Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 51
FÓKUS - VIÐTAL 5115. mars 2019
P
atrekur Sólrúnarson er tutt
ugu og þriggja ára gamall
Íslendingur sem á og rekur
100 manna ræstingafyrir
tæki í Noregi. Fyrirtækið, Support
Services A/S, veltir hálfum
milljarði á ári en félagið stofnaði
Patrekur ásamt vini sínum þegar
þeir voru 18 ára gamlir. Norskir
fjölmiðlar hafa veitt fyrirtækinu
eftirtekt í gegnum árin sem varð
til þess að DV fjallaði stuttlega um
Patrek og afrek hans fyrir þremur
árum. Á dögunum átti Patrekur
síðan erindi til Íslands og settist
niður með blaðamanni til þess að
fara yfir ævintýrið sem byrjaði með
vinskap við múslímskan innflytj
anda og ryðgaðri skúringamoppu.
Erfið fyrstu ár í Noregi
Patrekur flutti til Noregs árið 2008,
þegar hann var þrettán ára gam
all, ásamt móður sinni og tveim
ur systrum. „Við fluttum til bæjar
ins Kongsberg mánuði áður en að
bankahrunið gekk yfir á Íslandi.
Það má því segja að tímasetningin
hafi verið heppileg. Æskuvinur
minn hafði einnig flutt út ásamt
fjölskyldu sinni aðeins fyrr. Þannig
vildi til að fyrr um sumarið hafði ég
heimsótt hann út til Noregs. Mér
líkaði sú dvöl afar vel. Sérstaklega
hvað veðrið var gott og því var ég
spenntur fyrir því að flytja til Nor
egs,“ segir Patrekur.
Þegar blákaldur hversdagsleik
inn í Noregi tók við þá var gleðin
skammvin. „Þetta var mjög erfiður
tími og ég var mjög einangraður.
Í rauninni var ég hálfþunglyndur
á þessum tíma. Þar sem ég kunni
ekkert í norsku þá var ég ekki inni
í neinu sem var í gangi í kennslu
stofunni né utan hennar. Ég man
að ég grátbað mömmu um að fá að
fara aftur til Íslands,“ segir Patrek
ur. Hann hafði alltaf verið góður
námsmaður en fljótt fjaraði undan
því. „Ég fékk hræðilegar einkunnir
og vanlíðanin var slík að ég skróp
aði oft í prófum,“ segir Patrekur.
Heppinn með stjúpföður
Hlutirnir áttu þó eftir að breytast.
Um leið og Patrekur hafði náð tök
um á norskunni fór hann aftur að
blómstra í námi. „Ég var svo hepp
inn að ég eignaðist frábæran stjúp
föður sem ég leit mjög upp til.
Hann hafði verið kennari í Noregi
og hjálpaði mér mikið með námið.
Þá fór allt að ganga mun betur,“ seg
ir Patrekur. Svo vel gekk honum að
hann fékk hæstu einkunn skólans í
norsku við útskrift. Þegar í mennta
skóla var komið þá tók Patrekur
námið enn fastari tökum, sérstak
lega þegar hann eygði tækifæri til
þess að útskrifast fyrr en ella.
„Menntaskólanámið í Noregi
er venjulega þrjú ár. Ég áttaði mig
hins vegar á því að ég gat skráð mig
í lokapróf í fögum þegar ég treysti
mér til þess og það gerði ég óspart.
Það endaði með því að ég útskrif
aðist eftir tvö ár,“ segir Patrekur.
Þrátt fyrir að hann elski að læra hef
ur frekara nám setið á hakanum,
enn um sinn. Patreki lá nefnilega á
að komast í eigin rekstur.
Á menntaskólaárunum kynntist
Patrekur sínum besta vini og sam
starfsfélaga, Ghazi Khder. Ghazi er
innflytjandi af kúrdísku bergi brot
inn en Patrekur þvertekur fyrir að
sameiginleg reynsla þeirra sem
innflytjenda hafi leitt þá saman.
„Reynsla okkar af því að vera inn
flytjandi í Noregi er allt öðruvísi.
Norðmenn líta á Íslendinga sem
frændur eða bræður en það er
frekar litið niður á þá sem flytja til
Noregs úr austri. Hann átti því mun
erfiðara uppdráttar en ég, en vann
sigur á þeim hindrunum,“ segir
Patrekur.
Þeim Ghazi varð vel til vina og
fljótlega fundu þeir sameiginlega
löngun til að stofna fyrirtæki og láta
til sín taka. „Við ræddum þetta mik
ið og vorum mjög spenntir að fara
út í einhvern rekstur. Við hugsuð
um þetta mjög stórt frá fyrstu tíð
og vorum fullir af bjartsýni. Það
var svo í raun tilviljun að ræstingar
urðu fyrir valinu. Faðir Ghazi hafði
reynslu af því að vinna við ræstingar
og þannig kom sú hugmynd til. Við
redduðum okkur síðan efnum og
ryðgaðri skúringamoppu og fórum
að taka að okkur stök verkefni sem
auglýst voru. Við reyndum yfir
leitt að skúra fyrir skólann,“ segir
Patrekur.
Töldu niður dagana til að stofna
fyrirtæki
Hann segir hlæjandi frá því að móð
ir sín hafi ekki verið sérstaklega
bjartsýn á þennan nýja starfsferil til
að byrja með, enda umgengni Pat
reks á heimilinu ekki alltaf til fyrir
myndar. „Henni fannst skrýtið að ég
nennti að byrja skúra hjá fyrirtækj
um en nennti því varla heima hjá
mér,“ segir Patrekur og hlær.
Félagarnir voru aðeins sautján
ára gamlir og þurftu að bíða til átján
ára aldurs til að stofna fyrirtæki.
„Við töldum niður dagana þar til
við gátum skráð fyrirtækið okkar og
það var stór stund þegar það gekk
í gegn,“ segir Patrekur. Til að byrja
með reyndist reksturinn þó erfiðari
en félagarnir bjuggust við.
„Við keyrðum um bæinn okk
ar og rukum inn í fyrirtæki til þess
að bjóða þeim þjónustu okkar.
Okkur var yfirleitt tekið hlýlega en
mjög fáir vildu gefa okkur tæki
færi, sem er kannski skiljanlegt í
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Patrekur
á og rekur
100 manna
fyrirtæki
í Noregi
n Stofnaði fyrirtækið 18 ára með vini
sínum n Velta hálfum milljarði á áriPatrekur
Sólrúnarson
MYND HANNA ANDRÉSDÓTTIR/DV