Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 62
62 FÓKUS 15. mars 2019
JÓHANN HEFUR MYNDAÐ AKSTURSÍÞRÓTTIR Í ÁRATUGI
Myndir frá fyrstu bílasýningu Kvartmíluklúbbsins
J
óhann A. Kristjánsson ljós-
myndari stofnaði hópinn JAK
Mótorsport á Facebook ný-
lega, þar sem hann deilir ljós-
myndum úr eigin safni. Jóhann
er einnig meðlimur í Kvartmílu-
klúbbnum og eru myndirnar hér
frá fyrstu bílasýningu klúbbsins.
Jóhann er kennari að mennt og
starfaði lengst af sem kennari, að-
stoðarskólastjóri og að lokum sem
skólastjóri í Öskjuhlíðarskóla. „Í
dag er ég skólastjóri á eftirlaun-
um og starfa sem forfallakennari í
Klettaskóla, sem tók við af Öskju-
hlíðarskóla og Safamýrarskóla.“
Ljósmyndunin hefur verið
áhugamál í áratugi hjá Jóhanni.
„Ég byrjaði að taka myndir 1967,
1968 þegar ég var við nám í
kennaraskólanum. Ég hef myndað
allar götur síðan og þá mikið svona
önnur áhugamál. Á upphafsárum
Kvartmíluklúbbsins myndaði ég
fyrir DB, Dagblaðið gamla, og svo
hélt ég áfram þegar það sameinað-
ist Vísi og varð að DV og var við-
loðandi það í lausamennsku að
mynda og skrifa um akstursíþrótt-
ir. Eftir 1983 skrifaði ég líka mikið
um vaxtarsport, kraftlyftingar og
slíkt. Og er ég með annan hóp á
Facbook fyrir það: Jak kraftasport.“
Jóhann starfaði í afleysingum
í ljósmyndun fyrir DV á sama
tíma og hann sinnti kennslunni.
„Ég kom inn á sumrin og tók líka
kvöld- og helgarvaktir.“ Jóhann
starfaði einnig á Fréttablaðinu
og Morgunblaðinu þar sem hann
myndaði akstursíþróttir.
Jóhann á fjölda mynda sem
hann er að vinna við að koma á
stafrænt form. „Mér reiknast til
að þetta séu 250 þúsund myndir á
filmu. Þegar filman datt út fór allt
DV-safnið mitt á Ljósmyndasafn
Reykjavíkur.“
Jóhann á Corvettu, sem hann er
búinn að eiga í 40 ár, 69 Corvettu.
„Það er færsla um hann í hópnum,
sem ég setti inn þegar voru liðin
40 ár frá því ég keypti hann. Ég hef
keppt á honum í 2–3 keppnum,
svo gerði ég nú ekki mikið meira
af því.“
Börn Jóhanns hafa
ekki elt hann í áhuga-
málin, hvorki
kvartmíluna né
ljósmyndunina,
en taka þó illa
í það þegar Jó-
hann imprar á
að selja Cor-
vettuna.
Kvartmílu-
klúbburinn
var stofnaður 6.
júlí 1975 og er Jó-
hann einn af stofnfé-
lögum hans. Stofnfundur-
inn var haldinn fyrir fullu húsi í
ráðstefnusal Hótel Loftleiða. „Ég
er líka heiðursfélagi í Bílaklúbbi
Akur eyrar, þeim fannst ég skrifa
svo fallega um þá á sínum tíma
og gerðu mig að heiðursfélaga fy-
irr mörgum árum,“ segir Jóhann
og hlær.
Þann 30. maí 1976 hélt
Kvartmíluklúbburinn fyrstu bíla-
sýningu sína og eru myndirnar
hér frá þeirri sýningu. Sýningin
var haldin úti, á lóð Austurbæjar-
skólans í Reykjavík og
var tilgangurinn með
sýningunni að afla
fjár til brautar-
byggingar.
Reykja-
víkurborg
úthlutaði
Kvartmílu-
klúbbnum
lóð við
spennistöðina
á Geithálsi, og
var farið að mæla
út fyrir braut þar. Það
kom hins vegar fljótlega
í ljós að mjög dýrt yrði að byggja
braut á þeim stað vegna þeirra
umfangsmiklu jarðvegsskipta sem
þyrftu að fara fram.
Þegar þetta kom í ljós þá var
þegar farið að leita að öðrum stað
til að byggja braut á. Það end-
aði síðan á því að klúbburinn
gerði samning við Skógrækt ríkis-
ins sem átti land í Kapelluhrauni
sunnan Hafnarfjarðar. Áður en
byrjað var á byggingu brautarinn-
ar þurfti meðal annars að athuga
með grunnvatn í nágrenninu
vegna hugsanlegrar mengunar,
og var Jón Jónsson jarðfræðingur
fenginn til að meta þann þátt. Eftir
að hann hafði gefið grænt ljós gáfu
bæjar yfirvöld í Hafnarfirði líka
grænt ljós á byggingu brautarinn-
ar.
Hafist var handa við
bygginguna 1978 og var það verk-
takafyrirtækið Aðalbraut sem sá
um vinnuna. Lokið var síðan við
lagningu brautarinnar 1979 og var
fyrsta keppni áætluð 28. október
sama ár. Ekkert varð þó af henni
þar sem að morgni þess dags var
20 sentimetra jafnfallinn snjór
yfir öllu og þar með var að fresta
þessu til næsta vors. Það var síðan
vorið 1980 sem brautin var form-
lega opnuð og byrjað var að keppa
á henni, en þá var hún eina sér-
byggða spyrnubrautin í Evrópu.
Markmið Kvartmíluklúbbsins
og slagorð hefur alltaf verið
„Hraðakstur af götunum og á inn
á lokuð svæði.“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Jóhann og börnin hans
Vettan hans Jóhanns gull-
falleg sem brúðarbíll