Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 41
TÍMAVÉLIN 418. mars 2019
T
veir ferðamenn, hollenskt
par, lentu í miklum hrakn
ingum sumarið 2001 á
Hornströndum. Urðu þau
innlyksa í harðneskjulegu lands
laginu og sátu föst í rúma viku í
tjaldi sínu. Urðu þau loks matar
laus og örvæntingarfull. En þá
komu sjómennirnir Jón Halldór
Pálmason og Ægir Hrannar
Thorarensen þeim til bjargar. Jón
Halldór ræddi við DV um björg
unina.
Engin tilkynningarskylda
„Þau voru búin að vera föst í dal
verpi og höfðu ákveðið að reyna
að komast inn í Hornvík þar sem
bátarnir voru. Það var allur matur
búinn hjá þeim og þau höfðu ekk
ert val. Þegar þau sáu okkur koma
stukku þau af stað,“ segir Jón Hall
dór, sem er sjómaður, búsettur á
Ísafirði. Hann og félagi hans Ægir
voru á veiðum á Skutli ÍS, lítilli
trillu, sunnudaginn 26. ágúst árið
2001.
Var verið að leita að þeim?
„Nei. Þau höfðu ekki skilað sér
á þann stað sem þau höfðu pant
að en það var ekki óalgengt á þess
um tíma að fólk tæki sitt hvorn
bátinn til baka til Ísafjarðar, frá sitt
hvoru fyrirtækinu. Það er nú búið
að stokka þetta kerfi upp í dag,
en á þessum tíma var ekki verið
að velta þessu fyrir sér og það var
engin tilkynningarskylda.“
Hrasaði í bratta
Hollenska parið, Frank van Wijk
og Nel den Breejen, var á ferðalagi
um Hornstrandir í ágústmánuði
árið 2001. Hornstrandir eru nyrsti
hluti Vestfjarða, óbyggðir í dag og
erfitt er að komast á milli staða
nema með bátum.
Þau hófu gönguna á Hesteyri
á sunnanverðum Hornströndum
þann 15. ágúst og voru komin í
Rekavík á þeim norðan megin
tveimur dögum síðar. Ætluðu
þau austur að Hornvík en þurftu
að fara yfir brattan fjörukamb til
að komast þangað. Þá lentu þau
í háska. Þann 28. ágúst þessa árs
sagði Frank við Morgunblaðið:
„Við komum skyndilega að
mjög bröttum kafla. Fallið var
kannski ekki ýkja mikið, kannski
15 metrar, en nóg samt. Ég komst
yfir og unnusta mín reyndi líka
en var næstum dottin. Við urðum
bæði nokkuð skelkuð svo ég sneri
til baka og við tjölduðum síðan í
Rekavík.“
Úrvinda og ráðalaus í stormi
Eftir þessa hættu ákváðu þau að
hætta við að fara til Hornvíkur og
halda þess í stað vestur í áttina
að Aðalvík. Þar áttu þau pantað
far með bát viku síðar. Þau fóru
ekki sömu leið til baka heldur um
Hvannadalsskarð þar sem sú leið
virtist auðfær á kortunum.
Þegar á leið varð sú leið sífellt
brattari og erfiðari en þau áttu
von á. Að lokum voru þau hrein
lega óttaslegin um eigið líf og
ákváðu því að snúa aftur austur
og tjölduðu í Hvannadal. Þá voru
þau bæði orðin úrvinda af þreytu
og ráðalaus.
Frank og Nel vissu að bátur ætti
að koma til Hornvíkur á mánudeg
inum og vildu þau reyna að kom
ast í hann til að sleppa úr prísund
sinni. En þá skall á mikið óveð
ur og báturinn sá ekki tjaldið sem
þau hírðust í. Það hvessti mikið og
rigndi um nóttina og allur búnaður
Hollendinganna varð rennblautur
þótt þau hefðu verið inni í tjaldinu
og hefðu slegið upp varnargarði í
kringum það. Um tíma var tjaldið
næstum fokið út í veður og vind.
