Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Side 59
KYNNING
Brúðargjafalisti í Kúnígúnd léttir
skrefin fyrir brúðhjón og gesti
Brúðkaupum fylgir mikill undir-búningur, því er ákaflega þægilegt fyrir verðandi brúð-
hjón að stofna brúðargjafalista og
klára þá hlið undirbúningsins áður en
dagskráin þéttist hvað mest á loka-
metrunum. Brúðhjónin geta komið í
verslanir Kúnígúnd eða skoðað allt
úrvalið á heimasíðunni með góðum
fyrirvara, séð hvað stendur þeim til
boða og gert sér þannig betur grein
fyrir hvað kæmi sér vel að fá nýtt
og hvað mætti kannski endurnýja á
heimilinu.
Brúðkaupslistar, ekki bara fyrir
brúðhjónin
Eins hefur það sýnt sig að tilvonandi
veislugestum þykir gott að fá
ábendingar og hugmyndir um hvað
kæmi sér best fyrir viðkomandi
brúðhjón. Gjafalistinn er aðgengileg-
ur gestum bæði á vefsíðu Kúnígúnd
og í verslunum þar sem starfsfólk
sér til þess að sama gjöfin sé ekki
keypt tvisvar með því að merkja við
þegar verslað er af listanum. Starfs-
fólk Kúnígúnd er öllu vant og getur
aðstoðað við stofnun brúðargjafa-
lista eða við að velja rétta brúðargjöf.
Grætt á gjafalistum
Tilvonandi brúðhjón sem stofna
brúðargjafalista hjá Kúnígúnd fá
gjafabréf að andvirði 15% af því sem
verslað er fyrir á listanum ef úttekt
af brúðargjafalistanum samsvarar
10.000 krónum að lágmarki. Þess má
einnig geta að brúðhjón sem stofna
brúðargjafalista í apríl og maí fara
sjálfkrafa í pott þar sem hin glæsilega
nýja Queen of Hearts KitchenAid
hrærivél er í vinning!
Aðgengilegur listi hvar og hvenær
sem er
Kúnígúnd rekur einnig glæsilega net-
verslun þar sem einfalt er að stofna,
bæta við og skoða brúðargjafalista.
Kúnígúnd er jafnframt ein af fáum
gjafavöruverslunum landsins þar
sem brúðargjafalistinn í heild sinni er
aðgengilegur á vefsíðu verslunarinnar
sem léttir skrefin fyrir alla, bæði gesti
og brúðhjón.
Glæsileg matarstell
Í Kúnígúnd fæst mikið úrval af
vandaðri gjafavöru frá þekktum
hönnuðum með áherslu á Norður-
löndin. Brúðhjón geta bætt matar-
stellum frá m.a. Royal Copenhagen,
Georg Jensen, Rosendahl og Villeroy
& Boch á gjafalistann, svo fátt eitt sé
nefnt. Brúðhjónum er líka velkomið
að kíkja í Kúnígúnd Kringlunni til þess
að sjá glæsilegar útstillingar og fá
hugmyndir að því hvernig má raða
saman í matarstell. Royal Copen-
hagen-mynstrin eru til að mynda
fjölbreytt í lit og gerð og henta
sérstaklega vel til þess að blanda
mismunandi línum saman í stell.
Þá fæst mikið úrval af glösum,
karöflum, hnífapörum og öðrum
borðbúnaði sem hentar vel í brúðar-
gjafir. Brúðhjón setja þá það magn
sem þau vantar á listann og starfs-
fólk Kúnígúnd hakar við þegar hluti
er keyptur af settinu en varan dettur
síðan út af lista þegar viðeigandi
magn hefur verið keypt. Þannig
fá brúðhjónin ekki auka glasapar,
kökugaffla sem passa ekki við hnífa-
pör og fleira sem veldur því að þau
þurfi að standa í vöruskilum og skipt-
um fyrstu vikurnar eftir brúðkaupið.
Vönduð sængurföt fyrir notalegar
hveitibrauðsnætur
Fátt kemur góðu hjónabandi af
stað eins og vönduð sængur-
föt sem auka þægindi og slökun á
hveitibrauðsnóttum. Hjá Kúnígúnd
fást glæsileg sængurföt, sloppar,
handklæði, dúkar, viskastykki og fleira
úr 100% egypskri bómull frá Georg
Jensen Damask. Úrvalið er mikið og
ættu öll hjón að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Meðal annarra glæsilegra vöru-
merkja sem fást í Kúnígúnd eru Erik
Bagger, Holmegaard, KitchenAid, Le
Creuset, Lind DNA, Frederik Bagger,
Lyngby Porcelæn og Wusthof. Allar
vörur sem keyptar eru í Kúnígúnd eru
merktar versluninni og því er auðvelt
að skipta og breyta eftir á ef þörf
krefur. Starfsfólk Kúnígúnd pakkar
vörunum inn í fallegar umbúðir og
þar eru einnig fáanleg vönduð kort til
sölu til að auðvelda gestum að klára
gjafakaupin í heild sinni.
Allt úrvalið má skoða í vefversl-
uninni kunigund.is, ásamt ítarlegum
leiðbeiningum um stofnun brúðar-
gjafalista.
Brúðhjónum er líka velkomið að
heimsækja Kúnígúnd, sem er
bæði staðsett í Kringlunni og á
Glerártorgi á Akureyri og þiggja
aðstoð við samsetningu og stofnun
brúðargjafalista frá þrautþjálfuðu
starfsfólki Kúnígúnd.