Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 56
56 15. mars 2019 Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 22. júní 1926 Í kringum aldamótin 1900 voru morðmál óalgeng á Íslandi. Það er ef frá eru talin dulsmál þar sem nýfædd börn voru bor- in út. Árið 1913 myrti Júlíana Silfa Jónsdóttir bróður sinn Eyjólf með því að byrla honum eitur. Í kjölfar- ið féll síðasti líflátsdómurinn á Ís- landi en hann var síðar mildaður. Ríkur verkamaður Eyjólfur Jónsson flutti til Reykja- víkur frá Snæfellsnesi árið 1912, þá tæplega fimmtugur að aldri. Hann kom til þess að vinna verka- mannavinnu og þótti fílefld- ur að burðum. Fæstir vissu þó að hann ætti bólgna sparisjóðsbók og meira að segja jarðir fyrir vest- an. Samanlagt átti hann fjár- muni upp á þrjú þúsund krónur, sem var mikill peningur á þeim tíma. Eyjólfur bruðlaði aldrei með peninga en lánaði fólki hins vegar án þess að taka vexti fyrir við- vikið. Ógiftur og barnlaus var Eyjólfur en talið var að hann ætlaði að arf- leiða unga stúlku í fóstri að fjármunum sínum. Gramdist þetta Júlíönu Silfu, systur hans, sem var þremur árum yngri. Júlíana hafði flutt til Reykjavíkur árið 1911 eftir að hún varð ekkja. En hún bjó við þröngan kost við Hverfisgötu með dætrum sínum tveimur og sjó- manni, að nafni Hannes Hansson, sem hún hafði tek- ið saman við. Slagsmál og hótanir Einn daginn kom Júlíana heim með mann og leyfði honum að dvelja á heimilinu í óþökk Hann- esar. Jón hét sá maður, var veik- ur, óvinnufær og hafði yfirgefið eiginkonu sína. Þegar Júlíönu og Hannesi lenti saman vildi hún að Hannes færi af heimilinu og gæfi eftir hluta eigna sinna til hennar. Fór svo að Júlíana og Hannes skildu og Júlíana flutti að Brekku- stíg með Jóni. Júlíana og Jón lifðu áfram í fátækt en Eyjólfur aðstoð- aði með því að borga húsaleiguna. Í staðinn fékk hann að gista þar og Júlíana sá um hann. Eyjólfur fékk einnig að geyma koffort með al- eigu sinni á Brekkustígnum, jafn- vel eftir að hann sjálfur fékk leigt herbergi að Dúkskoti í vesturbæ Reykjavíkur. Haustið 1913 kom upp deilu- mál á milli Eyjólfs og fyrrverandi vinnuveitanda hans. Deildu þeir um hver skuldaði hvorum pening og ætluðu fyrir dómstóla. Þegar Eyjólfur kom til að sækja skulda- viðurkenningu í koffortið var hana hvergi að finna og reiddist Eyjólfur þá svo að hann skemmdi læs- inguna. Kenndi hann Júlíönu um að hafa tekið plaggið. Lenti Eyjólf- ur í slagsmálum við bæði hana og Jón. Þau vísuðu honum á dyr og gengu líflátshótanirnar á milli þeirra. Síðar sá Eyjólfur eftir þessu, bað Júlíönu afsökunar og borg- aði henni lækniskostnað vegna meiðsla sem hún hafði hlotið í átökunum. Júlíana bar hins vegar ennþá kala til hans. Veikur eftir skyr Þann 1. nóvember þetta sama ár bankaði Eyjólfur upp á á Brekku- stígnum og Júlíana bauð honum inn til að þiggja kaffi og veitingar. Júlíana bar fram skyr með sykri sem Eyjólfur borðaði upp til agna. Fannst honum bragðið hins vegar ekki gott. Gaf hún honum einnig vel af brennivíni út í kaffið. Um kvöldið, þegar Eyjólfur var kominn heim í Dúkskot, kvart- aði hann yfir ónotum í maga við heimilisfólkið. Taldi hann skyrið hafa verið skemmt og um nóttina byrjaði hann að kasta upp. Fram á miðja nótt kastaði hann sífellt upp, var sárkvalinn og emjaði. Taldi heimilisfólkið í Dúkskoti að eitthvað undarlegt væri á seyði og að ælan væri „kvik.“ Næstu tvo daga fór Eyjólfur til vinnu en var þó mjög aumur og lasinn. Að kvöldi 3. nóvember fór hann að Brekkustíg og sótti koff- ortið. Áttu þau Júlíana þá hörð orðaskipti og sagðist Eyjólfur hafa orðið veikur eftir skyrið hennar. Þegar hann kom með koffortið að Dúkskoti sá hann að bæði vantaði sparisjóðsbókina og peninga úr buddu. Fór hann þá, ásamt tveim- ur mönnum úr Dúkskoti, til að sækja sparisjóðsbókina og Júlíana lét hann hafa hana eftir nokkurra rekistefnu. Rottueitur dauðaorsökin Eyjólfur hélt áfram að veikjast og vitjaði læknir hans í Dúkskot. Sagðist hann viss um að Júlíana og Jón hefðu eitrað fyrir sér. Hann varð slappari með hverjum degin- um og þann 10. nóvember missti hann málið og var meðvitundar- lítill. Var hann þá fluttur að spít- alanum á Landakoti. Læknarnir þar gátu hins vegar ekkert hjálpað honum og kvöldið 13. nóvember lést hann á spítalanum. Við krufningu degi síðar kom í ljós að Eyjólfur hafði látist vegna eitrunar. Að öllum líkindum fos- fórs sem er í rottueitri. Rottueitur tekur langan tíma til að drepa mann og herjar aðallega á lifrina sem gefur sig að lokum. Lögreglan í Reykjavík leit á dauða Eyjólfs sem sakamál og þann 15. nóvember var Júlíana handtekin. Strax um kvöldið var Júlíana dregin fyrir rétt í Hegn- ingarhúsinu við Skólavörðustíg. Játaði hún þá strax glæp sinn, að hafa eitrað skyrið fyrir Eyjólfi. Sagðist hún bæði hafa orðið hrædd við hann og að hún hafi vonast til að erfa hann og losna þar með úr fátækt. Hún sagðist jafnframt hafa framið ódæðið fyrir áeggjan sam- býlismanns síns, Jóns. Jón var einnig handtekinn og færður fyrir fógeta. Hann neitaði hins vegar sök en sagðist bæði hafa heyrt Júlíönu tala um að eitra fyrir Eyjólfi og að hún hefði beðið sig að útvega eitur. Þótti framburð- ur hans nokkuð ótrúverðugur og Jón ósamkvæmur sjálfum sér. Var hann loks látinn sverja framburð sinn í líkskurðarhúsinu með hönd á brjósti Eyjólfs. Dauðadómur Júlíana var mjög móðursjúk í öllu ferlinu, grét hástöfum og orgaði. Tafði þetta réttarhöldin í nokkur skipti. Hún hélt sig við fram- burðinn um að Jón hefði eggjað hana til morðsins en jafnframt að hún sjálf væri geðveik. Geðlæknir vitnaði hins vegar um að Júlíana væri sakhæf. Júlíana og Jón voru í varðhaldi fram á vorið og bæði báru þau sig illa. Hegðuðu þau sér sem geð- veik væru en fangaverðirnir voru ekki sannfærðir um það. Þann 24. apríl árið 1914 voru dómarnir loks kveðnir upp. Jón var sýknaður vegna skorts á sönnunargögnum en úrskurðaður geðveikur og færður beint á Kleppsspítala. Júl- íana Silfa var hins vegar dæmd til dauða og sá dómur staðfestur í landsyfirrétti. Tæpu ári síðar var dómurinn staðfestur af Hæstarétti í Kaup- mannahöfn en konungur mildaði dóminn úr lífláti í ævilanga fang- elsisvist. Haustið 1919 var hún loks náðuð af konungi og lifði hún í tólf ár eftir það. En allan þann tíma var hún veikluð, bæði á lík- ama og sál. Jón Jónsson lést þetta sama ár, 1931, sem vistmaður á Kleppsspítala. n BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is Bar eitrað skyr í bróður sinn n Samverkamaður endaði á Kleppi n Dauðadómur mildaður af konungi Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Herbergið að Dúkskoti Koffortið til hægri. Dúkskot Þar sem nú er Vesturgata 13. Júlíana Silfa Úr þáttunum Sönn íslensk sakamál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.