Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 56
56 8. mars 2019
2 ár liðu frá því að bandaríska parið Brian Dann og Shelly Parks fóru að rugla saman reytum þar til sambandinu lauk á páskasunnudegi, 4. apríl árið 1999. Sambandi þeirra lauk fyrir fullt og allt.
Þannig var mál með vexti að kvöldið áður hafði Dann litið við hjá fyrrverandi
kærustu sinni, Tinu Pace-Morrell, til að fá lánaða skammbyssu. Dann sagði
Tinu í fyrstu að einhver vildi hann feigan, en venti síðan sínu kvæði í kross ag
sagði að vinur hans, og bróðir Shelly, Andrew Parks, hefði skotið á hann fyrr
þann dag. Hann þyrfti byssu til að verja sig því einhverjar eigur hans voru í íbúð
Andrews og hann hygðist sækja þær.
Tina reyndi í fyrstu að telja Dann hughvarf, en þegar það gekk ekki lánaði hún
honum .38 kalíbera skammbyssu.
Klukkan þrjú, aðfaranótt páskasunnudags, ruddi Dann sér leið inn í íbúð
SAKAMÁL
B
andaríska konan Lofie Lou-
ise Preslar var ekki við eina
fjölina felld í karlamálum.
Louise fæddist 20. septem-
ber, 1880, í Bienville í Louisiana.
Fjölskylda hennar var ágæt-
lega efnuð og hún fékk fyrsta flokks
menntun, og dýra, en var vikið úr
skóla vegna ósæmilegrar hegðunar.
Árið 1903 giftist Louise far-
andsölumanni, Henry Bosley, en
hjónabandið varð endasleppt.
Henry svipti sig lífi eftir að hafa
komið að Louise með öðrum karl-
manni. Louise settist þá að í Boston,
bjó þar um skeið og sá sér farborða
sem háklassa vændiskona. Til að
drýgja tekjurnar enn frekar stal hún
verðmætum af viðskiptavinum sín-
um.
Slapp fyrir horn
Síðar flutti Louise til Waco í Texas.
Þar hóf hún samband við auðugan
olíubarón, Joe Appel. Herra App-
el kembdi ekki hærurnar því hann
fannst myrtur og hafði einhver
látið greipar sópa um skartgripa-
hirslur hans.
Louise var sökuð um glæpinn
en tókst að sannfæra kviðdóm um
að hún hefði banað honum þegar
hann reyndi að nauðga henni, og
þar við sat.
Árið 1913 giftist Louise hótel-
starfsmanninum Harry Faurote.
Hann hlaut sömu örlög og fyrsti
maður Louise og framdi sjálfs-
morð eftir að hafa komið að henni
í rúminu með öðrum manni.
Enn einn olíujöfur
Næstur á dagskrá hjá Louise var
sölumaður að nafni Richard Peete.
Þau gengu í hjónaband árið 1915
og eignuðust eina dóttur. Louise
var við sama heygarðshornið, yf-
irgaf eiginmann og dóttur og flutti
til Los Angeles.
Þar bjó hún með Jacob C. Dent-
on, sem líkt og herra Appel var
auðugur olíujöfur. Jacob hvarf árið
1920 og virtist týndur og tröllum
gefinn. Þegar lögfræðingur Jacobs
loks fékk lögregluna til að leita í
híbýlum hans hafði Louise lagt
land undir fót. Hún fór til Denver í
faðm eiginmanns síns, Richards …
ef einhver skyldi hafa gleymt nafni
hans.
Lífstíðardómur
Lík Jacobs C. Denton fannst og
Louise var ákærð fyrir morðið á
honum. Í þetta skipti dugði ekk-
ert elsku mamma og Louise fékk
lífstíðardóm. Hún varði 18 árum
á bak við lás og slá og einhvern
tímann meðan á afplánun hennar
stóð svipti Richard sig lífi.
Eftir 18 ár fékk Louise reynslu-
lausn og réð sig í vinnu sem ráðs-
kona fyrir konu að nafni Jessie
Marcy … sem fór yfir móðuna
miklu ekki löngu síðar. Öldruð
samstarfskona Louise féll einnig
frá og ekki talið allt með felldu við
fráfall hennar. Ekkert var þó að-
hafst í málinu.
Dauði og mannshvarf
Louise fékk í kjölfarið vinnu hjá
Emily nokkurri Dwight Latham.
Emily þessi hafði reynst Louise
haukur í horni þegar hún sótti um
skilorð fyrrum. Nú, Emily dó og
var andlát hennar, líkt og Jessie
Marcy, talið hafa borið að með
eðlilegum hætti.
Árið 1944 fékk Louise enn eitt
ráðskonustarfið. Í þetta sinn hjá
fólki í Pacific Palisades í Kali-
forníu. Þar var um að ræða Arthur
C. Logan og eiginkonu hans,
Margaret. Um svipað leyti giftist
hún manni að nafni að nafni Lee
Borden Judson.
Falsaðar undirskriftir
Margaret Logan hvarf og
grunsemdir vöknuð um að maðk-
ur væri í mysunni þegar einhver
rak augun í illa falsaðar undir-
Dropi af
náttúrunni
Nýjar bragðtegundir með lífrænum kjarnaolíum
úr ferskri grænmyntu, engifer og fennil
Kaldunnin þorsklifrarolía
„Þegar kemur að
næringu og heilsu vel
ég aðeins það besta”
Andri Rúnar Bjarnason
Knattspyrnumaður Helsingborg
LÍF OG DAUÐI Í ÆVI LOUISE
n Fólk sem umgekkst Louise varð sumt hvert ekki langlíft n Þrír eiginmanna hennar sviptu sig lífi n Mætti örlögum sínum af reisn„Í þetta skipti
dugði ekkert elsku
mamma og Louise fékk
lífstíðardóm.
Fær reynslu-
lausn Louise
afplánaði 18 ár af
lífstíðardómi.