Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 52
52 8. mars 2019FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Bubbi Morthens hefur notið mik-
illar velgengni. En fylgifiskar
frægðarinnar eru ekki eintóm
gleði. Bubbi var ofsóttur í fyrsta
sinn árið 1982 af manni sem átti
við geðræn vandamál að stríða.
„Ég hef oft lent í því að vera
með „stalker“. En fjórir hafa geng-
ið svo langt að það hefur verið
einhver ástæða til þess að hafa
áhyggjur af því.“ Í eldri umfjöllun
DV kemur fram að þessi maður
taldi að Bubbi hefði stolið lögun-
um hans og krafðist þess að hann
leiðrétti það fyrir þjóðinni.
„Hann vildi að ég myndi viður-
kenna að hann ætti öll lögin mín,
þar á meðal Ísbjarnarblús.
Ég þurfti ekki að vita
meira til þess að vita
að maðurinn væri
ekki í lagi. Ég vissi
það um leið og ég
fékk fyrsta bréfið
frá honum. Það
fór ekki á milli
mála þegar hann
fór að tala um að
hann hefði
samið Ísbjarnarblús. Og ég
hefði stolið laginu af honum.“
Maðurinn skrifaði les-
andabréf í Morgunblaðið þar
sem hann hélt þessu fram og
fékk bréfið birt. Í framhaldinu
sendi hann hvert bréfið á fæt-
ur öðru á Bubba og urðu bréf-
in alltaf furðulegri. Bréfin
fjölluðu meira og minna um
að hann ætlaði annaðhvort að
drepa Bubba eða meiða hann
ef hann fengi ekki kredit fyrir
lögin. Lögreglan gerði ekkert í
málinu.
„Þetta var í raun orðin svo mik-
il geðveiki að það var ekki hægt
að horfa fram hjá þessu lengur.
Hann sendi mér ítrekað líf-
látshótanir og þetta var
ofbeldishneigður mað-
ur. Eftir að hann réðst
á gamlan mann og
slasaði hann mjög
illa var hann tek-
inn úr umferð og
settur inn. Þá linnti
ofsóknunum loksins.
Það er enginn glað-
ur þegar hann
lendir í svona aðstæðum, en þetta
var nú ekki það svæsnasta sem ég
hef lent í.“
Þá liðu nokkrir mánuðir en þá
tók næsti eltihrellir við. Nú var
það kona.
„Hún sendi mér bréf. Stundum
var hún búin að klippa út stafi og
raða þeim saman þannig að þeir
mynduðu morðhótanir. Svo sendi
hún mér snöru, byssukúlur og
ösku í litlum líkkistum.“
Þetta gekk í nokkra mánuði.
Þriðji eltihrellirinn var karlmaður
sem þjáðist af mikilli vanlíðan að
sögn Bubba. Var hann sannfærð-
ur um að Bubbi gæti bjargað hon-
um. Kom hann sér fyrir á tröppun-
um og beið eftir Bubba. Stundum
svaf hann þar. Hann trúði því að
Bubbi gæti rekið úr honum illa
anda.
„Hann kom sér bara fyrir með
plötubunkann á tröppunum
hjá mér. Það var engin leið til að
losna við hann. Börnin mín voru
mjög hrædd við hann. En ég held
að hann hafi ekki verið ofbeldis-
hneigður. En það var mikil sorg í
honum.“
Seinna fóru að berast hótanir
frá honum: „Ég lét það ekki koma
mér úr jafnvægi en þegar hann
hótaði að skaða börnin mín fór ég
í hann. Hann kom æðandi til mín
alveg kolgeggjaður, froðufellandi
og snarbrjálaður og hótaði börn-
unum mínum. Þá fór ég í hann.
Ég lagðist þungt á hann og tók
hann niður. Það er ekki gaman að
þurfa að slást við svona menn, en
ég vissi ekki til hvers hann var vís.“
Fljótlega eftir þetta var mað-
urinn vistaður á stofnun og fékk
þá hjálp sem hann þurfti á að
halda. Bubbi sagði í viðtalinu að
það væri oft ekki fyrr en eitthvað
slæmt gerðist, einhver yrði fyrir
skaða, sem tekið væri á málinu.
Þá hélt einn maður að Bubbi
væri djöfulinn vegna fæðingar-
dagsins. Bubbi lýsti því á eftirfar-
andi hátt:
„Hann hélt að hann þyrfti bara
að opna á mér hausinn til þess að
sanna mál sitt. Þegar hann væri
búinn að því myndi fólk sjá að
hann hefði rétt fyrir sér. Ég væri
í raun djöfullinn. Þetta var mjög
veikur maður.“
Lögregla fékk að vita frá lækn-
um að Bubbi gæti verið í hættu
staddur og hringdi í Bubba. Hann
mátti alls ekki opna ef það bank-
að yrði upp á hjá honum. Fjöl-
skyldan var heima en Bubbi sagði
ekkert.
„Hann var svo stoppaður af
þegar hann var á leiðinni til mín
til að sanna mál sitt. Sem betur
fer fyrir hann og kannski fyrir mig
líka varð ekkert úr því. Honum
var svo komið fyrir á
viðeigandi stofnun þar sem hann
fékk hjálp.“
Gestur stakk Bubba
„Ég var einu sinni stunginn með
eggvopni á mínu eigin heimili. Þá
fyrst kom lögreglan. Það var í eina
skiptið sem hún hefur brugðist
hratt og örugglega við.“
Bubbi var með gest hjá sér.
Skyndilega hafði manneskja kom-
ið inn og taldi að hún ætti óupp-
gert mál við tónlistarmanninn.
„Þessi manneskja kom óboð-
in inn til mín, var hleypt inn fyrir
slysni. Hún var mjög ógnandi og
lamdi frá sér. Þannig að ég tók
ákvörðun um að fylgja henni út.
Hún átti ekkert að vera þarna og
ég var að reyna að koma henni
út. Okkur lenti síðan saman með
þessum afleiðingum. Ég var
stunginn í lærið með eggvopni,
ég veit ekki hvað það var, hníf-
ur eða eitthvað.“ Fjölskyldan var
öll heima og börnin horfðu upp á
þetta gerast.
Þá sagði Bubbi um eftirköstin:
„Þetta er ein tegund ofbeld-
is. Svipað ofbeldi og blöðin beita
fólk stundum. Stundum hafa
blöðin tekið menn fyrir og lagt þá
í einelti. Þetta er svipuð tilfinn-
ing. Meðan á þessu stendur verð-
ur röskun á daglegu lífi. Þetta hef-
ur líka áhrif á sálarlífið og ég finn
fyrir þessu. Þetta er ekki eitthvað
sem ég humma bara fram af mér,
heldur hefur þetta áhrif á mig.
Þegar ég fer út úr húsi á morgn-
ana horfi ég í kringum mig og
skima eftir því hvort það sé ein-
hver að fylgjast með mér. Þegar ég
er á gangi lít ég við til að athuga
hvort einhver sé að fylgjast með
mér. Þegar ég kem heim á daginn
lít ég til hægri og vinstri áður en
ég fer inn. Hægt og rólega verður
maður, kannski ekki hræddur, en
var um sig og óöruggur.“
ÍTREKAÐ HÓTAÐ AÐ DREPA BUBBA – VILDI SKOÐA HEILA HANS
Í DV frá árinu 2010 er fjallað um
nokkra þekkta Íslendinga sem
hafa verið beittir ofbeldi af elti-
hrellum. Þar sagði:
„Tilfelli Bjarkar var með því
versta sem þekkist. Maður að
nafni Ricardo Lopez varð hug-
fanginn af henni og lét hana ekki
í friði árið 1996. Það kórónaði
óhugnaðinn þegar hann reyndi
að senda Björk bréfsprengju, en
breska lögreglan náði að stöðva
hann í tæka tíð.
Með sprengjunni fylgdi
myndband af manninum, þar
sem hann sýndi nákvæmlega
hvernig hann bjó til sprengj-
una, rakaði svo á sér höf-
uðið, málaði sig í
framan og framdi
loks sjálfsmorð.“
BJÖRK GUÐMUNDS-
DÓTTIR – REYNDI AÐ
SENDA BJÖRK SPRENGJU