Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 21
Páskafjör
12. apríl 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Markmið okkar er að vera lókal í öllu sem við gerum. Allur
fiskur kemur úr firðinum
og allt lambakjöt sem við
notum kemur frá bænum
Helgafelli, við tökum 200
skrokka frá þeim í heimtöku,
vinnum allt kjöt frá grunni
og nýtum allt af lambinu.
Nautakjötið kaupum við
frá ýmsum nálægum
stöðum, við látum slátra
fyrir okkur, tökum heim,
úrbeinum og gerum úr
því hamborgara,“ segir
Sæþór H. Þorbergsson,
bryti á Narfeyrarstofu í
Stykkishólmi. Sæþór og
eiginkona hans, Steinunn
Helgadóttir, eru eigendur
staðarins.
Narfeyrarstofa er
rótgróinn staður þar sem
sífelld þróun og nýsköpun
á sér stað í matargerð.
„Við höfum átt þetta síðan
2001 og erum enn á sömu
kennitölunni, geri aðrir
betur,“ segir Sæþór. Aukinn
ferðamannastraumur
til landsins síðustu ár
hefur haft sín áhrif á
gestasamsetninguna: „Hér
eru erlendir túristar í miklum
meirihluta en við erum líka
með töluvert af innlendum
fastakúnnum og það er
ekki bara fólk sem býr hér
í nágrenninu heldur líka
aðkomufólk.“
Narfeyrarstofa hefur
blómstrað hin síðari ár og
er opið á staðnum allan
ársins hring. „Síðasta
vetur var opið alla daga
vikunnar, ég hef aldrei séð
annað eins. Það er líka mikið
gistipláss hér í Stykkishólmi,
samtals 900 rúm í gistirými
á gistihúsum, hótelum og í
Airbnb-gistingu.“
Lengdur opnunartími um
páskana
Um páskana verður
opnunartíminn lengdur.
„Við ætlum þá að vera
með rauðvín mánaðarins
á tilboði, Tommasi Arele á
6.900 krónur og svo kokteil
á 1.500 krónur alla daga.
Einnig erum við að plana
nokkra viðburði svo það
er um að gera að fylgjast
með okkur á Facebook:
Narfeyrarstofa þar sem
við auglýsum viðburði og
lengdan opnunartíma,“ segir
Sæþór.
Að sögn Sæþórs sækja
erlendir ferðamenn
mikið í sjávarfangið
enda mikið úrval af
spriklandi ferskum fiski í
boði og afar ljúffengum
og hugvitsamlegum
sjávarréttum. „Hér er alltaf
fiskur dagsins í boði, í dag
er það hlýri og á morgun
verður það langa. Síðan er
það það þorskur, bláskel,
hörpuskel og margt fleira.“
Lambakjötið er líka
vinsælt og mjög fjölbreyttir
réttir í boði af fersku
lambakjöti sem er fullunnið
á staðnum: „Við erum
alltaf með steik dagsins
sem er breytileg eftir
atvikum, það getur verið
hryggur, læri, innanlæri,
skanki eða lund; síðan er
alltaf gúllassúpa í boði og
sérstakar lambapylsur,
sem við framleiðum, eru á
hádegismatseðlinum.“
Ódýr og hollur matur fyrir
börnin
Narfeyrarstofa er
fjölskylduvænn
veitingastaður sem gerir
hann að áhugaverðum
kosti fyrir fjölskyldur á
faraldsfæti. „Við erum með
sérstakan barnamatseðil
með þremur réttum þar
sem enginn réttur kostar
meira en 1.250 krónur og
ódýrasti rétturinn er á 850
krónur. Þetta er allt ferskur
og góður matur, fiskréttur,
kjötbollur sem við vinnum
hér sjálf og hamborgari.
Engir kjúklinganaggar eða
eitthvert drasl. Við bjóðum
börnum upp á ferskan og
hollan mat á vægu verði.“
Þess má geta að í
júní í fyrra útskrifaði
Narfeyrarstofa sinn fyrsta
matreiðslunema, Þorberg
Helga Sæþórsson, sem er
sonur þeirra hjóna.
Narfeyrarstofa er
til húsa að Aðalgötu 3,
Stykkishólmi. Símanúmer
er 533-1119. Nánari
upplýsingar á vefsíðunni
narfeyrarstofa.is. n
NARFEYRARSTOFA:
Framúrskarandi
matur í fallegu umhverfi