Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 25
KYNNINGARBLAÐ
15. mars 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Stóra bílablaðið
Höfðahöllin er rótgróin bílasala, staðsett að Funahöfða 1, í hjarta
gamla bílasöluhverfisins á
Höfðanum. „Við erum mitt
á milli Bílanausts og AB
varahluta, en hér hafa verið
bílasölur í hátt í 40 ár,“ segir
eigandi bílasölunnar, Indriði
Jónsson.
Alveg ólæknandi ástand
„Sjálfur hef ég verið í þessu í
um tíu ár og rekið bílasölu frá
2009. Áður var ég að vinna í
27 ár í banka en ég færði mig
yfir í bílabransann því ég fékk
það uppáskrifað að ég væri
með ólæknandi bíladellu.
Vegna þessa ástands míns
hef ég öðlast haldgóða
þekkingu á þeim bílum sem
ég tek að mér að selja,“ segir
Indriði.
Skjalafrágangur gegn lágri
þóknun
Höfðahöllin býður upp
á hentugan kost fyrir þá
sem eru að kaupa og selja
bíla. „Við tökum að okkur
skjala frágang á öllum bíla
viðskiptum gegn lágri þóknun,
séu aðilar búnir að koma
sér saman um viðskipti. Við
útvegum kaupendum einnig
ýmiss konar fjármögnun
vegna bílakaupanna. Við
erum að ganga frá sams
konar skjölum og sölu
pappírum á hverjum degi og
ættum því að kunna þetta.“
Innflutningur og sala á
notuðum á bílum
„Við seljum notaða bíla
fyrir bæði einstaklinga og
fyrirtæki, hvort heldur er fyrir
bílaumboð eins og Suzuki
og Brimborg eða bílaleigur.“
Höfðahöllin hefur einnig flutt
inn nýlega bíla með góðum
árangri í nokkur ár og oft
boðið upp á spennandi bíla á
frábærum verðum.
„Það er unun að koma til
okkar að skoða bílana sem
við erum að selja hverju sinni.
Við bjóðum upp á glæsilegan,
bjartan innisal fyrir um 14–15
bíla og gott og vel hirt úti
svæði. Það er því auðvelt að
skoða bíla hjá okkur, jafnvel
þrátt fyrir snjóhörkur.“
Komdu í bíló!
„Við bjóðum alla velkomna
til okkar að skoða úrvalið
en bílana má einnig skoða
á heimasíðu okkar BILO.is
en við leggjum mikið upp úr
góðri myndatöku á bílunum
sem eru til sölumeðferðar hjá
okkur. Við förum ýmsar leiðir
til að kynna úrvalið, t.d. erum
við mjög virkir á Facebook:
Bílasalan Höfðahöllin, þar
sem við eigum metfjölda að
dáenda,“ segir Indriði.
Bílasalan Höfðahöllin,
Funahöfða 1.
Nánari upplýsingar á bilo.is
eða í síma 567-4840.
BÍLASALAN HÖFÐAHÖLLIN:
Alls konar bílar til sölu