og
FireVoop, sem eru sérhönnuð fyrir
vatnsúðakerfi. Metraflex er afar
framarlega í nýsköpun og falla þessi
tengi sannarlega undir það. Tengin
þola einstaklega mikla hreyfingu og
geta hreyfst í allar áttir sem veitir
mjög góða vörn fyrir kerfin. Tengin
eru bæði UL skráð og FM samþykkt.
Metraflex er í fremstu röð þegar
kemur að þenslutengjum fyr-
ir vatnsúðakerfi. „Það sem er svo
einstakt við þessi tengi er hversu
mikla hreyfingu þau taka, hve
auðveld þau eru í uppsetningu og
hvað það fer lítið fyrir þeim. Hægt
er að koma þeim auðveldlega fyrir
þótt plássið sé lítið.“ Þessi tengi eru
ætluð til uppsetningar alls staðar
þar sem ætla má að verði einhver
hreyfing á lögnum, t.d. af sökum
vatnsþrýstings, jarðskjálfta eða
annars. Hægt er að setja tengin upp
hvort heldur er lárétt eða lóðrétt
og 180° sveigjan krefst eingöngu
einnar upphengju sem gerir tenginu
kleift að hreyfast án hafta. Þó er ekki
nauðsynlegt að hafa upphengju fyrir
minnstu tengin.
Tengin fást með mismunandi
fittings með hreyfingu -/+ 4“, 8“, 16“
og 24“ í stærðum frá DN 25 – DN
300 og þrýsting frá 12 – 20 bör.
Á heimasíðu Metraflex, metraflex.
com er hægt að nálgast margs
konar upplýsingar eins og um
stærðir, fittings, leiðbeiningar fyrir
uppsetningu og 3D teikningar.
Einnig er hægt að fræðast þar um
metrafire.
Á heimasíðu MD Véla, mdvelar.is
er einnig hægt að finna bæklinga og
fleiri upplýsingar meðal annars um
þenslutengin.
Fyrir nánari upplýsingar hafið
samband við Laila Björk Hjalta-
dóttur.
Sími: 692-8280
Vefpóstur: laila@mdvelar.is
VATNSÚÐAKERFI MD VÉLAR: