Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Page 6
6 12. apríl 2019FRÉTTIR
A
ndlegt ofbeldi, einelti,
ógnarstjórnun, yfirgangur
gegn konum, margföld
trúnaðarbrot og furðu
leg afskipti af einkalífi starfs
manna eru á meðal ásakana sem
fjórir fyrrverandi starfsmenn
Innheimtu stofnunar sveitar
félaga – allt konur – bera á stjórn
endur stofnunarinnar. Halda þær
því fram að forstöðumaður úti
bús stofnunarinnar á Ísafirði stýri
stofnuninni eins og einkafyrir
tæki sínu. Meginhlutverk Inn
heimtustofnunar sveitarfélaga er
innheimta meðlagsgreiðslna og
er ekki um stóran vinnustað að
ræða. Aðalstöðvarnar eru í Reykja
vík, útibú var opnað á Flateyri árið
2011 en var síðan flutt til Ísafjarðar.
Starfsmenn eru núna átta á Ísafirði
og tólf í Reykjavík.
Þær Braga Ósk Bragadóttir,
Elsa Óskarsdóttir, Guðríður Krist
jánsdóttir og Daðína Helgadóttir
eru allar fyrrverandi starfsmenn
Innheimtustofnunar sveitar
félaga. Allar vitna þær um ákveðið
mynstur framkomu í garð starfs
manna sem falla í ónáð forstöðu
mannsins og nefna þær dæmi um
starfslok fjögurra starfsmanna í
kjölfar hegðunar sem þær líkja
við ofsóknir. Allir starfsmennirnir
eru konur. Braga lýsir því auk þess
hvernig hún telur sig hafa verið
rægða á meðal fyrrverandi starfs
félaga sinna á Ísafirði sem hafa
lokað á öll samskipti við hana.
Þær segja mikinn ótta ríkja meðal
starfsfólksins vegna stjórnarhátta
forstöðumannsins og að starfsfólk
þori ekki að gagnrýna stjórnunina
nema í einkasamtölum sín á milli.
Á borðinu liggja alltaf tvö bréf
Daðína Helgadóttir segir: „Ég
byrjaði að vinna hjá stofnuninni
á Flateyri árið 2008. Þá starfaði
Guðríður ásamt þáverandi for
stöðumanni þarna, en núverandi
forstöðumaður tók til starfa 2010.
Sumarið 2013 var ég kölluð inn
til hans og fékk val um að segja
upp eða vera sagt upp og hann
færi með það alla leið, hvað sem
það svo þýðir annað en að vera
ákveðin hótun. Svo mátti ég ekki
ræða þetta við neinn og það var
erfitt. Ég hætti einmitt 30. júlí, al
veg á leiðinni í sumarfrí, ætlaði
að byrja í því 1. ágúst, búin að
hlakka rosalega mikið til, þar sem
dóttirin var að fara að eignast sitt
fyrsta barn. Þetta varpaði skugga
á bæði þá upplifun ásamt því að
sumarfríið varð meira stressandi,
þar sem maður vissi ekki hvað
væri framundan. En það má
kannski segja að litli ömmustrák
urinn minn hafi bjargað geðheilsu
ömmu sinnar á þessum tíma. Mér
var ekki boðinn starfslokasamn
ingur á þessum tíma, en fékk svo
að vita símleiðis að þeir myndu
borga mér laun í þrjá mánuði.“
Braga segir: „Ég var fyrsti starfs
maðurinn sem þessi tiltekni for
stöðumaður réð til starfa. Ég man
vel eftir þeim degi þegar hann
kallaði Daðínu inn til sín, hún kom
fram um hálftíma síðar og sagði
mér að hún þyrfti að kveðja mig,
hún hefði ákveðið að segja upp.
Hún pakkaði bara saman dótinu
sínu og fór og ef ég man rétt þá var
klukkan um 14.00. Þetta var mjög
svo furðulegt. Það var enga vinnu
aðra að hafa fyrir hana á svæð
inu en hún bjó á Þingeyri og tók
strætisvagn í vinnuna á Flateyri.“
Ástæða uppsagnarinnar
var ekki samdráttur heldur átti
starfsmönnum eftir að fjölga úr
fjórum í átta. „Hann vildi koma
sínu fólki að. Vinur hans var ráð
inn í þetta starf skömmu síðar,“
segir Braga.
Önnur kona segist hafa hlotið
sömu örlög árið 2015. Guðríður
Kristjánsdóttir segir:
„Framkoma forstöðumannsins
í garð minn breyttist mikið, hann
gerði allt til þess að mér liði illa. Í
desember 2015 gerðist þetta: Við
vorum þá að fara í jólahlaðborð
á vinnustaðnum klukkan 17 með
fjölskyldum okkar, en þetta var
16. desember. Það fóru allir heim
nema ég og forstöðumaðurinn þar
sem ég bjó á Flateyri og var með
sparifötin í bílnum, ég var kölluð
inn til hans klukkan 15.45, og þar
biðu mín tvö bréf. Annað var upp
sagnarbréf og hitt bréf um að ég
segði sjálf upp starfi. Þarna mátti
ég sitja, rétt áður en jólahlaðborð
átti að hefjast og velja.“ Guðríður
flutti suður í kjölfarið, eftir 50 ára
búsetu á Flateyri.
Braga segir um þetta atvik:
„Þetta var skelfilegt. Klukkan kort
er fyrir fimm var hringt dyrabjöll
unni hjá mér. Guðríður stóð fyrir
utan og sagði við mig um leið og
ég opnaði: „Vissir þú þetta?“ Hún
sagði mér síðan hvað hefði gerst.
En forstöðumaðurinn reyndi án
árangurs að sannfæra mig, þegar
ég mætti klukkan 17, um að Guð
ríður hefði verið orðin óánægð í
starfi og viljað hætta. Það er hins
vegar alrangt.“
Þess má geta að forstöðumað
urinn og Guðríður sendu frá sér
hvort sinn tölvupóstinn til vinnu
félaganna þar sem þau lýstu or
sökum brotthvarfsins með afar
ólíkum hætti. Forstöðumaðurinn
skrifaði meðal annars:
„Guðríður hefur ákveðið að
hverfa til annarra starfa frá og
með deginum í dag. Hún sagði
upp störfum við lok dagsins í dag.
Við óskum henni að sjálfsögðu
velfarnaðar í nýjum störfum.“
Guðríður skrifar hins vegar:
n Tala um mikla starfsmannaveltu á litlum vinnustað n Meint afskipti af einkalífi starfsfólks
Innheimt-
ustofnun
sveitarfé-
laga Fjórar
konur stíga
fram og
deila reynslu
sinni af
yfirmanni.
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
MYND: HANNA/DV
Fyrrverandi
starfsfólk sakar
Innheimtustofnun
um ógnarstjórnun