Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 38
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ STEINSMIÐJA AKUREYRAR: Hjónin Sunneva Árnadóttir og Birnir Reyr Vignisson eiga og reka Steinsmiðju Akureyrar. Þau bjóða fjölbreytt úrval legsteina og fylgihluta. Alls býður Steinsmiðja Akureyrar yfir 150 gerðir í lögun og lit. „Nú bjóðum trúlega eitt mesta úrval landsins af legsteinum.“ Efniviðurinn kemur víða að úr heiminum, m.a. frá Indlandi, Kína og Ítalíu auk Íslands en íslenska stuðlabergið er alltaf vinsælt, þar sem hver steinn hefur sína ólíku lögun og áferð. Fyrirtækið býður upp á frían flutning á legsteinum um allt land. Gæði og persónuleg þjónusta „Áherslur okkar eru ávallt gæði og framúrskarandi þjónusta. Markmiðið er að viðskiptavinir okkar séu fullkomlega ánægðir,“ segir Birnir Vignisson sem ásamt konu sinni, Sunnevu Árnadóttur, hefur rekið steinsmiðjuna frá því í desember 2016. Viðskiptavinir okkar geta valið úr fjölbreyttu úrvali hráefnis og mis- munandi hönnun minnisvarða. Þá eru myndir og ítarlegar upplýsingar á vefsíðu fyrirtækisins, minnismerki.is. „Við hönnum og smíðum minnisvarða úr íslensku grjóti og einnig úr inn- fluttu graníti en sú steintegund er sú harðasta sem til er og endist í mannsaldra. Við hugsum einnig um gæði þegar kemur að aukahlutum, eins og lugtum, vösum og fuglum, við viljum að þetta endist vel með steininum,“ segir Birnir enn fremur. Saltlampar Steinsmiðja Akureyrar flytur einnig inn saltlampa frá Himalajafjöllum í Pakistan. Birta lampanna þykir einstök og hafa þeir notið mikilla vinsælda hin síðari ár, einkum í skammdeginu. „Það eru nokkrar verslanir sem eru með lampa frá okkur auk þess sem þeir eru seldir í verslun steinsmiðjunnar,“ segir Birnir. Persónulegur minnisvarði „Þegar kemur að legsteinum skipta gæði auðvitað höfuðmáli. Legsteinum er ætlað að standa lengi og þola veður og vinda til lengri tíma. Það er því mikilvægt að vanda valið. Legsteinn er persónuleg- ur minnisvarði og við smíðum eftir þeim hugmyndum eða tillögum sem okkar viðskiptavinir koma með. Þar er persónuleg þjónusta í fyrirrúmi,“ segir Birnir. Steinsmiðja Akureyrar býður þá þjónustu á Norðurlandi og á höfuð- borgarsvæðinu að setja legsteina upp í kirkjugörðum og sjá um allan frágang í kringum það. Frír flutningur er á legsteinum um allt land. Sjá nánar á minnismerki.is Steinar um allt land – stóraukið úrval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.