„Stundum vorum við býsna ör
væntingarfull, en þess á milli vor
um við róleg,“ sagði Frank.
Misstu 5–6 kíló
Þau voru föst í tjaldinu næstu daga
vegna veðurs. Stormurinn geisaði
aftur næsta dag og síðan tók við
mikil þoka og rigning. Þau treystu
sér ekki til þess að halda aftur af
stað og ákváðu því að halda kyrru
fyrir. Jón Halldór segir að síma
samband sé lítið sem ekkert á
svæðinu og talstöðvarsamband
enn erfitt í dag. Frank og Nel höfðu
því enga leið til að láta vita af sér.
Þau stóðu einnig frammi
fyrir öðru vandamáli, matar
skorti. Frank og Nel vissu ekk
ert hversu lengi þau myndu þurfa
að bíða og voru með takmarkað
ar matarbirgðir. Þau skömmtuðu
sér nauman kost þessa daga og
hungrið tók að bíta. „Við borðuð
um lítið og misstum reyndar bæði
um 5–6 kíló þessa daga,“ sagði
Frank.
Nel ræddi við DV þann 28.
ágúst. Hún sagði:
„Við þurftum að hafa okkur öll
við til að komast af. Veðrið var
vont og landið erfitt. Stundum
greip okkur örvænting. Þá fórum
við gjarnan í hollenska orðaleiki
og aðra leiki til þess að dreifa hug-
anum. Við reyndum ýmsar leiðir
úr Hvannadal, en allar reyndust
þær of erfiðar, ýmist varð að klifra
bratta kletta eða synda fyrir ófær-
ur.“
Synti út í bátinn
Frank og Nel dóu hins vegar ekki
ráðalaus. Þau söfnuðu spýtum til
þess að geta brennt þegar rign
ingunni slotaði. Einnig bjuggu
þau til gínu úr drasli úr fjörunni
til þess að reyna að ná athygli sjó
manna sem kynnu að sigla með
fram ströndinni. Þá sáu þau bát
Jóns Halldórs og Hrannars. Jón
Halldór segir:
„Við vorum að leggja línu þarna
fyrir framan þannig að við vorum
að sigla að þeim og frá þeim til
skiptis. Þegar þau sáu okkur tóku
þau belg og veifuðu honum. Við
sáum þetta og fórum að athuga
með þau. Þá komu þau æðandi út
í bát, það var ekkert öðruvísi.“
Syntu þau út í bátinn?
„Já, mig minnir að karlinn hafi
komið syndandi út í bát og síðan
sigldum við þar sem var grynnra
og sóttum konuna. Við gátum
gripið hana án þess að hún færi al
veg á kaf.“
Ætluðu að koma aftur
Hvernig var ástandið á þeim?
„Þau voru hrakin og auðvit
að rennandi blaut þegar þau
komu um borð til okkar. Þau voru
einnig mjög svöng. Við áttum
nesti þannig að það fór eitthvað af
samlokum í þau og síðan var siglt
beint heim til Ísafjarðar.“
Rædduð þið mikið við þau?
„Aðeins. Ferðalagið stóð alveg
undir væntingum hjá þeim,“ segir
Jón Halldór kíminn. „Þau vissu al
veg að þau hefðu ekki verið nógu
vel útbúin en ætluðu að æfa sig
betur og koma aftur seinna. Þau
voru ákveðin í því.“
Jón Halldór veit ekki til þess að
Frank og Nel hafi komið aftur til
Hornstranda. Kannski koma þau
aftur einhvern daginn og sækja þá
búnaðinn sinn og tjaldið sem þau
skildu eftir. nUmboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
Sjómenn komu hollensku pari
til bjargar á Hornströndum
n Föst í átta daga n Hungruð og hrakin
Rekavík Frank og Nel voru innlyksa í átta daga.
Gleðistund Ægir, Jón Halldór, Frank og Nel.Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Þau vissu alveg að þau hefðu ekki
verið nógu vel útbúin en ætluðu
að æfa sig betur og koma aftur seinna
Gamla
auglýsingin
Alþýðublaðið 22. desember 1931Tímavélin