Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 19
UMRÆÐA 1915. mars 2019
Spurning vikunnar Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
„Mér finnst rosalega leiðinlegt að
þurrka af og þrífa, meira að segja að skúra.“
Gunnar Hansson
„Að setja í uppþvottavél.“
Kristófer Liljar Fannarsson
„Að ganga frá
þvottinum.“
María Beck
„Að strauja.“
Ragnheiður Gissurardóttir
Sandkorn
Kúnstin að tapa með reisn
É
g hef teflt skák frá því að ég
var á barnsaldri. Ég segi ekki
að þeim tíma sem ég hef eytt
í íþróttina hafi alltaf verið vel
varið en við skákborðið lærði ég þó
mikilvægar lexíur. Að tapa. Og ekki
síður að horfast í augu við mistök
mín.
Það skal enginn halda að það sé
auðvelt að tapa í skák, sérstaklega
hefðbundnum kappskákum
sem taka oft fimm til sex klukku
stundir. Maður mætir til leiks með
heilann að vopni og byrjar að
hreyfa mennina samkvæmt öllum
kúnstarinnar reglum. Á móti
manni situr andstæðingur, sem
getur verið á hvaða aldri sem er,
og gerir slíkt hið sama. Skyndilega
gerir maður mistök sem kosta
mann skákina. Stundum er maður
mátaður strax en ég hef líka lent í
því að vera þrjár klukkustundir að
berjast í verri stöðu gegn náunga
sem smjattaði alltaf á munnvatni
allan tímann og var með ógeðslegt
skítaglott á vörunum. Ég náði ekki
að bjarga mér og varð að gefast
upp. Niðurlægingin var algjör og
ég hef upplifað fleiri slíkar en ég
kæri mig um að rifja upp. Töp sem
voru tilkomin vegna minna eigin
mistaka. Það er erfitt að horfast í
augu við eigin breyskleika.
Eins og frægt er komst
Mannréttinda dómstóll Evrópu
að þeirri niðurstöðu að Sigríður
Á. Andersen, dómsmálaráð
herra landsins, hafi gert alvar
leg mistök. Mistök sem gerðu það
að verkum að dómskerfi okkar
Íslendinga er í uppnámi. Fyrstu
viðbrögð dómsmálaráðherrans
ollu miklum vonbrigðum. Hún
mætti niðurstöðunni af hroka
og gerði lítið úr vægi dómstóls
ins. Þá benti hún á að dómurinn
hefði klofnað í afstöðu sinni til
málsins, sem ég vona að verði
ekki réttlæting sakamanna í dóms
málum framtíðarinnar.
Degi síðar var komið annað
hljóð í strokkinn og það skal
enginn segja mér að Sigríður
hafi sjálf komist að þeirri niður
stöðu. Sennilega hefur hún
ofmetið stuðning við sig og séð
þann kost vænstan að stíga til
hliðar (lesist: segja af sér). Ég efa
það ekki að Sigríður hafi upplifað
mikla persónulega niðurlægingu
vegna málsins. Það er erfitt að vera
dreginn til ábyrgðar vegna mistaka
sinna, sérstaklega ef maður
vill ekki horfast í augu við þau.
Ég held að flestir Íslendingar beri
meira traust til Mannréttinda
dómstóls Evrópu en íslenskra
dómstóla eða stjórnvalda. Þess
vegna er beinlínis hrollvekjandi
að heyra málsvara flokksins gefa
það til kynna að lítið sem ekkert
sé að marka þessa niðurstöðu.
Ég tel að það sé ekki til of mikils
mælst að íslenskir ráðherrar kunni
að standa og falla með sínum
gjörðum, horfast í augu við mistök
sín og tapa með reisn. Það er fátt
sem bendir til þess að Sigríður
Á. Andersen hafi lært þá lexíu
og því á hún ekkert erindi aftur í
ráðherrastól. n
Katrín hnyklar vöðvana
Augljóst var að Katrín Jakobs-
dóttir beitti Sjálfstæðismenn
miklum þrýstingi til þess að
koma Sigríði Á. Andersen úr sæti
dómsmálaráðherra. Á þriðju
dag var ekkert fararsnið á Sig
ríði og hún hefur talið stöðu
sína trausta. En annað kom
á daginn eftir að Katrín sneri
heim frá New York.
