Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Qupperneq 48
12. apríl 2019
14. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
FALLEGT ÚTLIT VÖNDUÐ HÖNNUN
Hefðir, handverk og framþróun. Nýja Inspiration línan hefur fallegt og gæðalegt útlit
í samraæmi við innri gæði. Hægvaxta fura, náttúrulegt latex, þéttofin bómull og okkar eigið
gormakerfi úr sænsku karbon stáli gefur óviðjafnanleg þægindi og stuðlar að góðum svefni.
VISUALLY COMPELLING. CAREFULLY ENGINEERED.
B
Y
S
T
E
D
dux.se
Heritage and craftsmanship combined with innovation. The new INSPIRATION™ collection and its tailored exterior, brings justice
to an ingenious inside. Slow grown pine, natural latex, high thread-count cotton and our very own, original, spring cassette
system, with interlocked springs made from Swedish steel. For unparalleled comfort and sleep.
THE ORIGINAL SINCE 1926
DUXIANA
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.is Háþróaður svefnbúnaður
Mæður eru
sonum
verstar!
Hvað er
Eva Ruza
að horfa á?
É
g viðurkenni að ég horfi
aðallega á sjónvarpsþætti
sem gera mig ekkert endi-
lega gáfaðri en ég er og
ég er algjör „reality“ fíkill. Mér
finnst fátt skemmtilegra en að
sökkva mér inn í heim fræg-
ustu mæðgna í heimi í þættin-
um „Keeping up with the Kar-
dashians“. Ég lifi mig gríðarlega
mikið inn í líf þeirra og elska
dramað, glamúrinn og vesenið
í þeim. Ég er að sega ykkur það,
þar er enginn fjölskylda með
tærnar þar sem þær hafa hæl-
ana í dramanu. Núna bíð ég
til dæmis spennt eftir Tristan/
Jordyn-dramanu. (Tristan,
barnsfaðir Khloé fór í sleik við
Jordyn sem var besta vinkona
Kylie, sem er systir Khloé).
Geggjað sjónvarp!
Netflix-þættirnir
„Riverdale“ eru búnir að fanga
mig, en ég var
mjög sein að
uppgötva þá.
Um leið syrgi
ég vin minn
Luke Perry
sem lék í þátt-
unum, en
hann lést
fyrir ekki
svo löngu.
G
uðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra mætti
Þorsteini Sæmundssyni,
þingmanni Miðflokks-
ins, í Kastljósi í vikunni til þess
að ræða þriðja orkupakkann.
Lenti Guðlaugur upp við vegg
þegar rætt var um valdafram-
sal og beitti þá gamalkunnu
bragði; að vaða í þáttarstjórn-
andann sem að þessu sinni var
Einar Þorsteinsson.
Til umræðu var álitsgerð
Stefáns Más Stefánssonar laga-
prófessors um orkupakkann
og valdaframsal til ESA. Í stað
þess að svara spurningu með
yfirvegun brást Guðlaugur illa
við og vændi þáttarstjórnanda
um að hafa ekki kynnt sér mál-
ið. Veikti hann þar með mál-
stað sinn og Miðflokksmaður-
inn gekk frá
viðtalinu
sem hinn
yfirveg-
aði af þeim
tveimur.
Guðlaugur
í vanda
Móðir freistar þess að knésetja son sinn
A
lþjóðlega Reykjavíkur-
skákmótið er í fullum
gangi í Hörpu. Þar etja
kappi um 240 keppend-
ur frá 32 þjóðlöndum og á öllum
aldri. Ein eftirtektarverðasta skák-
in hingað til er viðureign Lenku
Ptacnikovu við ellefu ára gamlan
son sinn, Adam Omarsson, í
fimmtu umferð mótsins, sem fram
fór á fimmtudagskvöldið. Úrslit
skákarinnar voru ekki kunn þegar
blaðið fór í prentun. „Þetta er lík-
lega einsdæmi í íslenskri skák-
sögu, sérstaklega á svo sterku al-
þjóðlegu móti. Það hafa áður verið
viðureignir milli feðga en ég minn-
ist þess ekki að íslensk mæðgin
hafi att kappi á slíku móti,“ segir
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands. Lenka hefur
um árabil verið sterkasta íslenska
skákkonan en Adam er að stíga sín
fyrstu skref í alþjóðlegri keppni.
„Strákurinn er að standa sig vel en
móðirin er mun sigurstranglegri,“
segir Gunnar. Þess má geta að fað-
ir Adams, Omar Salama, er að-
stoðarmótsstjóri og tryggði hann
að viðureignin færi fram eftir sett-
um reglum.
Gunnar segir erlenda gesti vera
himinlifandi með umgjörð móts-
ins og sérstaklega vettvang þess,
Hörpu. „Reykjavíkurskákmótið er
orðið eitt virtasta, opna skákmót
heims og flesta skákferðamenn
dreymir um að tefla í mótinu. Að-
dráttarafl Hörpu leikur þar stórt
hlutverk,“ segir Gunnar.
Í dag, föstudag, er gert eins
dags hlé á Reykjavíkurmótinu
vegna Evrópumótsins í Fischer-
slembiskák. „Fischer þróaði þetta
afbrigði við skákina á sínum tíma.
Munurinn er sá að fyrir hverja
umferð í mótinu er mönnum fyrir
aftan peðin raðað á handahófs-
kenndan hátt. Þetta gerir að verk-
um að þekking sterkra skákmanna
á byrjunum gagnast þeim ekkert.
Þetta er skemmtilegt tilbrigði við
klassísku skákina sem nýtur sífellt
meiri vinsælda. Okkur fannst við
hæfi að veita þessari uppfinningu
Íslendingsins, Bobbys Fischer,
rými á skák-
hátíðinni
okkar,“
segir
Gunnar.