Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 50
50 8. mars 2019FRÉTTIR
aðrir útsölustaðir
Epal - Laugavegi 70
EPAL - Harpa
Airport fashion - Leifsstöð
Reykjavik Raincoats
HVERFISGATA 82, vitastígsmegiNn
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Malín Brand opnaði sig um elti-
hrella í Fréttatímanum árið 2011
og tjáði sig einnig við DV um þá
reynslu það sama ár. Þar sagði
Malín:
„Daginn sem ég sagði frá
þessari óskemmtilegu reynslu
í Fréttatímanum kom póst-
ur frá ókunnugum manni sem
bauðst til að verða nýi „stalker-
inn“ minn. Sá hafði sannarlega
misskilið kjarna frásagnarinnar.“
Malín var stödd með hópi ís-
lenskra blaðamanna sem hafði
verið boðið ásamt hópi tyrk-
neskra blaðamanna í tengslum
við umsóknir landanna að ESB.
Malín var ásamt fleirum að
spjalla við nokkra úr hópi Tyrkj-
anna, þar á meðal þann sem var
í forsvari fyrir hópinn. Það sem
leit út fyrir að vera saklaust og
almennt spjall átti heldur betur
eftir að draga dilk á eftir sér.
„Þessi maður var í forsvari
fyrir tyrkneska hópinn, en hann
var greinilega ekki í lagi. Hann
tilkynnti mér að Guð hefði sagt
honum að ég ætti að verða konan
hans. Að það væri allt fyrirfram
ákveðið af Guði, sem mér fannst
fremur ósennilegt þar sem ég er
sjálf guðleysingi.“
Malín leist ekki á blikuna
þegar maðurinn réðst á hana.
„Ég tel að það sé mesta mildi
að ég gat flúið frá honum. Hann
tók mjög harkalega á mér og ég
var öll marin á kjálka, handleggj-
um og fótleggjum eftir hann.“
Malín var flutt á annað hótel í
kjölfarið. „Það tóku þessu allir
alvarlega og ég er mjög þakk-
lát fyrir stuðninginn bæði hjá ís-
lenska hópnum og starfsfólki
hótelsins. Mér var ekki rótt enda
hafði maðurinn sent mér yfir 20
skilaboð á einum klukkutíma og
hringt ótal sinnum.“
Þá sagði Malín einnig:
„Ég var dálítið hvekkt í nokkra
daga á eftir og sérstaklega þegar
ég kom heim og hélt áfram að fá
tölvupóst og SMS frá honum.“
Í kjölfarið þess að hafa opnað
sig um þetta bárust henni skila-
boð frá íslenskum manni sem
bauðst til að verða nýi eltihrellir-
inn hennar.
„Ég hef takmarkaðan áhuga á
meiri svona vitleysu og hef ekki
enn ákveðið hvað ég geri í sam-
bandi við það mál. Ég varð aðal-
lega pirruð og reið. Óttinn kom
ekki fyrr en eftir á þegar ég átt-
aði mig á því hversu hættuleg-
ur maðurinn var. Svona löguðu
fylgir skömm og manni finnst
eins og maður hafi gert eitthvað
rangt, en það er mjög algengt að
sú tilfinning komi upp hjá þeim
sem þolað hafa ofbeldi. Þess
vegna ákvað ég að gera það eina
rétta, sem er að tala og segja frá.
Þögnin er besta vopn gerenda í
svona málum. Því er nauðsynlegt
að þegja ekki! Svona hegðun er
ofbeldi og það er ekkert sem segir
manni að þessi maður hafi ekki
leikið þennan leik áður.“
Þegar Siv Friðleifsdóttir vildi
skilja við Þorstein Húnbogason
ákvað hann að fylgjast með ferð-
um hennar. Í október árið 2011
var Þorsteinn dæmdur til þess
að greiða Siv sekt upp á 270
þúsund krónur fyrir að hafa
komið, án hennar vitneskju,
ökurita fyrir í bíl sem hún
hafði til umráða. Í um-
fjöllun DV frá september
2012 segir:
„Grunsemdir
hennar vöknuðu
þegar Þorsteinn
virtist vita allt um
ferðir hennar,
auk þess sem hann kom reglu-
lega á sömu staði
og hún. Hún lét
því skoða bíl-
inn og við
leit í bílnum
fannst ökurit-
inn. Hún lagði
fram kæru
og Þorsteinn
var ákærður
og dæmdur í
héraðsdómi.“
Í DV frá árinu 2010 var einnig
sagt frá glímu Halldórs Laxness.
„Á ákveðnum tímapunkti þurfti
að hafa samband við allar leigu-
bílastöðvar í Reykjavík og segja
leigubílstjórum að aka vinsam-
legast ekki drukknum mönn-
um upp að Gljúfrasteini, heimili
skáldsins, ef þeir óskuðu eft-
ir því.
„Menn gátu feng-
ið Halldór svo á heil-
ann að dæmi eru
um að þeir hafi
verið bún-
ir að hreiðra
um sig í stof-
unni heima
hjá honum,
þegar þau
hjónin brugðu sér af bæ. Þá var
það nánast daglegur viðburð-
ur í áraraðir að fólk hringdi og
heimtaði að fá að
tala við skáldið.“
MALÍN BRAND MEÐ
TVO ELTIHRELLA
FENGU HALLDÓR
LAXNESS Á HEILANN
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
– NJÓSNABÚNAÐUR Í BÍL
Eivør sótti um nálgunarbann á
íslenskan mann sem átti að hafa
elt hana á röndum í um þrjú ár.
Málið gekk meira að segja svo
langt að maðurinn flutti til Fær-
eyja og tjaldaði í garðinum hjá
henni í langan tíma. Maðurinn
sagði meira að segja að umboðs-
kona Eivarar væri það eina sem
stæði í vegi fyrir sambandi þeirra
og hótaði henni líkamsmeiðing-
um.
Í viðtali við DV árið 2013 var
Eivør í viðtali um reynslu sína.
Eivør hafði tekið eftir því að sami
maðurinn kom á alla tónleika
hennar. Þegar hún kom til Ís-
lands virtist hún rekast á hann á
hverju götu-
horni. Í við-
talinu sagði
Eivør:
„Hann var alltaf á sama stað
og ég fann til hræðslu. Hann var
að elta mig og trúði að við ætt-
um í heilögu sambandi og að að-
eins fjölskyldan stæði í vegi fyrir
því að við gætum verið saman.
Ég þurfti að leita til lögreglunnar
og fá nálgunarbann, þá lét hann
mig í friði um stund.“
Friðurinn varði ekki lengi.
Hann mætti á minningartón-
leika um látinn föður hennar öll-
um að óvörum. Þar kom hann
inn í kirkjuna og fékk sér sæti.
Hann hefði verið beðinn um að
fara en neitað. Að lokum þurfti
að hringja á lögregluna sem kom
skjótt á vettvang og fjarlægði
manninn.
„Nú hef ég sem betur fer feng-
ið frið frá honum í langan tíma og
skynja frið innra með mér. Mér
finnst ég ekki þurfa að líta um
öxl lengur. Sem betur fer, en það
þurfti að ganga alltof langt áður
en hann hætti. Það sem gerði það
að verkum að ég þurfti að leita
til lögreglunnar og stöðva hann
með öllum ráðum var að hann
var farinn að elta fjölskylduna.
En þessu er lokið núna.“
ALLTAF Á SAMA STAÐ
OG EIVØR PÁLSDÓTTIR
Framhald á síðu 28