Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 49
8. mars 2019 FRÉTTIR 49
Karlmaður var dæmdur í hálfs árs
fangelsi vegna hótana, húsbrota
og nálgunarbannsbrota í garð
Helga Áss Grétarssonar skák-
meistara og fjölskyldu hans. Mað-
urinn lét þó ekki staðar numið
þar og var tvívegis kærður fyrir
áreitni eftir að hann lauk afplán-
un refsingar sinnar og vöknuðu
upp margar spurningar í kjölfar-
ið, um hvernig ætti að taka á slík-
um málum.
Í umfjöllun DV um málið árið
2005 sagði:
„Sæll, Helgi
minn, … ef þú
snertir Ólöfu aftur,
þá muntu óska
þess að hafa aldrei
fæðst,“
eru skilaboð
sem Páll Þórðar-
son las inn á sím-
svara Helga Áss
Grétarssonar, stór-
meistara í skák, laugardaginn 11.
október 2003. Páll er faðir þriggja
barna Ólafar Völu Ingvarsdóttur
sem fór frá honum og tók saman
við Helga Áss. Sjúkleg afbrýðisemi
varð til þess að Páll fór að ofsækja
Helga og Ólöfu. Hann var dæmd-
ur í hálfs árs fangelsi árið 2003 og
er aftur fyrir dómi í dag.
Sambandið var martröð
Í dómnum segir Ólöf að Páll hafi
verið í mikilli óreglu, ekki hald-
ist í vinnu, verið þunglyndur
og haft allt á hornum sér. Hann
hafi farið til útlanda, komið aft-
ur ári síðar og sagst vera breyttur
maður; hættur að drekka og far-
inn að vinna. Þau hafi aftur byrj-
að að búa og flutt til Hveragerðis
þar sem Páll lagðist enn og aft-
ur í drykkju. Þá var Ólöf ófrísk að
þriðja barni þeirra sem fæddist í
september 1999.
„Þetta var hreinasta martröð,“
var haft eftir Ólöfu í dómnum.
Hún sleit sambúðinni og flutti
til móður sinnar. Ólöf segist hafa
verið mjög hrædd við Pál þegar
þau bjuggu í Hveragerði; henni
hafi fundist eins og hún væri í
fangelsi. Páll hafi verið ofstopa-
fullur og jafnvel bannað henni að
fara úr húsi svo að nokkrum sinn-
um þurfti hún að laumast út um
glugga. Ólöf tók þó fram að Páll
hafi ekki sýnt henni ofbeldi að
ráði.
Sumarið 2002 kynnist Ólöf
svo skákmeistaranum Helga Áss
Grétarssyni. Þau byrjuðu að búa
en fljótlega fór fyrrverandi ást-
maður Ólafar að varpa skugga
sambandið. Ofsóknir Páls ein-
kenndust af hótunarsímtöl-
um, andlegu ofbeldi og lík-
amlegu. Ofbeldið beindist
ekki aðeins að Helga og
Ólöfu heldur fjölskyldu
hans, vinum og ættingjum.
Skorið var á dekkin á bíl
Helga, ætandi efni hellt
á lakkið og bílar bróður
hans og föður voru einnig
skemmdir.
Í einum af dramatískustu
köflum dómsins lýsti Ólöf
því þegar Páll kom óboðinn
á heimili hennar á Vestur-
götunni. Ólöf Vala var með
sjö ára dóttur sína með sér
þegar Páll vatt sér upp að
henni og ýtti henni inn í
sorpgeymslu við húsið.
Morðhótanir
Páll lokaði dyrunum og króaði
Ólöfu af. Hann tók upp einnota
hanska, barefli og hótaði að
drepa Ólöfu. Hann festi hálsfesti
með krossi um háls hennar, lét
hana setja á sig þykkan skraut-
hring og sagði að hann vildi að
hún bæri hálsfestina þegar hún
dæi. Á meðan Ólöf var föst inni í
sorpgeymslunni var bróðir henn-
ar á leið út með ruslið. Hann kom
að Páli sem flúði af vettvangi. Fyr-
ir dómi sagðist Páll hafa ætlað að
ræða við Ólöfu um fjármál og þau
hefðu af tilviljun farið inn í sorp-
geymsluna. Frásögn hans var
ekki tekin trúanleg og var hann
sakfelldur fyrir þessa ákæru.
Braust inn
Fleiri mál voru dregin upp í
dómnum. Því var lýst þegar Páll
sat fyrir Helga og tók hann háls-
taki. Helgi sleit sig lausan og
flúði, öskrandi á hjálp, heim til
foreldra sinna sem urðu vitni að
morðhótunum úr munni Páls.
Þetta dæmi sýnir vel hvern-
ig líf Helga og Ólafar var sífelld
barátta vegna ofsókna þessa
manns. Barátta sem gekk svo
langt að eina nótt í október 2003
reyndi Páll að brjótast inn til
þeirra og þurftu Helgi og Ólöf
að halda hurðinni til að hann
kæmist ekki inn í íbúðina.
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
FRÆGIR ÍSLENDINGAR SEM HAFA
VERIÐ OFSÓTTIR AF ELTIHRELLUM
MARTRÖÐ HELGA ÁSS GRÉTARSSONAR – HLJÓP ÖSKRANDI Í BURTU
Framhald á síðu 26