Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Side 38
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
STEINSMIÐJA AKUREYRAR:
Hjónin Sunneva Árnadóttir og Birnir Reyr Vignisson eiga og reka Steinsmiðju Akureyrar.
Þau bjóða fjölbreytt úrval legsteina
og fylgihluta. Alls býður Steinsmiðja
Akureyrar yfir 150 gerðir í lögun og lit.
„Nú bjóðum trúlega eitt mesta úrval
landsins af legsteinum.“ Efniviðurinn
kemur víða að úr heiminum, m.a. frá
Indlandi, Kína og Ítalíu auk Íslands en
íslenska stuðlabergið er alltaf vinsælt,
þar sem hver steinn hefur sína ólíku
lögun og áferð. Fyrirtækið býður upp
á frían flutning á legsteinum um allt
land.
Gæði og persónuleg þjónusta
„Áherslur okkar eru ávallt gæði og
framúrskarandi þjónusta. Markmiðið
er að viðskiptavinir okkar séu
fullkomlega ánægðir,“ segir Birnir
Vignisson sem ásamt konu sinni,
Sunnevu Árnadóttur, hefur rekið
steinsmiðjuna frá því í desember
2016. Viðskiptavinir okkar geta valið
úr fjölbreyttu úrvali hráefnis og mis-
munandi hönnun minnisvarða. Þá
eru myndir og ítarlegar upplýsingar á
vefsíðu fyrirtækisins, minnismerki.is.
„Við hönnum og smíðum minnisvarða
úr íslensku grjóti og einnig úr inn-
fluttu graníti en sú steintegund er
sú harðasta sem til er og endist í
mannsaldra. Við hugsum einnig um
gæði þegar kemur að aukahlutum,
eins og lugtum, vösum og fuglum,
við viljum að þetta endist vel með
steininum,“ segir Birnir enn fremur.
Saltlampar
Steinsmiðja Akureyrar flytur einnig
inn saltlampa frá Himalajafjöllum
í Pakistan. Birta lampanna þykir
einstök og hafa þeir notið mikilla
vinsælda hin síðari ár, einkum í
skammdeginu. „Það eru nokkrar
verslanir sem eru með lampa frá
okkur auk þess sem þeir eru seldir í
verslun steinsmiðjunnar,“ segir Birnir.
Persónulegur minnisvarði
„Þegar kemur að legsteinum
skipta gæði auðvitað höfuðmáli.
Legsteinum er ætlað að standa
lengi og þola veður og vinda til lengri
tíma. Það er því mikilvægt að vanda
valið. Legsteinn er persónuleg-
ur minnisvarði og við smíðum eftir
þeim hugmyndum eða tillögum sem
okkar viðskiptavinir koma með. Þar er
persónuleg þjónusta í fyrirrúmi,“ segir
Birnir.
Steinsmiðja Akureyrar býður þá
þjónustu á Norðurlandi og á höfuð-
borgarsvæðinu að setja legsteina
upp í kirkjugörðum og sjá um allan
frágang í kringum það. Frír flutningur
er á legsteinum um allt land.
Sjá nánar á minnismerki.is
Steinar um allt land –
stóraukið úrval