Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 31
FÓKUS - VIÐTAL 3112. apríl 2019
Ég er mjög gamaldags, ég er með
alla diskana, sem er kannski ekki
vesenið, en Dillon er minn stað
ur og stundum er ég föst hér út af
samviskunni, en samt ekki sam
viskunni af því þau bara gera allt
fyrir mig hér eins og að halda þetta
frábæra afmæli fyrir mig. En ef ég
kemst annað þá geri ég það.“
Amma rokk sem er eldri en
rokkið sjálft
Andrea er aldrei kölluð annað en
amma rokk og aðspurð hver fann
upp það viðurnefni segist Andr
ea ekki hafa hugmynd um það.
„Ég upphugsaði ekki þann titil, ég
hef ekki hugmynd um hver byrjaði
með hann upphaflega. Ég get verið
amma flestra sem eru hérna í dag,
jafnvel langamma. Viðurnefnið
gæti verið tengt útvarpinu af því
að ég var þar á tímabili með rokk
þætti, fimm kvöld vikunnar, en ég
hlusta á miklu fleira en það, svo er
spurning hvað er kallað rokk,“ seg
ir Andrea.
„Mér finnst bara öll flott tónlist
alveg frábær hvort sem hún heitir
popp eða rokk eða djass, ég er hins
vegar ekki vel að mér í klassík. En
ég hlusta á alla flóruna. Það er ekki
endilega hægt að bera saman tón
list, það er fátt í dag sem er illa gert
og margt er alveg framúrskarandi
vel gert. Það er alls konar mæli
kvarði, þetta er ekki eins og að gefa
rétt fyrir stærðfræði,“ segir Andrea,
sem alla föstudaga sér um að ræða
um plötu vikunnar á Rás 1, ásamt
Arnari Eggerti Thoroddssyni.
„Maður setur sig inn í heim við
komandi tónlistarmanns og dæm
ir út frá því. Stundum er verri plata
kannski skemmtilegri en betri
plata, plata getur líka haft meiri til
gang en önnur sem er fullkomnari
hvað tónlistina varðar.“
Þar sem hún hefur hrærst í tón
list allan þennan tíma, er við hæfi
að spyrja hvort hún hafi sjálf sung
ið eða leikið á hljóðfæri? „Nei, ég
syng bara með. Ég hef einu sinni
stigið á svið og sungið, það var hér
á Dillon í afmæli Stellu Hauks, vin
konu minnar, sem var ákveðin í að
verða ekki sextug og hélt af því til
efni tvenna tónleika, aðra þegar
hún var 59 ára og þá seinni þegar
hún varð sextug. Það voru all
ir búnir að syngja lag nema ég og
erfiðasta lagið var eftir: Mama Loo,
sem er ofsalega langt lag með mikl
um texta. Ég fékk þau ummæli að
ég hefði lúkkað vel með mækinn.
Sem betur fer var þetta ekki tekið
upp,“ segir Andrea og hlær, og seg
ist engu að síður alveg halda lagi.
„Þetta er eitthvað sem maður getur
æft sig í, en ég hef ekki haft metn
að í það.“
Músíkin eins og mannkynssaga
„Ég hef áhuga á músík og tónlistar
fólki, þetta er eins og mannkyns
saga að miklu leyti, stórmerki
legt fólk og margir textarnir alveg
óborganlegir, hugsaðu þér hvað
eru margir textar sem er búið að
búa til sem eru um alls konar.“
Aðspurð hver hennar uppá
haldstónlistarmaður sé, stendur
ekki á svari. „Bítlarnir eru besta
hljómsveit í heimi. Mér fannst þá í
fyrsta sinn einhver koma fram sem
var ekki að bugta sig og beygja fyrir
einhverju yfirvaldi. Þeir sögðu
sína skoðun. Fyrsta efnið sem
þeir koma með tengist sjötta ára
tugnum og rokki, svo byrja þeir að
semja sjálfir og verða á stuttum
tíma rosalega frumlegir. Að hlusta
á plöturnar þeirra sýnir hvað varð
mikil þróun og maður sér hvað
þeir voru góðir með því að hlusta
á upptökur með þeim.
Mér finnst svo gaman þegar
koma hreyfingar sem virka og
hafa virkilega áhrif á samtímann
og umhverfið, á hippatímabilinu
þá var mjög mikil fegurðardýrkun,
svo kom pönkið og gerði ófríðleik
ann mjög töff og kúl. Pönkararnir
voru líka hippar, það verður að
hræra upp til að allt falli ekki
saman og allir segi já og amen við
öllu. Það er ennþá fólk sem seg
ir að popparar eigi ekki að syngja
um pólitík. Hvaða hroki er það
að segja að popparar eigi ekki að
skipta sér af pólitík? Sumir eru jú
bara að syngja um ást og hamingju
og gera það á fallegan eða frum
legan hátt,“ segir Andrea. „Ný kyn
slóð er svo komin, sem byrjaði hjá
okkur með Sigur Rós, það er fólk
sem er með umhverfisvernd að
leiðarljósi. Ekki muna Sigur Rós
bara út af skattaskýrslu, þeir lögðu
mikið í umhverfisvernd og ég held
ekki að Jónsi sitji sjálfur og geri
skattaskýrsluna sína.“
Aðspurð hverjir séu uppáhalds
í íslenska tónlistarheiminum, seg
ist Andrea geta talið upp marga.
„Ég er oft feimin við að nefna ís
lenskt, þá skilur maður eitthvað út
undan; Hljómar, Trúbrot, Ragga
Gísla, Alvia Islandia, Jói G., sem
er reyndar látinn, Mánar frá Sel
fossi, Stuðmenn, hver nefnir ekki
þá hljómsveit, Emilíana Torrini,
Valdimar, Elly Vilhjálms, Dimma,
Sólstafir, Sigur Rós, Engilbert Jen
sen hefði átt að verða heimsfræg
ur með sína einstöku rödd og
Björgvin Halldórsson, þú getur
ekki hlustað á raddfegurri mann.
Það er eitthvað að þér ef þú þekk
ir hann ekki, Krummi, sonur hans,
er að gera frábæra hluti, það er svo
gaman þegar þetta erfist, það er
ekki sjálfgefið.“
Kynhneigðin aldrei tilkynnt
sérstaklega
Andrea er samkynhneigð og segist
aldrei hafa tilkynnt það sérstak
lega með því að koma út úr skápn
um. „Á sínum tíma vildi ég ekki
segja frá því út af dóttur minni,
en ég hef heldur ekki þurft að lifa
þannig að ég hafi þurft að skil
greina mig. Ég hef aldrei þurft að
skipta mínum heimi, sem ég er
þakklát fyrir, og ég er líka þakklát
þeim sem þurftu að gera það og
ruddu brautina fyrir aðra,“ segir
Andrea og bætir við að kynhneigð
og skilgreining á henni sé flók
in í dag: „En samt ekki jafnflók
in og undirflokkar rokksins. Fyrir
löngu ákvað ég að ég ætlaði ekki
að taka þátt í því, ég ætlaði ekki að
vita hvað „black metal“ eða „green
metal“ væri. Þetta er bara rokk og
annaðhvort er það gott eða ekki.
Kannski er það eins með kynvit
undina og gott að ýta á okkur með
það einu sinni enn að vera bara
frjálslyndur og vera ekkert að pæla
í þessu. Það er alveg númer eitt að
fólk sé frjálslynt og umburðarlynt.“
Andrea á eina dóttur, Laufeyju,
sem er fædd 1974, og þrjú barna
börn, sem verða 10, 18 og 23 ára
á árinu. Auk þess á hún uppeldis
soninn Áka, sem
hún eignaðist árið
1985. „Hann er að
gifta sig í sumar
og ég fer fyrst til
Bandaríkjanna í
forbrúðkaup, þar
sem hann býr og
starfar sem doktor
í sjávarlíffræði. Síð
an koma þau hjón
in hingað, konan
hans tilvonandi
er frábær stúlka af
sænskum ættum sem er líklega
ástæðan fyrir að hún er opin fyrir
því að vera á Íslandi.
Ég er svo sérvitur, ég vil ekki að
einhver segi mér að þessi bunki
megi ekki vera þarna. Ég vil hoppa
í kringum mína bunka ein,“ svar
ar Andrea aðspurð hvort hún sjálf
eigi maka. „Ég hef verið í sambúð
tvisvar sinnum, sem er bara alveg
fínt, en í dag er ég samt aldrei ein,
barnabörnin eru mikið hjá mér.
Yngri stelpan stakk upp á því um
daginn að ég fengi mér kött, þar
sem ég væri alltaf ein, og ég svar
aði því til að ég væri ekkert ein,
hún væri alltaf hérna!
Ástæðan þess að ég varð plötu
snúður að fullri atvinnu á sínum
tíma hér á Dillon er að þegar ég
varð fimmtug þá var ég vinnulítil
á tímabili. Mér var sagt upp í út
varpinu, þeir vildu breyta mér úr
föstum starfsmanni í „freelance“
og ég varð mjög móðguð yfir
því. Eftir stutt stopp á Bylgjunni
og Stjörnunni hætti ég að vera
móðguð og fór aftur á RÚV sem
„freelance.“ Eftir á að hyggja þá
er það frábær aðlögun að því að
verða eldri borgari. Þar sem ég er
ekki fastráðin þarf ég ekki að hætta
vegna aldurs og ég hef enn ekki
verið rekin. Auðvitað kemur að því
að ég verð rekin frá RÚV og þegar
það verður mun ég ekkert verða
móðguð yfir því.“ n
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
Tvær goðsagnir Andrea ásamt Robert Plant.
Billy slær botninn í ballið
Andrea endar öll kvöld á Dillon
með því að spila lagið Piano Man
með Billy Joel. „Allir dansa saman
í hring, og sumir mæta bara fyrir
dansinn og halda svo áfram niður
í miðbæ á frekara svall.“
Bítlarnir
bestir Andrea
árið 2004 með
dagatal bestu
hljómsveitar í
heimi.
Í útvarpinu
Andrea á Rás 2 árið 2013 með plötu Sigur Rósar, Kveikur.
„Mamma var rosalega
dugleg og því miður
erfði ég ekki mikið af því