Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 28
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Ævintýri á Akranesi
Hans og Gréta er ævintýraleg verslun á Akranesi sem selur barnafatnað, leikföng, skó og
aðra fylgihluti fyrir börn. Einnig fást
vandaðar sportvörur frá ýmsum
þekktum merkjum fyrir bæði börn
og fullorðna. „Ég byrjaði smátt en
verslunin hefur þróast mjög mikið
út frá því sem kúnnahópurinn óskar
eftir,“ segir Hrefna Björnsdóttir,
eigandi Hans og Grétu.
Byrjaði sem markaður með notuð
barnaföt
„Þetta byrjaði allt með því að ég hélt
nokkra markaði fyrir notuð barnaföt.
Eftir það fór ég að selja þau ásamt
nokkrum nýjum flíkum í lítilli verslun á
Akranesi. Síðan vatt þetta upp á sig.
Ég flutti verslunina í nýtt húsnæði.
Þá hætti ég að selja notuð barnaföt
og fór alfarið yfir í að flytja inn vönd-
uð barnaföt frá Danmörku. Aftur
flutti ég í nýtt húsnæði á Akranesi í
maí 2018 og nú er verslunin stað-
sett á Þjóðbraut 1 á Akranesi. Ásamt
dönsku merkjunum er ég líka að selja
íþróttafatnað fyrir bæði börn og
fullorðna frá Adidas, Under Armour
og Speedo.“
Vönduð dönsk merki
„Dönsku merkin sem ég flyt inn eru
sérlega vönduð og falleg og flíkurnar
endast mjög vel. Ég er t.d. með
fallegar vörur frá Smallstuff, Small
Rags, Minymo, Celavi, Enfant og
Creamie. Ég kynntist þessum vörum
þegar ég bjó í Danmörku og fannst
tilvalið að flytja þetta hingað heim
þar sem þetta fæst ekki hvar sem er.“
Verslaðu í rólegu umhverfi
„Margt af því sem ég er með hér í
búðinni á Akranesi fæst til dæmis ekki
í Reykjavík, hvað þá annars staðar
á landinu. Það er því margt fólk sem
gerir sér ferð á Akranesið til að kíkja
í búðina mína. Það er ekki nema 25
mínútna akstur frá Mosfellsbæ á
Akranes og þeir eru hættir að rukka
í gögnin. Svo eru margir sem kjósa
það frekar að versla hér því hér getur
fólk verslað í ró og næði, annað en
í borginni. Hér eru bæði margar
spennandi búðir og svo er þetta líka
svo fallegur staður.“
Vefverslun sendir út um allt land
„Ég er líka með vefverslun þar sem
ég sel allar vörurnar sem ég er með
í búðinni fyrir þá sem kjósa að versla
á netinu. Fólk er að panta hjá mér af
ölu landinu og ég geri mitt besta í að
senda vörurnar út úr húsi sem allra
fyrst,“ segir Hrefna.
Nánari upplýsingar má nálgast á
hansoggreta.is og
Facebook: Hans og Gréta
Verslunin er staðsett að Þjóðbraut 1,
300 Akranesi.
Netpóstur:
hansoggreta@hansoggreta.is
Sími: 661-9889
HANS OG GRÉTA: