Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 29
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Raunveruleg áhrif bæði til
skemmri og lengri tíma litið“
HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR:
Ég brenn fyrir starfinu því ég finn að það hefur raunverulega áhrif til góðs fyrir fólk sem býr við
erfiðar félagslegar aðstæður,“ segir
Sædís Arnardóttir, félagsráðgjafi
Hjálparstarfs kirkjunnar, í samtali við
DV. „Það er ekki auðvelt fyrir fólk að
leita til okkar eftir neyðaraðstoð en
þegar ekki er til matur fyrir börnin
þegar enn er vika í næstu mánaða-
mót getur inneignarkort í matvöru-
verslunum skipt sköpum. Fólk kemur
líka til okkar eftir fatnaði sem við
höfum fengið gefins og við veitum
aðstoð við lyfjakaup í neyðartilfellum,“
segir Sædís.
Aðstoða barnafjölskyldur
„Við leggjum sérstaka áherslu á
að aðstoða barnafjölskyldur þar
sem velferð barna er í algerum
forgangi hjá okkur. Við aðstoðum
foreldra í upphafi skólaárs því að
skólagöngunni fylgja ýmis útgjöld svo
sem vegna íþrótta og tómstunda.
Fyrir jólin veitum við foreldrum sér-
staka aðstoð svo fjölskyldan geti átt
gleðilegar stundir saman og foreldrar
geti gefið gjafir sem börnin hafa sett
á óskalistann. Við vitum að minningar
um ljúfa samveru fjölskyldunnar
styrkja sjálfsmyndina sem er svo mik-
ilvægt að hafa í góðu lagi.“
Sumarbúðir fyrir fjölskyldur við
Úlfljótsvatn
„Núna erum við að undirbúa
spennandi starf fyrir fjölskyldur í
sumar. Annars vegar sumarfrí fyrir
barnafjölskyldur í sumarbúðum
Skáta við Úlfljótsvatn 11.–14. júní
nk., en þetta er í sjötta sinn sem
við skipuleggjum dagskrána með
Hjálpræðishernum á Íslandi. Við
höfum fengið frábær skilaboð frá
fjölskyldum sem hafa tekið þátt í
þessu með okkur. Flestar þeirra hafa
ekki haft efni á því að fara í sumarfrí
í lengri tíma og það er mömmunum
kærkomið að geta slappað af, sleppt
því að elda og bara leikið sér með
krökkunum.“
Ræktaðu garðinn þinn
„Ræktaðu garðinn þinn heitir hitt
verkefnið sem við bjóðum fjölskyldum
að taka þátt í núna í sumar. Við
erum svo heppin að hafa fengið
til liðs við okkur garðyrkjufræðing
sem leiðbeinir þeim fjölskyldum sem
vilja, í að rækta eigið grænmeti í
Seljagarði í Breiðholti. Markmiðið er
aftur að stuðla að gæðastundum
fjölskyldunnar til að setja í minninga-
bankann.“
Innblástur og hvatning
„Við félagsráðgjafar Hjálparstarfs
kirkjunnar veitum fólki sem hingað
leitar ráðgjöf um úrræði í samfé-
laginu og bjóðum upp á ýmiss konar
valdeflingarverkefni. En fyrst og
fremst hlustum við á fólkið sem er
sjálft að leita leiða út úr erfiðum
aðstæðum. Um daginn kom til okkar
kona með heimabakaða og ljúffenga
köku. Hún sagðist bara vilja þakka
fyrir sig. Að ráðin sem hún hefði
fengið hefðu reynst henni svo vel
og að hún væri nú komin á gott ról.
Það eru svona skilaboð sem gefa
okkur sem hér störfum innblástur
og hvatningu um að halda starfinu
ótrauð áfram.“
„Það er gott að
standa upp frá
skrifborðinu og
bregða á leik með
fólkinu sem við
vinnum með,“ segir
Sædís Arnar dóttir
félagsráðgjafi
Hjálparstarfs
kirkjunnar en hér
er hún ásamt
fjölskyldum sem
búa við erfiðar
aðstæður í sumar
búðum Skáta á
Úlfljótsvatni.
„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá fjölskyldunum sem hafa tekið þátt í sumarfríinu
við Úlfljótsvatn enda mikið við að vera,“ segir Sædís.
„Það er hægt að eiga frábærar samverustundir við að rækta eigið grænmeti svo ég tali
nú ekki um gleðina þegar kemur að uppskerunni,“ segir Sædís.