Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 48
48 FÓKUS - VIÐTAL 24. maí 2019
morgun vil ég þá vera eins og ég er
í dag? Lífið er of dýrmætt til að ég
bara sætti mig við eitthvað.“
Funkerar best þegar verkefnin
eru mörg
Hafdís lætur einkaþjálfunina ekki
duga, því hún er einnig með eigið
fyrirtæki, Spray tan, sem nú hefur
eignast fast aðsetur í Mörkinni 3,
þar sem vinkona hennar Hrönn
rekur verslun. „Þar er ég með skrif-
stofu og tan-stofuna, sem áður
var „pop up“-klefi heima hjá mér
eða ég mætti með hann heim til
fólks. Ég er líka að opna netversl-
un með fitnessvörur núna í sumar,
og verð einnig markaðsstjóri fyrir
Zenz hárvörur, en systir mín er að
opna hárgreiðslustofu með þeim
vörum.“
Best að vera sjálfstæð
„Mig langar ekki að hætta að
þjálfa, það er mjög gaman og mér
líður aldrei eins og ég sé að mæta
í vinnuna. Ég er mikil félagsvera
og finnst gaman að þjálfa og það
gefur mér mikið,“ segir Hafdís og
þegar blaðamaður telur að þarna
sé allt upp talið og dagbókin full,
bætir Hafdís við að hún sé að byrja
með spinningtíma aftur. „Þetta
er annan hvern laugardag þegar
strákarnir eru hjá pabba sínum,
þannig að af hverju ekki? Það er
líka gott að byrja helgina á hreyf-
ingu. Það er heilmikið að gera og
ég funkera best þannig.“
Hafdís hefur unnið 8–4 vinnu
og segir ákveðið öryggi og fríð-
indi fylgja því. „En það er bara
ekki ég, flest störf sem ég hef skoð-
að myndu drepa mig úr leiðind-
um. Ég þarf að hitta fólk og ég vil
geta farið frá án þess að vera með
samviskubit, ef til dæmis strákarn-
ir eru veikir, eða það er skemmtun
í skólanum. Í stað þess að væla út
frí, þá get ég hringt í viðskiptavini
mína og beðið þá að koma á öðr-
um tíma og það er aldrei neitt mál.
Ég er föst á því að ég ætla alltaf að
vera sjálfstæð.“
Synirnir smitaðir af metnaði
Elstu þrír synirnir byrjuðu allir í
fótbolta, en pabbi þeirra var eins
og Hafdís mikið i fótbolta og hef-
ur verið fótboltaþjálfari til margra
ára. „Við vorum alltaf mjög virk
með þá og þeir hafa fundið sig í
íþróttum og hafa áhuga. Sá elsti,
Kristján Hjörvar, 14 ára, fann sig
í fótboltanum, sem er fyndið af
því að okkur var sagt þegar hann
greindist heyrnarskertur að hann
myndi aldrei finna sig í hópíþrótt-
um. Hann var farinn að lesa af vör-
um þriggja ára, hann er þannig að
hann heyrir ekki í þeim sem eru
fyrir aftan hann og færði sig því
alltaf aftar á völlinn og er núna
að blómstra í marki og farinn að
stjórna leiknum. Ég er svo stolt af
honum og fegin að við hlustuðum
ekki þegar reynt var að takmarka
getu hans. Nýlega var hann valinn
í unglingalandsliðið undir 15 ára.
Sigurkarl, 11 ára, keppir í frjáls-
um og blómstrar í kúluvarpinu og
Hafþór Björn, 9 ára, er enn í öllu og
að finna sig, hvort það verður fót-
bolti, körfubolti eða frjálsar kemur
í ljós. Ingimar sá næstyngsti byrjar
örugglega í fótboltanum líka. Það
er best að leyfa þeim að prófa sem
flest og leiðbeina þeim svo í eina
átt. Ég veit ekki hvað ég prófaði
margar íþróttir þegar ég var yngri.
