Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 37
Stóra bílablaðið 15. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Kistufell er gamalgróið fyrirtæki sem var stofnað fyrir hartnær sjötíu árum af bræðrunum
Jónasi og Guðmundi Jónassonum
sem fæddust einmitt á bæ undir
Kistufelli í Esjunni. „Það er náttúrlega
heilmikil saga sem fylgir fyrirtækinu
sem hefur starfað linnulaust frá
því 1952. Ég er til dæmis þriðji
ættliðurinn til þess að sjá um rekstur
á Bifreiðaverkstæðinu Kistufelli,“ segir
Guðmundur Ingi Skúlason, barnabarn
Guðmundar.
Á tíunda áratugnum skipt
ist fyrirtækið upp í tvö fyrirtæki.
Annars vegar varahlutaverslun og
hins vegar vélaverkstæði sem er sá
hluti fyrirtækisins sem Guðmund
ur sér um í dag. Heitir fyrirtækið
nú Bifreiðaverkstæðið Kistufell og
sérhæfir það sig í bílum og viðgerðum
á þeim, ásamt vélavinnu. Það er
staðsett að Tangarhöfða 13.
„Áður vorum við meira í að gera
upp vélar og sinna þeim hluta bílsins,
en í dag hefur reksturinn meira
þróast í bæði vélavinnu og almennar
bifreiðaviðgerðir. Eins vorum við
meira í að þjónusta önnur verkstæði
og sinna bílaumboðum. Nú höfum við
fært reksturinn meira yfir í einkabílinn
þó svo við séum enn að sinna stærri
kúnnum sem eru stór hluti af okkar
viðskiptavinum,“ segir Guðmundur.
Bæði með varahluti og viðgerðir
Bifreiðaverkstæðið Kistufell veitir
hagkvæma og samkeppnishæfa
þjónustu í bílaviðgerðum en sérhæfir
sig jafnframt í innflutningi á varahlut
um frá viðurkenndum aðilum sem
framleiða parta í allar tegundir véla.
„Við erum með túrbínur og spíssa í
dísilvélar, stimpla, legur og pakkn
ingar. Á verkstæðinu erum við með
fimm lyftur þar sem við gerum við
allar tegundir bifreiða, smábíla, jeppa,
rútur, vörubíla og fleira. Við sinn
um öllum bílaviðgerðum almennum
sem sértækum. Þá skiptum við um
tímareimar, hjólalegur, spyrnur,
bremsur, headpakkningar og raunar
allt sem viðkemur bifreiðum og
viðhaldi á þeim,“ segir Guðmundur.
Endurvinnslan fyrir umhverfið og
veskið
Í raun má segja að Bifreiða
verkstæðið Kistufell sé gamalgróið
endurvinnslufyrirtæki þar sem þeir
eru einnig í því að endurbyggja vélar.
„Okkur finnst mikilvægt að bjóða
upp á þessa þjónustu fyrir þá sem
vilja endurnýta hlutina í stað þess
að kaupa alltaf nýtt. Oft á tíðum eru
menn að fjárfesta í nýjum tækjum í
stað þess að fara með í viðgerð, þrátt
fyrir að það sé í raun hagstæðara að
gera við. Okkar mottó er að gera við,
endurnýta og endurvinna það sem
hægt er þangað til það þarf að skipta
út. Það er bæði betra fyrir umhverfið
og seðlaveskið,“ segir Guðmundur.
Alltaf dýrast að trassa viðhaldið
Guðmundur bendir á að bílaviðgerðir
séu og verði alltaf dýrar. „Það er þó
alltaf dýrara að sinna ekki viðhaldi
á bifreiðinni. Ódýrasta tryggingin
til þess að þurfa ekki að lenda á
bifreiðaverkstæðinu hjá mér er að
smyrja bílinn reglulega. Og ef menn
hugsa skynsamlega um tækin sín þá
endist þetta auðvitað töluvert lengur.
Þetta vita allir en stundum þarf að
impra á þessu,“ segir Guðmundur.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.kistufell.com
Tangarhöfði 13, 110 Reykjavík
Sími: 5771313
Opið er á verkstæðinu alla virka
daga frá 08–17
Guðmundur Ingi Skúlason
Kistufell, bifreiða-
verkstæði með sögu