Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 4
4 24. maí 2019FRÉTTIR
Þreyttur kattareigandi
S
íðasta sumar fékk
Svarthöfði sér kettling.
Bröndótta læðu sem fékk
nafnið Branda. Svarthöfði
taldi að það væri miklu auð-
veldara að fá sér kött en hund.
Hundar krefjast hreyfingar og
mun meiri athygli sem Svarthöfði
er hvorki fær né viljugur til þess
að veita. Sjálfsagt var Branda tek-
in of fljótt frá móður sinni og hefði
þurft að liggja lengur á spena, því
eitthvað virðist vanta í hana.
Um haustið var kominn tími
til að gelda Bröndu. Ekki vildi
Svarthöfði sitja uppi með skara
af kettlingum og þurfa að reyna
að koma þeim út á Barnalandi.
Nei, það yrði of tímafrekt. En um
þetta sama leyti fór að vaxa stór
og myndarlegur pungur undir
Bröndu. Þetta var þá högni eft-
ir allt saman. En það kom ekki að
sök því það er ódýrara að gelda
högna en læður.
Leið nú veturinn og ekki varð
Brandur gáfaður þótt hann stækk-
aði og fitnaði. Hann var inniköttur
og líkaði það illa. Svo illa að hann
gapti fram af svölunum og í eitt
skiptið féll hann fram af en varð
þó ekki meint af. Á þeim tíma-
punkti festi Svarthöfði á hann ól
og hleypti út í frelsið.
En þá byrjaði ballið fyrir
alvöru og hefur Brandur verið
Svarthöfða til eintómrar armæðu
síðan. Svarthöfði fylgist stundum
með honum út um gluggann og
samskiptum hans við aðra ketti
úr nágrenninu. Lífsreynda ketti
og harða af sér. Kemur Brandur
illa út úr þeim samanburði en fær
þó stundum að hanga í pilsfaldin-
um á feitum gráum ketti úr næsta
stigagangi. Sennilega vegna með-
aumkunar.
Brandur stígur ekki beint í vitið
og auk þess er hann algerlega
áttavilltur. Ekki leið á löngu þar til
Svarthöfði var farinn að sjá mynd-
ir af honum poppa upp á hverfa-
síðum á Facebook og símtölin
fóru að berast: „Þessi köttur er
búinn að setjast að hérna í garðin-
um hjá mér og vill ekkert fara!“
Ekki nóg með að Brandur
angri nágrannana því einnig hef-
ur hann truflað skólastarf barn-
anna í nágrenninu. Í eitt skipti óð
hann inn í miðja kennslustund og
í annað truflaði hann útikennslu
í leikfimi svo að tímanum var af-
lýst. Einnig lætur hann leikskóla-
börnin ekki í friði og í eitt skipti
sníkti hann hafragraut frá þeim.
Þá hefur hann einnig verið að
týna ólunum sínum og læsast inni
í hjólageymslum.
Með því að fá sér kött vildi
Svarthöfði losna við hvimleiða
göngutúra. En nú þarf Svarthöfði
að þramma hverfið þvert og endi-
langt til að leita að Brandi. Þar
að auki er hann sinnulausari um
húsbónda sinn en áður. Þegar
hann er heima við sefur hann
og safnar kröftum fyrir næsta
skammarstrik. Eða hann liggur
ofan á búri þar sem stjúpbræð-
ur hans, þrír gullfiskar, synda, og
hræðir úr þeim líftóruna.
Nei, nú er nóg komið af svarta-
gallsrausi um hann Brand bless-
aðan. Þótt hann sé vitlaus get-
ur hann verið bráðskemmtilegur
og ágætis félagsskapur. Hann er
barngóður og ærslafullur, forvit-
inn og djarfur. Þar að auki er hann
hinn myndarlegasti á að líta. Að
eiga dýr gefur lífinu lit og þó að
kettir hafi það orð á sér að vera
hrokafullir einfarar þá eru þeir
hin vænstu skinn inni við beinið.
Og ekki myndi Svarthöfði skipta á
Brandi fyrir neitt annað dýr. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Árið 1936 sendu Íslendingar sund-
knattleikslið á ólympíuleikana í Berlín.
Dalmatíuhundar fæðast án bletta.
50 prósent bankarána eru framin á
föstudögum.
Við lifum á ísöld sem hófst fyrir
þremur milljónum ára.
Heili Alberts Einstein var fjarlægður
og sneiðar úr honum sýndar á safni í
Philadelphiu-borg.
