Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 4
4 24. maí 2019FRÉTTIR Þreyttur kattareigandi S íðasta sumar fékk Svarthöfði sér kettling. Bröndótta læðu sem fékk nafnið Branda. Svarthöfði taldi að það væri miklu auð- veldara að fá sér kött en hund. Hundar krefjast hreyfingar og mun meiri athygli sem Svarthöfði er hvorki fær né viljugur til þess að veita. Sjálfsagt var Branda tek- in of fljótt frá móður sinni og hefði þurft að liggja lengur á spena, því eitthvað virðist vanta í hana. Um haustið var kominn tími til að gelda Bröndu. Ekki vildi Svarthöfði sitja uppi með skara af kettlingum og þurfa að reyna að koma þeim út á Barnalandi. Nei, það yrði of tímafrekt. En um þetta sama leyti fór að vaxa stór og myndarlegur pungur undir Bröndu. Þetta var þá högni eft- ir allt saman. En það kom ekki að sök því það er ódýrara að gelda högna en læður. Leið nú veturinn og ekki varð Brandur gáfaður þótt hann stækk- aði og fitnaði. Hann var inniköttur og líkaði það illa. Svo illa að hann gapti fram af svölunum og í eitt skiptið féll hann fram af en varð þó ekki meint af. Á þeim tíma- punkti festi Svarthöfði á hann ól og hleypti út í frelsið. En þá byrjaði ballið fyrir alvöru og hefur Brandur verið Svarthöfða til eintómrar armæðu síðan. Svarthöfði fylgist stundum með honum út um gluggann og samskiptum hans við aðra ketti úr nágrenninu. Lífsreynda ketti og harða af sér. Kemur Brandur illa út úr þeim samanburði en fær þó stundum að hanga í pilsfaldin- um á feitum gráum ketti úr næsta stigagangi. Sennilega vegna með- aumkunar. Brandur stígur ekki beint í vitið og auk þess er hann algerlega áttavilltur. Ekki leið á löngu þar til Svarthöfði var farinn að sjá mynd- ir af honum poppa upp á hverfa- síðum á Facebook og símtölin fóru að berast: „Þessi köttur er búinn að setjast að hérna í garðin- um hjá mér og vill ekkert fara!“ Ekki nóg með að Brandur angri nágrannana því einnig hef- ur hann truflað skólastarf barn- anna í nágrenninu. Í eitt skipti óð hann inn í miðja kennslustund og í annað truflaði hann útikennslu í leikfimi svo að tímanum var af- lýst. Einnig lætur hann leikskóla- börnin ekki í friði og í eitt skipti sníkti hann hafragraut frá þeim. Þá hefur hann einnig verið að týna ólunum sínum og læsast inni í hjólageymslum. Með því að fá sér kött vildi Svarthöfði losna við hvimleiða göngutúra. En nú þarf Svarthöfði að þramma hverfið þvert og endi- langt til að leita að Brandi. Þar að auki er hann sinnulausari um húsbónda sinn en áður. Þegar hann er heima við sefur hann og safnar kröftum fyrir næsta skammarstrik. Eða hann liggur ofan á búri þar sem stjúpbræð- ur hans, þrír gullfiskar, synda, og hræðir úr þeim líftóruna. Nei, nú er nóg komið af svarta- gallsrausi um hann Brand bless- aðan. Þótt hann sé vitlaus get- ur hann verið bráðskemmtilegur og ágætis félagsskapur. Hann er barngóður og ærslafullur, forvit- inn og djarfur. Þar að auki er hann hinn myndarlegasti á að líta. Að eiga dýr gefur lífinu lit og þó að kettir hafi það orð á sér að vera hrokafullir einfarar þá eru þeir hin vænstu skinn inni við beinið. Og ekki myndi Svarthöfði skipta á Brandi fyrir neitt annað dýr. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Árið 1936 sendu Íslendingar sund- knattleikslið á ólympíuleikana í Berlín. Dalmatíuhundar fæðast án bletta. 