Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 24
24 MATUR 8. mars 2019
61
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Fór á safaföstu
n Jónína Ásdís heldur einkennum sjúkdóma sinna að mestu
leyti niðri með mataræði n Drakk safa á aðfangadagskvöld
J
ónína Ásdís heilsumark-
þjálfi lauk 61 dags safaföstu
síðastliðinn janúar. Hún var
því á safaföstu yfir jólin og
drakk safa á aðfangadagskvöld
líkt og aðra daga. Jónína Ásdís
hafði kynnt sér safaföstur í mörg
ár áður en hún lét til skarar skríða.
Hún segir ástæðuna fyrir safaföst-
unni hafa verið heilsutengda en
hún glímir við liða- og vefjagigt og
iðraólgu.
Í samtali við DV fer Jónína Ás-
dís yfir safaföstuna, ávinninginn
og hvernig hún entist svona lengi.
Hvað er safi og hvernig virkar
safafasta?
„Safi er þegar þú tekur hratið,
sem eru trefjarnar, úr ávöxtum og
grænmeti. Það er einfaldasta lýs-
ingin á þessu,“ segir Jónína Ásdís
og heldur áfram:
„Þegar þú drekkur safa
færðu næringuna mjög
fljótt í líkamann því þú ert
búin að fjarlæga það sem
fer í gegnum allt meltingarkerfið.
Þannig þú færð vítamín, stein-
efnin og orkuna úr safanum mjög
snögglega. Þú ert að hjálpa líkam-
anum að fá næringu án þess að
hann þurfi að hafa mikið fyrir því.
Þannig að þú ert í rauninni að gefa
meltingunni hvíld, því þú ert að fá
mjög mikla næringu á mjög ein-
faldan máta.“
Jónína Ásdís tekur fram að
safaföstur séu ekki æskilegar fyrir
ófrískar konur eða konur með
barn á brjósti.
Heilsufarsástæður
Jónína Ásdís er með vefjagigt,
liðagigt og iðraólgu (IBS). Hún
hefur haldið einkennum sjúk-
dóma sinna að mestu leyti niðri
með mataræði. Hún hefur verið á
hráfæði síðustu tvö ár. Jónína Ás-
dís varð vegan fyrir sex árum og
á sama tíma hætti hún að borða
glúten og allan viðbættan sykur.
„Ég hef verið að kljást við alls
konar líkamleg verkefni og ég hef
séð hvernig ég get haft áhrif á það
hvernig mér líður með matar-
æði. Ég fór því á safaföstu af
heilsufarsástæðum. Ég var
ekki að gera þetta til að létt-
ast eða neitt þannig, heldur
algjörlega heilsunnar
vegna,“ segir Jónína Ásdís
og bætir við:
„Það er ekkert í
mataræðinu mínu sem
myndi teljast óhollt, og
því var safafastan næsta
skrefið fyrir mig í átt að
betri heilsu. Mig lang-
aði að sjá hversu mikið
ég myndi ná bólgum
niður með því að fara
á safaföstu. Með því
að næra líkama
minn, án þess að hann þyrfti að
hafa fyrir því, vildi ég reyna að gefa
honum svigrúm til að vinna í þeim
bólgum og sjúkdómum sem ég er
með.“
Löng safafasta
Áður en Jónína Ásdís fór á safa-
föstuna hafði hún hugsað sér að
taka langa safaföstu sem yrði 30–
60 dagar.
„Ég var með það hugarfar að
á meðan ég trúði því að ég væri
að gera mér gott myndi ég halda
áfram,“ segir Jónína Ásdís.
Þegar Jónína Ásdís byrjaði á
safaföstunni var hún búin að búa
sig undir að líðan hennar kynni að
versna áður en hún myndi skána
og sú varð raunin.
„Mér byrjaði að líða vel á sautj-
ánda degi. Það tók líkamann þenn-
an tíma að aðlagast alveg safaföst-
unni og búa til nýtt norm. En það
sem ég lærði af henni núna var að
ég myndi fara öðruvísi inn í safa-
föstuna og ég myndi brjóta hana
öðruvísi. Ég myndi gefa mér lengri
tíma í að fara hægar í föstuna og
einnig enn hægar úr henni.“
Jónína Ásdís segir að margir
finni fyrir „afeitrunareinkennum“
þegar þeir fara á safaföstur. Hún
fór úr hráfæði í safaföstu svo það
var ekki mikið áfall fyrir líkama
hennar. Mesti munurinn lá í trefj-
unum, eða skorti á þeim, og þurfti
líkaminn að aðlagast því.
Fann ekki fyrir hungri
„Ég fann ekki almennilega fyrir
hungri fyrr en ég braut föstuna. Ef
ég var búin að undirbúa daginn
gekk þetta mjög vel. Ég drakk
líka mjög mikið af safa. Ég drakk
nokkra lítra af safa á dag en magn-
ið var misjafnt eftir dögum,“ segir
Jónína Ásdís.
Til að gera grænan safa notaði
Jónína Ásdís gúrkur, grænkál,
romaine-kál, brokkolí og perur.
Hún notaði oftast þessi hráefni
en blandaði þeim á mismunandi
hátt.
Jónína Ásdís drekkur enn þá
mikið magn af grænum safa og
byrjar yfirleitt daginn á honum.
Safi í jólamatinn
Jónína Ásdís var á safaföstunni
yfir jólin. Hún er hráfæðisæta svo
hún borðar ekki hinn hefðbundna
jólamat. Aðspurð hvort það hafi
verið skrýtið að drekka safa á að-
fangadagskvöld svarar Jónína Ás-
dís neitandi: „Það gekk mjög vel.
Alltaf þegar ég tek ákvarðanir um
að gera eitthvað er sannfæringin
svo sterk að það er ekkert sem get-
ur brotið það. Ef ég trúi því að ég
sé að gera gott fyrir mig og hef trú
á því sem ég er að gera þá dofnar
allt hitt.“
Jónína Ásdís segir að hún hafi
sett safann í skál og borðað eins og
súpu. „Eldri strákurinn minn vildi
líka fá safa í skál og fékk sér með
mér með jólamatnum.“
Borðaði eftir 61 dag
Jónína Ásdís fann mun á líkama
sínum þegar hún gerði líkams-
þyngdaræfingar heima og teygjur.
„Ég fann að ég var léttari á mér.
Þegar maður er með gigt er maður
stífari, en það var léttara fyrir mig
að hreyfa mig.“
Jónína Ásdís byrjaði að borða
aftur 21. janúar, eftir að hafa
drukkið einungis safa í 61 dag.
Hún segist hafa byrjað að borða
vatnsmelónu og síðan aðra vatns-
ríka ávexti og grænmeti eins og
gúrkur.
Jónína Ásdís segir ávinninginn
hafa verið margs konar. Fyrir utan
að hafa liðið betur líkamlega seg-
ir hún að hún hafi verið skýrari í
kollinum.
„Markmiðið í öllu sem ég geri
er líka alltaf að skilja meira og læra
meira. Með aukinni þekkingu og
meðvitund get ég gert betur og
hugsað betur um mig og aðra,“
segir Jónína Ásdís. n
61 dags
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is