Hver er
hann
n Fæddur árið 1968 í
Reykjavík en alinn upp á
Vestfjörðum
n Handritshöfundur
Ófærðar
n Var Maggi mjói í Latabæ
n Líka Orri í Sódómu Reykjavík
n Bauð sig fram fyrir Bjarta framtíð
SVAR: SIGURJÓN KJARTANSSON
YFIRHEYRSLAN
Elliði Vignisson tók við bæjarstjórataumunum í
Ölfusi í lok júlí 2018, en þar áður starfaði hann sem
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í 12 ár, en Elliði hefur
20 ára reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Elliði er
sálfræðingur og með grunn- og framhaldsskóla-
kennaramenntun.
DV tók Elliða í yfirheyrslu og hann svaraði um hæl á
léttan og skemmtilegan hátt eins og honum er lagið.
Hjúskaparstaða og börn?
Ég er kvæntur Berthu I. Johansen og engum dylst að ég var mikið heppnari með maka en
hún. Við eigum tvö börn, þau Nökkva Dan, nemanda í fræðilegri stærðfræði við HÍ, og kven-
skörunginn hana Bjarteyju Bríeti framhaldskólanemanda.
Fyrsta minningin?
Mín elsta minning er gosnóttin í Eyjum 23. janúar 1973. Þótt erfitt sé að átta sig á hvað
nákvæmlega er hrein minning og hvað hefur orðið til vegna ljósmynda og sagna þá stendur
sú nótt mér ljóslifandi fyrir sjónum. Það er enda ekki á hverri nóttu sem fólk vaknar upp um
miðja nótt og verður vitni að heimsviðburði rétt við svefnherbergisgluggann.
Hvað er skemmtilegt?
Lífið er skemmtilegt, reyndar alveg magnað hvað það skemmtilegt. Við fjölskyldan höfum
alla tíð lagt mikla áherslu á að finna gleðina og hamingjuna í hversdagslegu hlutunum
frekar en að vera alltaf að bíða eftir einhverju. Við reynum að njóta ferðalagsins frekar en
áfangastaðarins. Ég er svo heppinn að vera vinmargur og nýt mín vel í hópi fjölskyldu og
vina. Það sem færri vita er að ég er ákveðinn einfari í mér og veit fátt skemmtilegra en að
vera einn með hugsunum mínum og eftir atvikum með áhugaverða bók og góðan bjór.
Hvað er leiðinlegt?
Það er leiðinlegt þegar maður lendir í því að særa einhvern. Ég er orðhvatur og í raun
átakamaður í eðli mínu. Sérstaklega áður fyrr átti ég það til að láta þetta eðli mitt
ráða og lenti þá stundum í því að valda fólki ama sem ekkert átti nema gott skilið.
Það þótti mér og þykir enn mjög miður.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst krakki?
Ég spáði nú ekkert mikið í það. Foreldrar mínir gerðu þá einu kröfu til okkar bræðr-
anna að við yrðum góðir menn og hamingjusamir. Það var minna lagt upp úr því
hvað við yrðum. Hugurinn leitaði snemma í átt að öllu sem tengist mannlegu eðli og
svo fór að ég lagði sálfræðina fyrir mig og lauk masternámi í þeirri góðu grein.
Versta ráð sem þú hefur fengið?
Í kringum mig er gott fólk og ég svo heppinn að fá frá þeim góð
ráð. Eitt versta ráð sem ég hef nokkru sinni fengið fékk ég núna
í apríl síðastliðnum þegar ég hélt upp á fimmtudagsafmælið
mitt og hún Bertha mín reyndi að fá mig og fleiri úr vinahópn-
um ofan af því að fara í sjósund í Þorlákshöfn klukkan sex um
morguninn. Sem betur fer fórum við ekki eftir því.
Trúir þú á álfa, drauga eða eitthvað slíkt?
Nei, ég er of jarðbundinn til að trúa slíku. Til að mynda
þetta draugatal, það bara gengur ekki upp fyrir mér
stærðfræðilega. Maðurinn hefur verið til í núverandi
mynd í sirka 50.000 ár og á þeim tíma hafa um 108 millj-
arðar fæðst. Það er orðið helvíti þröngt í draugheimum
ef hinir látnu halda áfram að hrúgast þar upp.
Hverjir eru mannkostir þínir?
Það fer nú allt eftir því hvern þú spyrð. Sjálfur er ég afar þakklátur
fyrir þá sterku sjálfsmynd sem foreldrar mínir gáfu mér í veganesti.