50 prósent bankarána eru framin á föstudögum. Við lifum á ísöld sem hófst fyrir þremur milljónum ára. Heili Alberts Einstein var fjarlægður og sneiðar úr honum sýndar á safni í Philadelphiu-borg. Hver er hann n Fæddur árið 1968 í Reykjavík en alinn upp á Vestfjörðum n Handritshöfundur Ófærðar n Var Maggi mjói í Latabæ n Líka Orri í Sódómu Reykjavík n Bauð sig fram fyrir Bjarta framtíð SVAR: SIGURJÓN KJARTANSSON YFIRHEYRSLAN Elliði Vignisson tók við bæjarstjórataumunum í Ölfusi í lok júlí 2018, en þar áður starfaði hann sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í 12 ár, en Elliði hefur 20 ára reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Elliði er sálfræðingur og með grunn- og framhaldsskóla- kennaramenntun. DV tók Elliða í yfirheyrslu og hann svaraði um hæl á léttan og skemmtilegan hátt eins og honum er lagið. Hjúskaparstaða og börn? Ég er kvæntur Berthu I. Johansen og engum dylst að ég var mikið heppnari með maka en hún. Við eigum tvö börn, þau Nökkva Dan, nemanda í fræðilegri stærðfræði við HÍ, og kven- skörunginn hana Bjarteyju Bríeti framhaldskólanemanda. Fyrsta minningin? Mín elsta minning er gosnóttin í Eyjum 23. janúar 1973. Þótt erfitt sé að átta sig á hvað nákvæmlega er hrein minning og hvað hefur orðið til vegna ljósmynda og sagna þá stendur sú nótt mér ljóslifandi fyrir sjónum. Það er enda ekki á hverri nóttu sem fólk vaknar upp um miðja nótt og verður vitni að heimsviðburði rétt við svefnherbergisgluggann. Hvað er skemmtilegt? Lífið er skemmtilegt, reyndar alveg magnað hvað það skemmtilegt. Við fjölskyldan höfum alla tíð lagt mikla áherslu á að finna gleðina og hamingjuna í hversdagslegu hlutunum frekar en að vera alltaf að bíða eftir einhverju. Við reynum að njóta ferðalagsins frekar en áfangastaðarins. Ég er svo heppinn að vera vinmargur og nýt mín vel í hópi fjölskyldu og vina. Það sem færri vita er að ég er ákveðinn einfari í mér og veit fátt skemmtilegra en að vera einn með hugsunum mínum og eftir atvikum með áhugaverða bók og góðan bjór. Hvað er leiðinlegt? Það er leiðinlegt þegar maður lendir í því að særa einhvern. Ég er orðhvatur og í raun átakamaður í eðli mínu. Sérstaklega áður fyrr átti ég það til að láta þetta eðli mitt ráða og lenti þá stundum í því að valda fólki ama sem ekkert átti nema gott skilið. Það þótti mér og þykir enn mjög miður. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst krakki? Ég spáði nú ekkert mikið í það. Foreldrar mínir gerðu þá einu kröfu til okkar bræðr- anna að við yrðum góðir menn og hamingjusamir. Það var minna lagt upp úr því hvað við yrðum. Hugurinn leitaði snemma í átt að öllu sem tengist mannlegu eðli og svo fór að ég lagði sálfræðina fyrir mig og lauk masternámi í þeirri góðu grein. Versta ráð sem þú hefur fengið? Í kringum mig er gott fólk og ég svo heppinn að fá frá þeim góð ráð. Eitt versta ráð sem ég hef nokkru sinni fengið fékk ég núna í apríl síðastliðnum þegar ég hélt upp á fimmtudagsafmælið mitt og hún Bertha mín reyndi að fá mig og fleiri úr vinahópn- um ofan af því að fara í sjósund í Þorlákshöfn klukkan sex um morguninn. Sem betur fer fórum við ekki eftir því. Trúir þú á álfa, drauga eða eitthvað slíkt? Nei, ég er of jarðbundinn til að trúa slíku. Til að mynda þetta draugatal, það bara gengur ekki upp fyrir mér stærðfræðilega. Maðurinn hefur verið til í núverandi mynd í sirka 50.000 ár og á þeim tíma hafa um 108 millj- arðar fæðst. Það er orðið helvíti þröngt í draugheimum ef hinir látnu halda áfram að hrúgast þar upp. Hverjir eru mannkostir þínir? Það fer nú allt eftir því hvern þú spyrð. Sjálfur er ég afar þakklátur fyrir þá sterku sjálfsmynd sem foreldrar