Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 22
22 FÓKUS - VIÐTAL 8. mars 2019
V
ið hittum Björgvin Franz
Gíslason fyrir í Borgar-
leikhúsinu. Stutt er í frum-
sýningu á söngleiknum
Matthildi sem margir bíða með
eftirvæntingu. Björgvin verður þar
í stóru hlutverki, samhliða því að
leika í Elly sem er nú komin yfir
200 sýningar.
Munt þú eitthvað hitta fjöl-
skylduna á næstunni?
„Ég tek kannski á móti börn-
unum þegar þau koma úr skól-
anum en fyrir utan það verð ég í
vinnunni,“ segir Björgvin kíminn.
Það er létt yfir honum en jafnframt
augljós spenna fyrir að fara að
sýna annað stórt verk. Við settu-
mst niður og ræddum saman um
leiklistina, æskuna með ADHD,
áfengisvandamálið á yngri árum
og skammvinnt samstarf með
Clint Eastwood.
Flókin æska
Björgvin Franz hefur aldrei form-
lega verið greindur með ADHD.
En fagfólk sem þekkir til hefur sagt
honum að enginn vafi leiki á að
hann sé haldinn því, líkt og fað-
ir hans og dóttir. Þetta kom fram
hjá Björgvini strax á leikskólaaldri
en þá var hugtakið ekki þekkt hér
á landi.
„Leikskólakennararnir, ætt-
ingjar og vinir voru allir að reyna
að komast að því hvað væri að
mér,“ segir Björgvin og skellir upp
úr. „Lífið gat verið flókið en ég
fékk mikinn stuðning frá foreldr-
um mínum. Stór hluti af þessu er
þráhyggja. Ég fékk til dæmis þrá-
hyggju fyrir Rocky Horror um
tíma. Á meðan aðrir strákar voru
úti í fótbolta var ég að klæða mig
í kjóla og korselett. Ég var alltaf að
fara í eitthvert gervi. Leikskóla-
kennararnir mínir mæltu eitt sinn
með því að ég yrði sendur til sál-
fræðings. Þá var ég alltaf úti í
horni, setti á mig húfu, sagði ein-
hverja setningu og hnerraði svo
húfunni af mér. Aftur og aftur og
aftur. Kennararnir héldu að það
væri eitthvað meiriháttar að, en
þá var ég með þráhyggju fyrir að
leika atriði með mömmu úr ára-
mótaskaupinu frá 1981. Þar sem
hún hnerraði af sér hárkollu. Sál-
fræðingurinn vissi heldur ekki
hvað var að og greindi mig með
óbilandi áhuga á leiklist,“ segir
Björgvin og skellihlær. „Ég var
líka með Tourette, eins og pabbi,
endalausa kippi og búkhljóð. En
ég óx upp úr því.“
Varstu erfiður krakki?
„Ég held það þó að mamma vilji
ekki heyra á það minnst. Ég hitt eitt
sinn konu á djamminu sem hafði
unnið í sumarbúðum í Vatnaskógi
þar sem ég var. Hún sagði: „Björg-
vin, þú varst svo leiðinlegt barn!“
Því ég hékk utan í starfsfólkinu
og gat ekkert leikið mér með hin-
um börnunum fyrir allri minni
þráhyggju. Frændfólk mitt hefur
einnig sagt mér að ég hafi verið al-
gjörlega óalandi og óferjandi, uppi
um allt og úti um allt.“
Björgvin segist vera einn af
þeim heppnu. Hann hafi aldrei
þurft að fara á lyf við ADHD og
hafi náð meiri ró með hjálp jóga
og íhugunar. Hann sé hins vegar
ennþá að kljást við þetta og fari oft
fram úr sér. En að sama skapi sé
þetta drífandi afl.
„Ég fæ einhverja hugmynd og
framkvæmi hana samstundis, ég
get ekki beðið. Hvort sem það er
í leikhúsinu eða á heimilinu. Ég
verð alltaf að laga allt strax. Oft
kemur það fyrir að konan mín
stoppar mig og segi mér að ég
þurfi að hlusta,“ segir Björgvin og
brosir. „Ég er líka ferlega þrjóskur
og hika aldrei við áskoranir, sér-
staklega ef þær eru á leiksviðinu.
Þá er ég til í að gera hvað sem er.“
Hvernig eruð þið pabbi þinn
saman, báðir með ADHD?
„Það er mjög skrautlegt mix
og geta orðið árekstrar, sérstak-
lega þegar ég var yngri. Við áttum
mjög góðar stundir og hann hefur
alltaf stutt mig þegar ég hef farið í
gervi og verið í karakter. Hann er
eins og ég og meira að segja að-
eins ýktari. Því lenti okkur stund-
um saman. En við erum mjög góð-
ir vinir í dag.“
Tvisvar í meðferð
Þegar kom fram á unglingsárin
breyttist Björgvin úr litlum tauga-
veikluðum strák í töffara. Hann
gekk í Austurbæjarskóla, átti
fjölda vina, skartaði síðu hári, sól-
gleraugum, rauðum kasmírjakka,
Levi’s-gallabuxum og Harley
Davidson-stígvélum. Snemma
byrjaði hann að reykja og drekka.
„Ég sat stundum á skólalóðinni
og reykti. Eitt sinn kom kennari út
og skammaði mig fyrir að reykja
ekki á réttum stað. Þá var sem sagt
sérstakt horn þar sem börn máttu
reykja!“
Varstu vandræðaunglingur?
„Nei, en ég fylgdi þeim eftir,“
segir Björgvin og skellihlær. „Ef
þeir sprengdu upp klósett þá var
ég rétt fyrir aftan og fyrstur til að
hlaupa í burtu.“
Á yngri árum háði Björgvin sína
baráttu við Bakkus. Áfengi varð
Björgvin
Franz Sneri
aftur í leikhúsið
með hvelli.
M
Y
N
D
IR
: H
A
N
N
A
A
N
D
R
ÉSD
Ó
T
TIR
/D
V
Mjög
náttúrulegt
að leika
konu
n Björgvin Franz glímdi við ADHD og
áfengisvanda n Hafði gefið leikhúsið upp
á bátinn n Lék stjaksettan hermann hjá
Clint Eastwood
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is „Núna finnst mér sem
draumurinn sem ég
hafði um leikhús sé að rætast