Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 43
8. mars 2019 43
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
1
TÍMAVÉLIN
VERSTU EINRÆÐIS-
HERRAR SÖGUNNAR10
Sægur er til af illmennum sem komust til valda
með hræðilegum afleiðingum. Margir eiga það
sameiginlegt að hafa verið hampað sem hetjum í
upphafi valdatíðarinnar. Með tíð og tíma kom í ljós
hversu illgjarnir og óhæfir leiðtogar þeir voru. Hér
eru þeir 10 verstu.
Hitler er sjálfkjörinn í efsta sæti listans. Hann
er frægasta illmenni sögunnar og kvaldi ekki
einungis eigin þegna heldur þegna allrar
Evrópu. Hitler komst til valda með lýðræðis-
legum leiðum og hóf snemma ofsóknir á hend-
ur kommúnistum og gyðingum. Hann hóf
blóðugustu styrjöld sögunnar þar sem
allt að 85 milljónir manna týndu lífinu.
Þar að auki stundaði hann iðnaðar-
morð á minnihlutahópum. Hitler
framdi sjálfsvíg árið 1945.
2 3
4 5
6 7
8 9
10
KIM IL-SUNG
ADOLF HITLER
Varla þarf að kynna Stalín og hans voðaverk
fyrir lesendum. Stalín komst til valda í Sovét-
ríkjunum eftir dauða Lenín árið 1924. Skömmu
síðar hófust ofsóknir á hend-
ur óvinum og ímynduðum
óvinum Stalín, eða „hreins-
anir.“ Stalín varð að hetju í
seinni heimsstyrjöldinni og
litu þá margir fram hjá því
að um tíu milljónir hefðu
dáið í hungursneyðum vegna
ákvarðana hans. Stalín dó
árið 1953.
JÓSEF STALÍN
Maó var guðfaðir Alþýðulýðveldisins Kína og
stýrði því með harðri hendi til dauðadags árið
1976. Maó var hetja úr seinni heimsstyrjöldinni
og hróður hans jókst þegar hann bjargaði Norð-
ur-Kóreumönnum í Kóreustríðinu
og lagði undir sig Tíbet. Hróður-
inn minnkaði hins vegar á sjö-
unda áratugnum þegar hann
kvaddi Kínverja til þegnskyldu-
vinnu í „stóra stökkinu“ og um
tuttugu milljónir týndu lífinu í
hungursneyð. Þá hófst einnig
mikið ofstæki menningar-
byltingarinnar.
MAÓ ZEDONG
Mussolini komst til valda í Ítalíu í kjölfar fyrri
heimsstyrjaldarinnar og reyndi að byggja upp
nýtt Rómaveldi. Hann náði hins vegar
einungis Albaníu og Eþíópíu með
eigin herafla og þurfti að hanga
í pilsfaldinum hjá Adolf Hitler.
Mussolini var samsekur í hildar-
leiknum og varð að lokum hat-
aður af eigin þegnum. Hann og
eiginkona hans voru drepin,
líkin hengd upp til sýnis
og almenningur kastaði
mannaskít í þau.
BENITO MUSSOLINI
Þegar Ceausescu komst til valda í Rúmeníu
árið 1965 þótti hann framsæknasti og nútíma-
legasti leiðtogi Austur-Evrópu – ljós í myrkr-
inu. Ekki leið á löngu þar til það snerist við og
þótti alræði hans slá bæði Sovétmönnum og
Austur-Þjóðverjum við. Á áttunda áratugnum
fór efnahagurinn á hliðina og Ceausescu seldi
matvælin úr landi sem orsakaði
eiginlega hungursneyð á þeim
níunda. Þegar kommúnism-
inn féll voru Ceausescu og
kona hans Elena leidd fyrir
aftökusveit, á sjálfan jóladag
árið 1989.
NICOLAE CEAUSESCU
Pol Pot var aðeins
leiðtogi Kambódíu í
nokkur ár á áttunda
áratugnum en hann
komst til valda eftir
að Bandaríkjamenn
útfærðu Víetnam-
stríðið til landsins.
Talið er að rúmlega
tvær milljónir hafi
farist, eða fjórðung-
ur Kambódíumanna,
frá 1975 til 1979. Pol
Pot rak fólk úr borg-
um í sveitir, ofsótti
menntafólk og neyddi
börn til að rísa upp
gegn foreldrum sín-
um. Víetnamar ráku
hann frá
völdum
árið
1979.
POL POT
Hinn fyrsti og
„eilífi“ leiðtogi
Norður-Kóreu, Kim
Il-sung, olli dauða
milljóna þegna sinna
á nærri hálfrar aldar
valdatíð sinni. Flest-
ir dóu í Kóreustríðinu
sem hófst skömmu
eftir að Il-sung komst
til valda. Bardagarn-
ir stóðu yfir í þrjú ár
og skiluðu engu því
landamærin
enduðu á sama
stað. Liðu svo
árin og smám saman
breyttist Norður-Kór-
ea í eitt hræðilegasta
ríki heims. Íbúarnir
sultu en
herinn
efldist.
Vilhjálmur var síðasti keisari Þýskalands og
dreymdi mikla stórveldisdrauma. Á fyrstu árum
20. aldarinnar var hans helsti draumur að leggja
undir sig Ameríku og lét hann þrisvar sinnum
skipuleggja árásir á landið. Vilhjálmur
var sá sem bar hvað mestu ábyrgð-
ina á fyrri heimsstyrjöldinni þar
sem milljónum manna var att
út í forað dauðans. Þjóðverjar
beittu gasi og eldvörpum í stríð-
inu til að valda sem mestum ótta.
Hann flúði til Hollands eft-
ir stríðið.
VILHJÁLMUR II
Idi Amin Dada var
einræðisherra í Úg-
anda árin 1971 til
1979. Amin var áður
kokkur í breska hern-
um og í stjórnar-
tíð hans
gekk sá
orðróm-
ur að
hann eldaði fólk og
æti það. Amin komst
til valda með vopna-
valdi og beitti mikilli
hörku allan sinn fer-
il. Hundruð þúsunda
voru myrt eða hurfu
sporlaust, flestir úr
Acholi- og Lango-ætt-
bálknum. Amin var
skrautleg persóna og
leit á sig sem konung
og sigurvegara. Hann
var að lokum sendur í
útlegð.
IDI AMIN
Maðurinn með horröndina á
efri vörinni var eitt sinn titl-
aður bjartasta von
Afríku. Hann var
frelsishetja ný-
lendunnar Suður-Ródesíu sem varð að Simbabve
árið 1980. Snemma á ferlinum hóf hann að of-
sækja hvíta bændur og tugþúsundir voru myrtar
eða flæmdar úr landi. Þeir sem tóku við búun-
um gátu ekki haldið uppi matarframleiðslunni
og hungursneyðir tóku við. Mugabe var steypt af
hernum árið 2017 og settur í stofufangelsi.
ROBERT MUGABE
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is