Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 8
8 15. mars 2019FRÉTTIR
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
er hún meðlimur í leynilegum
hópi á Facebook fyrir fólk með
sama áhugamál. Sagðist hún vel
geta hugsað sér að starfa sem
heimavinnandi húsmóðir enda
hefur hún gaman af heimilisstörf
um.
Þá kom einnig fram að fráfar
andi dómsmálaráðherra Íslands
drekkur ekki kaffi. Á vef Sjálfstæð
isflokksins kemur fram að hún
„fylgi trú liðum sínum í fótbolta
og hefur alla tíð haldið með KR,
Urug uay eða Íslandi.“
Harðlega gagnrýnd
Sigríður var dómsmálaráðherra í
ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
sem mynduð var af Sjálfstæðis
flokknum, Viðreisn og Bjartri
framtíð. Sú ríkisstjórn sprakk að
eins átta mánuðum eftir að hún
var mynduð. Fallið má rekja til
þess þegar Hjalti Sigurjónsson
fékk uppreist æru. Þá komu í ljós
tengsl við fjölskyldu Bjarna Bene
diktssonar forsætisráðherra en
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna,
gaf Hjalta meðmæli. Þá kom í ljós
að Sigríður upplýsti Bjarna, um
sumarið 2017, en ekki aðra í ríkis
stjórninni um að faðir hans hefði
gefið Hjalta meðmæli.
Í kjölfarið sleit Björt fram
tíð stjórnarsamstarfinu. Þann 11.
september kom í ljós að Sigríð
ur hafði gengið lengra í upplýs
ingaleynd um annan barnaníðing,
Róbert Downey, en upplýsingalög
heimila. Var hún harðlega gagn
rýnd fyrir að neita bæði þolend
um og fjölmiðlum um gögn er
vörðuðu uppreista æru hans.
Þá sagði Sigríður að hún vildi
skoða hvernig væri staðið að
því að veita mönnum upp
reisn æru og þá hvort
allir ættu að eiga rétt
á slíku. Sagðist hún
einnig vilja breyta
lögum um upp
reisn æru þannig
að ekki yrði hægt
að sækja um slíka
meðferð.
Um svipað
leyti var gerð
könnun sem
framkvæmd var
af Maskínu og
Stundinni. Þar kom í ljós að 72,5
prósent stuðningsmanna Sjálf
stæðisflokksins vildu að hún segði
af sér.
Sagði af sér
Leið Sigríðar átti síðan eftir að
liggja aftur í dómsmálaráðuneytið.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn,
Vinstri græn og Framsóknarflokk
urinn mynduðu ríkisstjórn eftir
kosningar 28. október 2018 sett
ist Sigríður á ný í sinn gamla stól.
Helsta mál sem hún hefur haft að
komu að er ný persónuverndar
reglugerð sem kveður á um auk
ið hlutverk eftirlitsstofnana og
á að styrkja grundvallarréttindi
einstaklinga í stafrænum heimi
og með því tryggja rétt þeirra til að
gleymast.
Sigríður sagði síðan af sér emb
ætti þann 13. mars síðastliðinn.
Afsögnina má rekja til þess að árið
2017 skipaði Sigríður 15 dóm
ara við hinn nýja Landsrétt. Fjórir
dómaranna sem metnir voru hæf
ir af hæfnisnefnd voru ekki skip
aðir af Sigríði, og leituðu þeir allir
réttar síns og unnu mál sitt.
Þegar Landsréttur tók til starfa
lagði lögmaðurinn Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson fram þá kröfu fyrir
hönd síns skjólstæðings, að einn
dómari, Arnfríður Einarsdóttur,
sem skipuð var af dómsmálaráð
herra í stað eins umræddra fjór
menninga, yrði dæmd vanhæf
vegna skipunarinnar.
Þeirri kröfu var hafnað og var
sú ákvörðun kærð til Hæstaréttar,
sem staðfesti dóm Landsréttar.
Sigríður var harðlega gagnrýnd í
kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar
og þess krafist að hún segði af
sér embætti vegna málsins,
en stjórnarandstaðan lagði
fram vantrauststillögu gegn
henni, sem var felld.
Því leitaði Vilhjálmur
til Mannréttindadóm
stóls Evrópu, sem hef
ur nú staðfest að dómara
skipan Sigríðar var ekki
réttmæt. Með því að skipta
fjórum umsækjendum af lista út
fyrir fjóra sem metnir höfðu verið
minna hæfir sagði Mannréttinda
dómstóllinn að Sigríður Andersen
hefði með öllu sniðgengið gild
andi lög, og þar með varð skip
unarferlið sjálft í andstöðu við þá
grundvallarreglu réttarríkisins að
dómstólar skuli skipaðir með lög
um.
Fyrst eftir að fregnir bárust af
niðurstöðunni var Sigríður And
ersen brött. Þann 12. mars kvaðst
hún ekki ætla að segja af sér.
„Ég mun ekki gera það. Ég hef
ekki ástæðu til þess,“ sagði Sigríður
í samtali við RÚV og bætti við að
dómurinn hefði komið henni á
óvart.
Daginn eftir var komið annað
hljóð í strokkinn. Þá boðaði Sig
ríður til blaðamannafundar og til
kynnti að hún myndi segja af sér.
Sjálf orðaði hún það á þann hátt að
hún væri að stíga til hliðar. Þing
menn geta stigið til hliðar og þá
varaþingmenn tekið sæti þeirra en
sama gildir ekki um ráðherra. Sig
ríður sagði því einfaldlega af sér
sem dómsmálaráðherra.
Sigríður sagði á þeim fundi að
Katrínu Jakobsdóttur væri ekki
kunnugt um ákvörðun hennar.
Hún myndi væntanlega lesa um
hana í blöðunum.
Þegar Katrín var spurð hvort
Sigríður ætti afturkvæmt í emb
ættið var svarið einfaldlega: „Það
er ekki tímabært að segja til um
það.“ n
Unglingsárin Sigríður tók Buffaló-tískunni vel.