Ég er líka mjög þakklátur fyrir einurðina, vinnusiðferðið og hina
léttu lund.
En lestir?
Ég er í eðli mínu of bardagafús og það verður, og varð sérstaklega áður fyrr, til þess að ég
stofnaði til átaka við fólk sem ég gæti í dag látið mér lynda við.
Fyrsta atvinnan?
Fyrsta atvinnan var að hjálpa til við að skera af netum, gella, hamfletta lunda og salta síld í
tunnu. Fyrsta fasta vinnan var árið fyrir fermingu þegar ég fór að vinna við fiskmóttöku hjá
Gunnari á Ártý og Valda í Kinn
Mikilvægast í lífinu?
Án nokkurs vafa fjölskyldan. Fast þar upp við vinirnir og svo það að geta látið gott af sér
leiða með því að leggja hart að sér við vinnu.
Stærsta augnablikið?
Þegar ég plataði Berthu til að verða unnusta mín og svo náttúrulega afleiðing þess, fæðing
barna okkar.
Mestu vonbrigðin?
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég var farinn að taka þátt í stjórnmálum og fattaði
hvernig hlutirnir gerast í raun og veru. Ég hafði alltaf haft óljósa hugmynd um að þegar taka
þyrfti stórar ákvarðanir eða tryggja mikla hagsmuni fyrir þjóðina þá kæmi skynsamt fólk
saman og tæki yfirvegaða ákvörðun. Í ljós kom hins vegar að þetta er oftar en ekki í tómu
rugli þar sem enginn veit neitt og ákvörðun verður til fyrir einhverja málamiðlunarmoðsuðu
sem engum gagnast.
Hvað er það erfiðasta sem þú hefur upplifað?
Ég er nú svo heppinn að hafa farið í gegnum lífið án teljandi erfiðleika. Ég held að erfiðasta
nótt sem ég hef upplifað hafi verið þegar sonur okkar var á fyrsta aldursári og var lagður inn
á spítala í Danmörku, þar sem bjuggum þá, vegna gruns um að hann væri með heilahimnu-
bólgu. Þá upplifði ég í fyrsta og eina skipti á ævinni algert hjálparleysi og ótta. Það fannst
mér ömurlega erfitt.
En mest gefandi?
Að sjá fjölskylduna dafna. Svo er ég nægilega hégómagjarn til að finnast það mjög
gefandi í þau skipti þegar maður hefur jákvæða aðkomu að lífi einhvers, til dæmis
í gegnum sálfræðistörf og kennslu, og snertir það á þann veg að viðkomandi er
betur settur á eftir. Að mörgu leyti á hið sama við þegar maður stjórnar bæjar-
félagi. Manni þykir gefandi þegar vel tekst til og fólk er hamingjusamt.
Leiðinlegasta húsverkið?
Langleiðinlegast er að taka niður hvíta tjaldið á þjóðhátíð á mánudegi eftir
þriggja sólarhringa fjör. Það er samt eitthvað svo gott vont og ég myndi því
ekki vilja vera án þess.
Best að vera kennari, sálfræðingur eða bæjarstjóri?
Ég hef það frá honum pabba mínum að verða alltaf hugfanginn af því sem
ég er að gera í hvert skipti. Eins og hann þá langar mig alveg rosalega
mikið að gera það vel sem ég er að fást við og vil leggja mikið á mig
til að standa undir því trausti sem mér er sýnt þegar mér er falin
ábyrgð. Það á sérstaklega við þegar staðan sem maður gegnir er
langtum stærri en sú persóna sem gegnir því tímabundið. Í dag
þykir mér skemmtilegast í heimi að vera bæjarstjóri í Ölfusi. Ég
elska bæði svæðið og íbúa.
Fyrsti bíllinn
Fyrsti bíllinn sem ég hafði til eigin nota var Renault 4, 1981
módel, sem pabbi átti. Þann bíl notaði ég þegar ég var 14 ára
í skólann og til að fara á rúntinn með vinahópnum þegar
mamma og pabbi voru uppi á landi. Ég þorði ekki að segja
mömmu frá því fyrr en ég var rúmlega fertugur og hún tók
mig heldur betur í gegn. Ég mun ekki aftur þora að stela bíl
frá þeim.
Eitthvað að lokum?
Lífið er dýrt, dauðinn þess borgun. Drekkum í dag og iðrumst á morgun.
Elliði
Vignisson