Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 39
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Stútfull sýning af drama og húmor
SÖNGLEIKURINN CLUELESS:
Clueless er rómantískur gamansöngleikur um hina vinsælu Cher, sem býr með
móður sinni (Mel) og þernu (Lucy)
í risastóru húsi í Beverly Hills. Cher
finnur tilgang í því að hjálpa fólki í
ástamálum, og það að taka fólk í
yfirhalningu (eða make-over) veitir
henni stöðugleika í kaotískum heimi.
Hins vegar rekst hún aðeins á vegg
þegar plön hennar ganga ekki upp
og allt virðist vera að fara á versta
veg,“ segir Anna Katrín Einarsdóttir,
leikstjóri sýningarinnar sem Verðandi,
leikfélag FG, setur upp í hátíðarsal
Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Af hverju völduð þið Clueless?
„Okkur langaði að setja upp verk með
sterkum kvenkarakter í aðalhlutverki.
Svo er þetta líka bara svo klassísk
og skemmtileg kvikmynd. Auk þess
hefur þetta verk aldrei verið sett
upp á Íslandi, og þangað til í síðasta
nóvember hafði það aldrei verið
útfært fyrir svið. Clueless er alveg
fullkomin fyrir söngleikjaformið þar
sem myndin er frekar ýkt í leik og allri
stíliseringu. Hún er stútfull af drama
og húmor sem skemmtilegt er að leika
sér með og yfirfæra á sviðið.“
Það er lagður töluverður metnaður
í sýninguna. Þið eruð með nýja
leikgerð og fjöldi manns sem kemur
að verkinu. Viltu segja nánar frá því?
„Þetta er heljarmaskína og það
kemur fjöldi nemenda að sýningunni,
eða hátt í 100 manns í heildina.
Lokaútkoman sem áhorfandinn
sér á sviðinu er aðeins toppurinn á
ísjakanum, það eru svo margar deildir
sem komu að því að gera sýninguna
að veruleika. Þessi uppsetning er svo
alveg ný leikgerð upp úr myndinni
og textarnir og lögin frumsamin af
tónlistarkonunni Hildi. Ég komst ekki
að því að það væri verið að setja upp
söngleik off-Broadway fyrr en eftir að
ég var byrjuð að vinna handritið. Það
hefði verið fróðlegt að sjá það en ég
komst því miður ekki út.“
Er þetta ekki búið að vera
skemmtilegt ferli?
„Ferlið er búið að vera alveg æðislegt!
Frá upphafi til enda. Við hófum
æfingar á verkinu síðasta haust,
þar sem við vorum að vinna saman
í spuna á senum og finna hin ýmsu
hreyfimynstur með Söru Margréti,
danshöfundi verksins.
Æfingar með handriti byrjuðu svo
strax í janúar á þessu ári.
Við lögðum mikla áherslu á að mæta
öllu með opnum huga og takast á við
vandamálin um leið og þau birtu-
st. Við það skapaðist svo jákvæð
stemning, allt í einu voru öll „mistök“
gjafir. Það er búið að vera ótrúlega
gaman að prófa hinar ýmsu hug-
myndir og sjá þær lifna við á sviðinu.“
Hvernig var að leikstýra hópnum?
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
leikstýri þessum hóp, og í rauninni
fyrsta skipti sem ég tek að mér að
leikstýra svona stóru batteríi. Ég er
ótrúlega þakklát fyrir þetta tækifæri,
og það traust sem mér var falið við
uppsetningu á þessu verki.
Svo eru þau svo fáránlega
hæfileikarík öllsömul og gefa
atvinnuleikurum ekkert eftir!
Við vorum óvægnar við að gefa þeim
krefjandi verkefni og þau tóku þeim
fagnandi og af mikilli fagmennsku.
Hæfileikarnir einskorðuðust ekki bara
við leikhópinn heldur flæddu þeir um
allar deildir sem komu að verkinu.
Ég er viss um að við eigum eftir að sjá
marga af þessum krökkum á svið-
um og tjöldum landsins, og á bak við
þau,“ segir Anna Katrín að lokum.
Það er um að gera að
næla sér í miða á þennan
frábæra söngleik á tix.is
Næstu sýningar eru:
7. mars kl. 20
8. mars kl. 20
9. mars kl. 18
10. mars kl. 20
11. mars kl. 20
12. mars kl. 20
13. mars kl. 20
14. mars kl. 16
15. mars kl. 20
16. mars kl. 20
17. mars kl. 20