Þegar Sigríður boðaði til blaða
mannafundar sagðist hún ætla
að lesa upp stutta yfirlýsingu.
Við tók hins vegar nærri hálf
tíma ræða þar sem Sigríður
reifaði enn á ný allar afsakanir
sínar. Þegar hún loks kom sér
að því að segja blaðamönn
um frá afsögninni gerði hún
það þannig að enginn skildi
nákvæmlega hvað hún var
að gera. Erfitt var að kyngja
stoltinu.
Út á við stendur Katrín sterkt
eftir þessa uppákomu, en
spurningin sem eftir situr er
hvort hún hafi lofað einhverju
á móti.
Hvað fær Sigríður?
Eftir atburði liðinnar viku
situr Sigríður
Á. Ander sen
eftir með póli
tískt svöðu sár.
Sigríður hefur
lengi verið um
deild en staða
hennar innan
Sjálfstæðis
flokksins hefur verið sterk enda
er hún góð vinkona vina sinna.
Sjálfstæðismenn sem falla af
stalli fá gjarnan góðar stöð
ur í kjölfarið, annaðhvort á
vegum hins opinbera eða í
einka geiranum. Geir H. Haarde
var gerður að sendiherra í
Wash ington, Davíð Oddsson
að ritstjóra Morgunblaðsins
og Hanna birna að formanni
utan ríkismálanefndar og
starfar hún nú sem sérstakur
ráðgjafi UN Women.
Ætla má að Sigríður fái einnig
góða stöðu, annaðhvort í
þinginu eða annars staðar.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Orðið á götunni:
Ráðherrastóll er 25 prósent vinna
O
rðið á götunni er
að nú sé lag að
stórfækka ráð
herraembættum.
Þórdís Kolbrún Gylfa
dóttir Reykfjörð tók
í vikunni við emb
ætti dómsmála
ráðherra, sem
áður hét dóms
og kirkjumála
ráðherra. Fyrir
gegnir hún
stöðu iðnaðar,
nýsköpunar og
ferðamálaráð
herra.
Auðsýnt er að ráðherraembætti er
ekki full vinna. Ætla má að hver ráð
herrastóll sé um það bil 25 prósent
vinna. Hægt sé að klára öll mánaðar
verkefnin á einni viku og skella sér
síðan í golf eða til Tene og hafa það
gott fram að útborgunardegi. Þó að
verkefnin séu fá þá er vitaskuld greitt
upp í topp fyrir vinnuna.
Glöggt má sjá að Þórdís Kol
brún er duglegri og metnaðarfyllri
en flestir kollegar hennar, því hún
reynir að fylla upp í mánuðinn.
Sumir þeirra vinna hálfa vinnu eins
og Lilja Dögg sem er mennta og
menningarmálaráðherra. Sigurður
Ingi er samgöngu og sveitar
stjórnarmálaráðherra. Ásmundur
Einar félagsmálaráðherra sá að
sér og bætti barnamálaráðherra
stólnum við. Meðal letingja má
nefna Guðlaug Þór Þórðarson utan
ríkisráðherra og Svandísi Svavars
dóttur heilbrigðisráðherra. Þau
hljóta að vera í Candy Crush þrjár
vikur í mánuði.
Miðað við vinnugetu heilbrigðs
starfsmanns ætti að vera hægt að
fækka ráðherrum niður í þrjá og
hlaða á þá eins og gert er við Þór
dísi nú. Fram til ársins 1938 voru
aðeins þrír ráðherrar á Íslandi, for
sætis, fjármála og atvinnumála. Það
gekk fínt.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is