Ég dýrka hvað mér finnst ég
hafa smitað metnaðinn yfir til
þeirra, þeir trúa að þeir geti sigrað
heiminn, ef þeir vilja það og setja
hausinn í það, þá er það þannig.
Ég myndi alltaf fjárfesta í íþróttum
fyrir syni mína, frekar en einhverj-
um óþarfa fyrir sjálfa mig. Ég held
að íþróttir og tómstundir séu svo
mikil forvörn, ég trúi því svo inni-
lega. Og ég hef upplifað of mikið af
því að börn fari ranga leið í lífinu.“
Þar vísar Hafdís til lögreglu-
starfsins, en móðir hennar og fleiri
ættingjar eru lögreglumenn og
fyrri barnsfaðir hennar líka. Hún
segist alin upp á lögreglustöðinni í
Hafnarfirði og sjálf hafa verið harð-
ákveðin í því í grunnskóla að verða
lögga. Henni fannst hins vegar að
hún gæti ekki boðið sonunum upp
á að báðir foreldrar væru í vakta-
vinnu, barnsfaðir hennar fann sig
í starfinu, sem hann sinnir enn, og
hún fór íþróttaleiðina.
„Að alast upp hjá foreldri sem er
í vaktavinnu er meira en að segja
það, þótt mamma hafi látið það
ganga upp. Það sem ég upplifði í
gegnum það varð þess valdandi að
stundum missti ég trúna á mann-
kynið. Ég hef sjálf verið í gæslu og
hef upplifað að fólk geti verið fífl,
og heimurinn er oft ógeðslegri
en mann gæti grunað, ef ég væri
í þessu daglega held ég að það
myndi draga mig svakalega niður.“
Pressa að toppa keppnisformið
Framundan er undirbúningur fyr-
ir Arnold árið 2020 og Hafdís seg-
ir það þolinmæðisvinnu því flokk-
urinn hennar sé stór. „Ég gef mér
góðan tíma, því markmiðið hjá
mér er ekki bara að keppa, held-
ur að fá atvinnumannsskírteinið.
Hrönn náði sér í það meðan ég
eignaðist börn, ég missti aðeins af
henni þar. Við erum með styrki í
dag, en þetta er á öðru leveli, það
er borgað fyrir okkur og uppihald
á mótum og fleira. Verðlaun fyrir
efstu sex sætin á atvinnumanna-
mótum eru háar fjárhæðir. Hugs-
aðu þér að keppa á einu móti á ári
og svo ertu bara að æfa þig hina
dagana. Það er markmið hjá mér
að gera það sem ég hef ástríðu fyrir
og mig langar í miklu meira. Mér
finnst líka pressa á mér, ekki síst
frá sjálfri mér, um að toppa síðasta
keppnisform. Ég er búin að eign-
ast tvö börn frá síðasta móti og
finnst ég þurfa að sýna enn frekar
að ég get þetta.“
Hafdís segir að fitnessíþróttin
fái oft á sig neikvæðan stimpil og
talað sé um óheilbrigði. „Þá er fólk
aðeins að horfa á niðurskurðinn,
sem er átta vikna tímabil fyrir mót,
en ég er búin að æfa í tvö ár, sex ár
eða annað fyrir mótið. Við vitum
hvað við erum að fara út í og erum
búin að undirbúa okkur fyrir það.
Það skiptir líka máli vera með rétta
aðilann með sér, Konni veit alveg
hvað hann er að gera og ég treysti
honum fyrir öllu og ég treysti hon-
um ef hann segir mér að ég sé ekki
tilbúin.“ n
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Hafdís er virk á samfélags-
miðlunum Snapchat og
Instagram: hafdisbk og á
heimasíðunni www.virago.is
M
Y
N
D
: H
A
N
N
A
/D
V
Að mæta á
æfingu var
mitt geðlyf
Synirnir Hafdís og
synirnir fimm í skírn
Sigurðar Gísla.