Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 54
54 24. maí 2019TÍMAVÉLIN Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is SKILTAGERÐ BÍLAMERKINGAR BANNER-UP SÓLARFILMUR Ráðgjöf Hönnun Framleiðsla Uppsetning Erjur á milli parsins Heiðdísar Sesselju Guttormsdóttur og Ey- þórs Guðmundssonar annars vegar og nágranna þeirra, Guðna, hins vegar rötuðu í fjöl- miðla í nóvember árið 2018. Bjuggu þau á sveitabæ, skammt frá Dalvík. DV greindi frá því að erjurnar væru komnar inn á samfélagsmiðla og að parið hefði birt tugi myndskeiða af samskiptum sínum við Guðna. Sökuðu þau Guðna meðal annars um að halda fyrir þeim vöku með hundum og hann ysi yfir þau fúkyrðum. Þegar DV ræddi við Heiðdísi hafði hún gefist upp á að hafa samband við lögregluna út af Guðna. Guðni sakaði þau hins vegar um að neyta fíkniefna. Hundarnir eru aðaldeiluefnið og í mynd- böndunum má sjá þá ráðast á nautgripi. Orðaskakið og hrópin gengu á milli bæjanna. Í einu mynd- bandinu, sem tekið var upp klukkan fimm um nótt, mátti heyra ljótan munnsöfnuð ná- grannanna en jafnframt svo- lítið spaugilegan. Eyþór sagði til að mynda: „Þú ert hommi,“ og Guðni svaraði: „Farðu að kúka og skilaðu tíund af því sem Rebbi refur segir.“ Í þéttbýlinu eru nágrannerjur oft af öðrum ástæðum en í sveitum. Snúast þær oft um minni hluti en milljóna króna hlunnindi, en geta verið jafn harðar engu að síður. Á tíunda áratug 20. aldarinnar og fram á næstu öld stóð yfir styr á milli íbúa í Smáíbúðahverfinu. Vegna nokkurra trjáa. Deilan var á milli Kristjáns Guðmundssonar skipstjóra, og Baldvins Atlasonar, húsvarðar í Þjóðarbókhlöðunni, sem bjuggu í Rauðagerði 39. Árið 1994 keypti Baldvin íbúð sína af Kristjáni og fyrst um sinn gekk sambúðin vel. En allt fór í háaloft þegar Baldvin sagaði niður nokkur tré í garðinum. Kristján kærði Baldvin en tapaði því máli, bæði í héraði og fyrir Hæstarétti. „Ég fer í sturtu í vinnunni,“ sagði Baldvin við Fréttablaðið sem greindi frá málinu í febrúar árið 2003. Kristján hafði þá skrúf- að fyrir hitann þannig að ofnarn- ir voru kaldir og ekki kom heitur dropi úr sturtunni. Kristján sagði að Baldvin greiddi ekki hitareikn- ingana en Baldvin sagðist hafa reynt það með aðstoð lögreglu en Kristján ekki viljað taka við greiðslu. Kristján kærði Baldvin einnig fyrir að spila á píanó í tíma og ótíma en það fór á sömu leið og hin kæran í héraði. „Að sjálfsögðu má ég leika á píanó heima hjá mér. Það er bara verst að þegar ég reyni að leika þá byrjar Kristján að spila á hljóm- flutningstæki í kapp við mig,“ sagði Baldvin. Dýr valda oft nágrannaerjum. Í sveitum búfénaður og fjárhund- ar en í þéttbýli eru kettir algengir sökudólgar. Sjaldgæfara er að húsdýr valdi usla í þéttbýli en það gerðist síðasta haust á Ísafirði. DV greindi frá því í september að íbúar í fjölbýlishúsinu við Sól- götu 8 væru orðnir langþreyttir á hænsnarækt nágranna sinna á efri hæð hússins. Þar voru hjónin Marzena og Wieslaw Nesteruk, frá Póllandi, með tíu hænur í hag- anlega uppsettu rými. Gaggið í hænunum og lyktin var mikil að sögn nágrannanna, en þrjár íbúðir eru í húsinu. En að sögn héraðsdýralæknis þurfti ekki sérstakt leyfi fyrir færri en 250 fugla. „Það er með ólíkindum að þetta sé leyfilegt. Hænur eiga ekki heima í fjölbýlishúsum,“ sagði einn nágranni við DV. Fólk í nærliggjandi húsum varð einnig fyrir ónæði vegna fugl- anna. Haft var samband við Heil- brigðiseftirlitið og Matvælastofn- un en engin úttekt gerð á húsinu. Elísabet Fjóludóttir héraðsdýra- læknir rannsakaði hins vegar íbúðina og sagði aðbúnað dýr- anna til fyrirmyndar. „Sá sem heldur fuglana kann greinilega sitt fag,“ sagði hún. Fúkyrði um miðjar nætur Kærður fyrir píanóleik Hænur í fjölbýlishúsi Guðni og hundarnir Fúkyrði dags og nætur. Heiðdís Hún og kærastinn Eyþór birtu myndbönd af erjunum. Píanó Baldvin Atlason lenti í hávaðakeppni við Kristján, nágranna sinn. Hænur Pólsku hjónin, Marzena og Wieslaw, urðu ekki vinsæl í húsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.