mínir gáfu mér í veganesti. Ég er líka mjög þakklátur fyrir einurðina, vinnusiðferðið og hina léttu lund. En lestir? Ég er í eðli mínu of bardagafús og það verður, og varð sérstaklega áður fyrr, til þess að ég stofnaði til átaka við fólk sem ég gæti í dag látið mér lynda við. Fyrsta atvinnan? Fyrsta atvinnan var að hjálpa til við að skera af netum, gella, hamfletta lunda og salta síld í tunnu. Fyrsta fasta vinnan var árið fyrir fermingu þegar ég fór að vinna við fiskmóttöku hjá Gunnari á Ártý og Valda í Kinn Mikilvægast í lífinu? Án nokkurs vafa fjölskyldan. Fast þar upp við vinirnir og svo það að geta látið gott af sér leiða með því að leggja hart að sér við vinnu. Stærsta augnablikið? Þegar ég plataði Berthu til að verða unnusta mín og svo náttúrulega afleiðing þess, fæðing barna okkar. Mestu vonbrigðin? Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég var farinn að taka þátt í stjórnmálum og fattaði hvernig hlutirnir gerast í raun og veru. Ég hafði alltaf haft óljósa hugmynd um að þegar taka þyrfti stórar ákvarðanir eða tryggja mikla hagsmuni fyrir þjóðina þá kæmi skynsamt fólk saman og tæki yfirvegaða ákvörðun. Í ljós kom hins vegar að þetta er oftar en ekki í tómu rugli þar sem enginn veit neitt og ákvörðun verður til fyrir einhverja málamiðlunarmoðsuðu sem engum gagnast. Hvað er það erfiðasta sem þú hefur upplifað? Ég er nú svo heppinn að hafa farið í gegnum lífið án teljandi erfiðleika. Ég held að erfiðasta nótt sem ég hef upplifað hafi verið þegar sonur okkar var á fyrsta aldursári og var lagður inn á spítala í Danmörku, þar sem bjuggum þá, vegna gruns um að hann væri með heilahimnu- bólgu. Þá upplifði ég í fyrsta og eina skipti á ævinni algert hjálparleysi og ótta. Það fannst mér ömurlega erfitt. En mest gefandi? Að sjá fjölskylduna dafna. Svo er ég nægilega hégómagjarn til að finnast það mjög gefandi í þau skipti þegar maður hefur jákvæða aðkomu að lífi einhvers, til dæmis í gegnum sálfræðistörf og kennslu, og snertir það á þann veg að viðkomandi er betur settur á eftir. Að mörgu leyti á hið sama við þegar maður stjórnar bæjar- félagi. Manni þykir gefandi þegar vel tekst til og fólk er hamingjusamt. Leiðinlegasta húsverkið? Langleiðinlegast er að taka niður hvíta tjaldið á þjóðhátíð á mánudegi eftir þriggja sólarhringa fjör. Það er samt eitthvað svo gott vont og ég myndi því ekki vilja vera án þess. Best að vera kennari, sálfræðingur eða bæjarstjóri? Ég hef það frá honum pabba mínum að verða alltaf hugfanginn af því sem ég er að gera í hvert skipti. Eins og hann þá langar mig alveg rosalega mikið að gera það vel sem ég er að fást við og vil leggja mikið á mig til að standa undir því trausti sem mér er sýnt þegar mér er falin ábyrgð. Það á sérstaklega við þegar staðan sem maður gegnir er langtum stærri en sú persóna sem gegnir því tímabundið. Í dag þykir mér skemmtilegast í heimi að vera bæjarstjóri í Ölfusi. Ég elska bæði svæðið og íbúa. Fyrsti bíllinn Fyrsti bíllinn sem ég hafði til eigin nota var Renault 4, 1981 módel, sem pabbi átti. Þann bíl notaði ég þegar ég var 14 ára í skólann og til að fara á rúntinn með vinahópnum þegar mamma og pabbi voru uppi á landi. Ég þorði ekki að segja mömmu frá því fyrr en ég var rúmlega fertugur og hún tók mig heldur betur í gegn. Ég mun ekki aftur þora að stela bíl frá þeim. Eitthvað að lokum? Lífið er dýrt, dauðinn þess borgun. Drekkum í dag og iðrumst á morgun. Elliði Vignisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.