Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 32
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Heildarlausn á viðhaldi bílastæða
BS Verktakar hafa árum saman sérhæft sig í bílastæðamálun, vélsópun, malbikun,
malbiksviðgerðum og ýmsu viðhaldi
umhverfis fjölbýlishús, fyrirtæki og
stofnanir, þar á meðal viðhaldi bíla
stæða. Fyrirtækið býr yfir öflugum
tækjakosti á þessum sviðum ásamt
mikilli reynslu og verkþekkingu sem
tryggja vönduð vinnubrögð í hvívetna.
BS Verktakar eru fyrsta fyrirtækið
á Íslandi sem býður heildarlausn á
viðhaldi bílastæða.
Bílastæðamálun
Í meira en þrjá áratugi hafa BS
Verktakar boðið fyrirtækjum, bæjar
félögum, húsfélögum og fleiri aðilum
upp á málun bílastæða og aðrar
skyldar merkingar, t.d. stæði fatlaðra,
örvamerkingar, gangbrautarmerk
ingar og bannsvæðamerkingar o.fl.
Fyrirtækið býr yfir fullkomnum tækja
kosti fyrir þessi verkefni sem ásamt
hárréttum efnum tryggja hámarks
endingu merkinganna.
Þess má geta að mjög stuttur
afgreiðslutími er á öllum bílastæða
skiltum en þau er hægt að velja í
netverslun Verktaks á verktak.is. Allar
uppsetningarlausnir eru í boði.
Malbikun og malbiksviðgerðir
Malbiksskemmdir breiða fljótt úr sér
og við það eykst viðgerðar kostnaður.
Þess vegna er afar mikilvægt að
gert sé við hið fyrsta ef malbikið er
farið að skemmast. Göt og holur
í malbiki geta einnig valdið tjóni á
bílum. Þess vegna er mikilvægt að
gera við skemmdir í malbiki áður en
stærri holur myndast. BS Verktakar
bjóða upp á alhliða malbiks viðgerðir,
malbikssögun og lagningu nýs
malbiks.
BS Verktakar hafa jafnframt tekið
í notkun búnað til viðgerða með
geislahitun en í sumum tilfellum er sú
tækni jafnvel betri en sú hefðbundna.
Fulltrúi fyrirtækisins ráðleggur verk
kaupa um rétt val á aðferð hverju
sinni.
Hægt er að óska eftir tilboðum
án skuldbindinga og endurgjalds
laust í símum 5514000, 690800, í
gegnum netfangið verktak@verktak.is
eða á verktak.is/fyrirspurn
Vélsópun og lóðaumsjón
BS Verktakar bjóða vélsópun á
bílaplönum. Boðið er upp á háþrýsti
þvott fyrir bílaplön en það er oft
nauðsynlegt, sérstaklega þegar plön
hafa verið sandborin að vetri.
BS Verktakar sérhæfa sig jafn
framt í þrifum og viðhaldi á aðkomu
svæðum fyrirtækja og fjölbýlishúsa,
t.d. tyggjóhreinsun, veggjakrots
hreinsun, þvotti á fasteignum,
gluggum og bílageymslum; fjarlægja
einnig bílastæðamerkingar og drasl
af lóðum.
Í boði eru þjónustusamningar og
reglulegt viðhald þar sem hentar.
Ýmiss konar önnur þjónusta er
í boði, t.d. kantsteinaviðgerðir og
önnur vinna í tengslum við kantsteina,
sem og ýmiss konar jarðvinna og
garðvinna. Nánari upplýsingar eru á
heimasíðu fyrirtækisins, verktak.is.
BS Verktakar eru til húsa að
Suðurlandsbraut 32, Reykjavík.
Símanúmer er 5514000 og netfang
er verktak@verktak.is.