Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Side 28
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Traust fagmennska í yfir 40 ár
Sérstaða Skorra felst í því að við höfum haldið okkur við það að selja sænsku Tudor-raf-
geymana í um 40 ár. Það hefur verið
okkur og bíleigendum til gæfu að við
höfum haldið okkur við þetta sérsvið
og ræktað það,“ segir Lárus Björns-
son, rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu
Skorra ehf. sem var stofnað árið
1978.
Tudor-rafgeymar eru rómaðir fyrir
gæði og passa í allar gerðir bíla, en
einnig í vinnuvélar, mótorhjól, skip
og öll frístundatæki sem notuð eru
á sumrin. Skorri sinnir öllum slíkum
þörfum.
„Flestir nýir bílar, sem ekki eru
rafbílar eða hybrid, eru með svokallað
stopp-start kerfi þar sem bíllinn
drepur á sér þegar hann er stöðvaður
og ræsir aftur þegar stigið er á
bensíngjöfina, en þetta bæði sparar
eldsneyti og er umhverfisvænt. Það
þarf sérstaka rafgeyma í þessa bíla,
sem Tudor-framleiðir,“ og eru viður-
kenndir af öllum bílafrmleiðendum
segir Lárus.
Hraðþjónusta með endurgjalds-
lausri bilanagreiningu
Að sögn Lárusar endist rafgeymir
í venjulegum fjölskyldubíl í fjögur til
sex ár. „Við rekum hraðþjónustu hér
þannig að þú getur mætt með bílinn
án þess að panta tíma og látið okkur
mæla endurgjaldslaust. Við höfum
mjög góð tæki til bilanagreininga og
ef eitthvað annað amar að en raf-
geymirinn getum við vísað á verk-
stæði sem við erum í samstarfi við.“
Farartækin sem eingöngu eru
notuð á sumrin
„Nú þegar líður að vori er mikilvægt
huga að farartækjum sem ekki eru
notuð á veturna og hafa ekki verið
hreyfð síðan í haust. Það eru t.d.
mótorhjól, húsbílar, hjólhýsi og fleiri
afþreyingartæki sem eingöngu eru
notuð á sumrin. Mjög mikilvægt er að
hlaða rafgeymana í þessum tækjum
af og til yfir veturinn, því annars verða
þeir fyrir óafturkræfum skemmdum,“
segir Lárus. „Best er að hafa þá
í stöðugu sambandi við vaktara/
hleðslutæki sem Skorri selur margar
stærðir af. Allir geta komið í Skorra og
látið mæla og athuga ástand raf-
geymisins eftir vetrardavalann.“
Það eru eingöngu þjálfaðir fag-
menn sem vinna hjá Skorra og þeir
tryggja að bíleigendur geti ávallt
treyst á þjónustu þeirra þegar kemur
að rafgeymum. Sem betur fer er
þetta ekki dýr fjárfesting. Rafgeymir í
venjulegan fjölskyldubíl kostar á bilinu
13 til 20 þúsund krónur og í flestum
tilvikum er ísetningin ódýr því hún
tekur stuttan tíma.
Skorri er með yfir 190 stærðir af
rafgeymum á lager til að tryggja að
ávallt sé til rafgeymir í það tæki sem
um ræðir hverju sinni. Kappkostað
er að hafa ávallt ferska og góða
rafgeyma á lager því hillulíf þeirra er
takmarkað. Þess vegna eru pantaðir
rafgeymar til landsins tvisvar í
mánuði.
„Einnig seljum við hleðslutæki
sem líka eru vaktarar og mega vera
stöðugt í sambandi yfir hinn langa
vetur á Íslandi, en það getur reynst
vel fyrir bíla og tæki sem ekki eru í
notkun á veturna.“
Skorri er til húsa að Bíldshöfða
12 og símanúmer er 577-1515. Allar
nánari upplýsingar eru á nýrri og
endurbættri vefsíðu, skorri.is.
SKORRI EHF. SELUR TUDOR-RAFGEYMA: