Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 60
60 PRESSAN 15. mars 2019
verði að leysa þessa miklu ráðgátu.
En án árangurs, flakið er ófundið.
Brak, sem að öllum líkindum er
úr vélinni, hefur fundist eða 20 til
30 hlutir. Þeir fundust á reki í Ind-
landshafi eða við strendur sama
hafs. Af þessum sökum og vegna
þeirra merkjasendinga sem In-
marsat-gervihnattakerfið mót-
tók hefur leitin að flaki vélarinnar
að mestu beinst að Indlandshafi.
Í janúar á þessu ári fannst brak,
sem líklega er úr flugi MH370,
á Madagaskar. Þetta dularfulla
mál hefur að vonum orðið upp-
spretta ótal samsæriskenninga og
kenninga um örlög vélarinnar og
margir hafa stigið fram og fullyrt
að þeir hafi leyst málið en það er
nú samt enn óleyst.
Síðast var það indónesíski sjó-
maðurinn Rusli Khusmin sem
komst í heimsfréttirnar þegar
hann kom fram á fréttamanna-
fundi í Indónesíu í janúar síð-
astliðnum og sagðist hafa séð
vélina hrapa í sjóinn umrædda
nótt þegar hann var á veiðum í
Malacca-sundi á milli Indónesíu
og Malasíu. Hann skráði GPS-
-hnitin hjá sér þessa nótt og skýrði
frá þeim á fréttamannafundinum.
„Ég sá flugvélina fara frá vinstri
til hægri eins og brotinn dreka.
Það var ekkert hljóð. Bara svartur
reykur frá eldi áður en hún hrap-
aði í sjóinn,“ sagði hann á frétta-
mannafundinum. En Khusmin gaf
engar skýringar á af hverju hann
hefði ekki skýrt frá þessu fyrr, en á
fundinum sór hann við Kóraninn
að hann væri að segja satt.
Í desember birti Cornell Uni-
versity umfangsmikla skýrslu, sem
var gerð af danska prófessornum
Martin Kristensen, um hvarf flugs
MH370. Samkvæmt henni hrap-
aði vélin í sjóinn undan strönd-
um Jólaeyju, ástralskri eyju und-
an ströndum Indónesíu. Þar hefur
ekki verið leitað að flakinu.
Flugrán er ekki talið útilokað
Í skýrslu Kristensen er sjónum
beint að fjórum þáttum: hraða
flugvélarinnar, magni eldsneytis,
merkjasendingum frá henni og
hinum svokölluðu doppleráhrif-
um. Niðurstaðan er að í tilfelli flugs
MH370 séu aðeins fjórir staðir á
jörðinni þar sem þessir fjórir þætt-
ir passa saman. Fyrsti staðurinn
er í Indlandshafi en hann pass-
ar við það sem Inmarsat-gervi-
hnattakerfið nam. Annar stað-
urinn er á landi í Kasakstan. En
það á við um báða þessa staði að
vélin hefði komið fram á ratsjám
ef hún hrapað þar. Þriðji staður-
inn er utan við Perth í vesturhluta
Ástralíu en þar hefur ítrekað verið
leitað að flakinu en án árangurs.
Því stendur fjórði staðurinn einn
eftir að mati Kristensen en hann
er utan við Jólaeyju. Hann telur 90
prósent líkur á að flakið sé þar. Ef
það er rétt hefur stefnu vélarinn-
ar verið breytt mikið þegar hún
var yfir Bengalflóa og henni hefur
þá verið flogið meðfram strönd-
um Indónesíu. Kristensen telur
að þessi stefnubreyting hafi verið
gerð að yfirlögðu ráði og hann úti-
lokar ekki að um flugrán hafi verið
að ræða. Hann útilokar ekki held-
ur að flugstjórinn, Zaharie Ahmad
Shah, hafi átt hlut að máli. Hann
telur að hugsanlegir flugræningjar
hafi mögulega ætlað að lenda vél-
inni á Súmötru. Annar möguleiki
að hans mati er að flugræningj-
arnir hafi stokkið út í fallhlíf. Til
þess að það væri hægt hefði þurft
að lækka flugið mikið, hægja á vél-
inni og opna dyr. Ef þetta var gert
og flugræningjarnir höfðu stillt
sjálfstýringuna á að hækka flugið
aftur hefði flugvélin, vegna hinna
opnu dyra, flogið áfram með of lít-
inn loftþrýsting í farþegarýminu
en það hefði haft í för með sér að
reykjarslóði hefði myndast á eftir
henni áður en hún hrapaði í sjóinn.
Í lokaskýrslu flugmálayfirvalda
í Malasíu um málið, en hún var birt
síðasta sumar, kemur fram að ekki
sé útilokað að vélinni hafi verið
rænt en ekki er farið nánar út í það
frekar en annað því í skýrslunni
er forðast að giska á hvað gerðist
þessa örlagaríku nótt. Ef um vel
skipulagt hryðjuverk var að ræða
vantar algjörlega svör við hverjir
stóðu á bak við það og hver til-
gangurinn var. Enginn, að minnsta
kosti sem mark er takandi á, hefur
lýst yfir ábyrgð á hvarfi vélarinnar.
Var þetta sjálfsvíg?
Sú kenning sem hefur kannski
fengið allra mesta umfjöllun í
tengslum við hvarf vélarinnar er
að flugstjórinn hafi ákveðið að
fremja sjálfsvíg með því að granda
vélinni og þar með öllum öðrum
um borð. Ástæðan fyrir þessu hef-
ur verið sögð að hann hafi glímt
við persónuleg vandamál og hafa
sumir fjölmiðlar nefnt að daginn
áður en vélin hvarf hafi eiginkona
hans tilkynnt honum að hún og
börn þeirra vildu yfirgefa hann.
Það var til að styrkja þennan
orðróm að Andreas Lubitz, flug-
maður hjá Germanwings, stýrði
farþegavél með 149 öðrum um
borð beint inn í fjallshlíð í frönsku
Ölpunum ári síðar. Yfirvöld hafa
algjörlega hafnað þessum kenn-
ingum og segja að engar sannan-
ir hafi fundist fyrir að flugstjórinn
eða flugmaðurinn hafi haft nokkur
tengsl við hryðjuverkasamtök eða
hafi verið í sjálfsvígshugleiðingum.
En þetta hefur ekki orðið til
að gera út af við kenningar sem
þessar. Fyrir þremur árum fjallaði
New York Post um málið og kenn-
inguna um að flugstjórinn hafi tek-
ið áhöfnina og farþegana með sér
í dauðann. Blaðið fjallaði á nýjan
leik um upplýsingar þess efnis að
flugstjórinn hafi æft sig á flugleið,
sem svipar til þeirrar sem talið er
að flug MH370 hafi farið nóttina
örlagaríku, í einkaflughermi sín-
um. Í lok febrúar fjallaði ástralski
netmiðillinn news.com.au einnig
um þetta en útgangspunktur-
inn var ný bók rithöfundarins og
blaðamannsins Eans Higgins,
The Hunt for MH370, sem er ný-
komin út. Í henni setur Higgins
fram nokkrar kenningar um örlög
flugs MH370. Meðal annars varpar
hann því fram að flugstjórinn hafi
sent flugvélina og alla um borð í
dauðann en hafi sjálfur stokkið
út í fallhlíf og lifað af. Higgins er
sannfærður um að flugstjórinn,
Zaharie Ahmad Shah, sé enn á lífi
og fari huldu höfði með ástkonu
sinni, einni af mörgum.
Íranirnir Pouria Nour
Mohammad og Seved
Mohammed Rezar Delawar vöktu
líka áhuga rannsakenda en þeir
voru báðir um borð í vélinni. Þeir
ferðuðust undir fölskum nöfnum
með stolin vegabréf sem hafði ver-
ið stolið frá Ítala og Austurríkis-
manni í Taílandi, þeim Christian
Kozel og Luigi Maraldi. Íranirnir
voru því fljótt stimplaðir hryðju-
verkamenn. En rannsókn leiddi í
ljós að þeir voru hafðir fyrir rangri
sök. Þeir höfðu ætlað að komast til
Evrópu í gegnum Peking og það-
an til Amsterdam. Þeir ætluðu að
sækja um pólitískt hæli í Evrópu.
Ein stór ráðgáta
Auk fyrrgreindra kenninga hefur
því verið velt upp hvort sprenging
hafi orðið í vélinni af slysni eða
hvort hryðjuverkamenn hafi not-
að fjarstýrð flugför til að granda
henni. Sumir eru sannfærðir um
að vélin hafi ekki lent í sjónum,
heldur hafi flugmenn hennar
verið neyddir til að lenda á óþekkt-
um stað. Samsæriskenningasmið-
ir eru að vonum í essinu sínu og
eru þess fullvissir að yfirvöld viti
vel hvað kom fyrir flugvélina en
leyni því af pólitískum ástæðum.
Margir aðstandendur, þeirra sem
voru um borð, telja að fólkið sé
enn á lífi.
Það ýtti enn undir samsæris-
kenningar að þann 24. ágúst 2017
var Zahid Raza, sem var konsúll
Malasíu á Madagaskar, myrtur.
Hann hafði rannsakað hvarf flugs
MH370 af miklum krafti og ætlaði,
rétt áður en hann var myrtur, að
afhenda yfirvöldum í Malasíu brak
úr vélinni. Morðið hristi vel upp í
samsæriskenningum og gaf þeim
byr undir báða vængi.
En málið er enn óleyst og ekk-
ert útlit fyrir að það sé að leysast.
Um 30 ríki hafa komið að leitinni,
þar á meðal Ástralía, Kína, Banda-
ríkin og Malasía. Leitin að vélinni
er sú umfangsmesta og dýrasta í
sögu flugsins. n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Zahid Raza Myrtur eftir að
hann rannsakaði hvarfið.
MH370 Hvarf með 239 manns um borð.
„Higgins er sann-
færður um að
flugstjórinn, Zaharie
Ahmad Shah, sé enn á
lífi og fari huldu höfði
með ástkonu sinni.