Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 57
SAKAMÁL 578. mars 2019
Andrews og skaut hann til bana. Í íbúðinni voru einnig Shelly, og vinur
Andrews, Eddie Payan, og hlutu þau sömu örlög og Andrew.
Um hálftíma síðar kom Dann aftur til Tinu til að skila byssunni og sagði
henni, nánast í framhjáhlaupi, hvernig hann hefði skotið Andrews, og síðan
Shelly og Eddie. Sagðist hann hafa skotið Andrew og Shelly því þau hefðu
hlegið að honum og Eddie því hann hefði orðið vitni að morðunum.
Tina vildi að Dann gæfi sig fram við lögregluna, en hann tók það ekki í mál.
Þess í stað fór hann þess á leit við Tinu að hún útvegaði honum fjarvistar-
sönnun. Hann fékk síðan hjá henni hrein föt og fór. Morguninn eftir fór hann
í íbúð Andrews, hringdi í Neyðarlínuna og sagðist hafa fundið þrjú lík í íbúð-
inni. Næstu daga ræddi lögregla við hann og Tinu og á endanum fannst
byssan og allt lá ljóst fyrir. Dann var dæmdur til dauða 24. janúar árið 2002.
skriftir á tékkum hennar sem og
bréfum til skilorðsfulltrúa Louise.
Lee Borden var eftir yfirheyrslu
útilokaður sem gerandi í málinu.
Það gekk þó svo nærri honum að
hann framdi sjálfsvíg daginn eftir,
þann 12. janúar 1945, með því að
henda sér út um glugga á 13. hæð
skrifstofubyggingar í Los Angeles.
Dauðadómur
Líkið af Margaret fannst síðar
niðurgrafið í garði. Hún hafði ver-
ið skotin í bakið og barin í höfuðið.
Louise fullyrti að Arthur hefði
skyndilega fengið brjálæðiskast og
gengið af konu sinni dauðri. Sjálf
hefði hún fyllst ótta vegna eigin
forsögu og því hefði hún grafið lík-
ið í garðinum.
Louise átti engu láni að fagna
þegar þarna var komið sögu. Hún
var sakfelld fyrir morðið á Margar-
et Logan og dæmd til dauða.
Yfirveguð á lokastund
Þann 11. apríl, 1947, gekk Louise
inn í gasklefann í San Quentin.
Hún brosti og virtist hin rólegasta.
Hún kinkaði kolli til fangelsisstjór-
ans. Hún var samvinnuþýð þegar
henni var komið fyrir í stólnum og
vörðurinn sem sá um það klapp-
aði blíðlega á öxl hennar. „Vertu al-
veg róleg,“ sagði hann lágum rómi
við Louise sem muldraði þakkar-
orð.
Tíu mínútum síðar var Louise,
þá 66 ára, öll. n
Hægt að nota
úti og inni
festist á flísar og
í baðkör
HREIÐUR.IS
K ÍK
TU V IÐ Á
SMELLTU
H
ÉR
FÆ
ST
Í A
UÐB
REKKU 6. KÓPAVOGI
AÐLAGAR SIG AÐ UMHV
ER
FIN
UBílabrautin
HREIÐUR.IS
VEgakort án
hindrana fyrir
Leyfðu
hugmyndafluginu
að ráða
brautin festist á
flísar og í baðkör
LÍF OG DAUÐI Í ÆVI LOUISE
n Fólk sem umgekkst Louise varð sumt hvert ekki langlíft n Þrír eiginmanna hennar sviptu sig lífi n Mætti örlögum sínum af reisn
„Vertu alveg
róleg,“ sagði
hann lágum rómi við
Louise sem muldraði
þakkarorð.
Herra og frú Peete Richard framdi sjálfs-
morð líkt og tveir aðrir eiginmenn Louise.
Endalokin tilkynnt Louise tók örlögum
sínum af reisn.