Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 2
2 29. mars 2019FRÉTTIR H inn rússneski Sergey Gays­ in var nýlega dæmdur fyrir hótanir og blygðunarbrot gegn fyrrverandi eigin­ konu sinni. Hann hefur áður hlot­ ið dóm fyrir líkamsárás á hana og DV greint ítarlega frá þeim mál­ um. Meðan á afplánun stóð var hann handtekinn vegna gruns um fíkniefnainnflutning og spurn­ ingar hafa vaknað um hvort hann verði kyrrsettur á landinu þar til þau mál leysast eða verði vísað úr landi. Sendi kynlífsmynd á fjölskyldu þolanda Sergey Gaysin, rússneskur ríkis­ borgari, hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir blygðunar­ brot, hótanir og stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi eiginkonu sinni. Sendi hann, þann 28. febrúar árið 2016, mynd af henni í kynlífsathöfn á fjöl­ skyldumeðlimi og unnusta henn­ ar. Einnig skilaboð sem fólu í sér hótanir um að myndinni og kyn­ lífstengdum myndböndum af henni yrði dreift á netinu. Sergey var dæmdur þann 8. mars síðastliðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auk fangelsisvistar var hann dæmdur til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni 700 þúsund krónur í miskabætur auk málsvarnarlauna og réttar­ gæsluþóknunar. Sergey játaði brot sín skýlaust og var það virt til refsi­ lækkunar. Rannsókn máls­ ins lauk í mars árið 2016 en ákæra ekki birt fyrr en nítján mánuðum eftir brotin. Hann var erlendis lengi og var handtekinn í des­ ember síðast­ liðnum þegar hann kom aftur til landsins und­ ir fölsku nafni. Hefur hann setið á Litla­Hrauni síðan. Stórt fíkniefnamál Í byrjun febrúar var greint frá því að tveir einstaklingar sætu í gæslu­ varðhaldi Lögreglunnar á höfuð­ borgarsvæðinu og á Suðurnesjum vegna umfangsmikils fíkniefna­ máls. Annar þeirra er Sergey sem handtekinn var á Litla­Hrauni. Um er að ræða sjö tilvik á árun­ um 2017 og 2018 þar sem sam­ tals sjö kílógrömmum af kóka­ íni var smyglað til lands, annars vegar með farþegaflugi í Keflavík og Reykjavík og hins vegar póst­ sendingum. Karl Steinar Valsson, lögreglumaður sem fer með rannsókn máls­ ins, sagði við DV að málið væri enn í rann­ sókn og stefnt væri að því að klára það í byrj­ un apríl. Ekki væri því enn búið að gefa út ákæru. Hann vildi ekki segja til um hvort játningar lægju fyrir en staðfesti að hinn einstaklingurinn væri núverandi eiginkona Sergeys. Hún er af erlendu bergi brotin en í fréttum hefur áður komið fram að hann sé talinn höfuðpaurinn í málinu. Karl sagðist ekki geta svarað að svo stöddu hvort Sergey yrði vís­ að úr landi eftir afplánun í sumar. Spurningar hafa vaknað um hvort Sergey yrði kyrrsettur á landinu ef fíkniefnamálið dregst á langinn. Líkamsárás á sömu konu DV hefur áður fjallað um mál tengd Sergey Gaysin. Þann 31. jan­ úar árið 2017 hlaut hann fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir lík­ amsárás á eiginkonu sína. Hafði hann þá kýlt hana með krepptum hnefa í andlitið, gripið um hand­ leggi hennar, snúið hana niður í gólf og haldið henni þar, ásamt því að þrýsta framhandlegg að hálsi hennar. Þá hefur hann gengist undir fjórar lögreglusáttir fyrir umferð­ arlagabrot frá árinu 2013 og í eitt skipti fannst metamfetamín og kannabis í þvagprufu hans. Í ágúst árið 2017 greindi DV frá því að spreyjað hefði verið á bíla konunnar og annarra nákom­ inna. Umræddir bílar voru hver í sínu sveitarfélagi. Sergey neitaði sök og sagðist hafa verið erlendis. Sumarið 2016 greindi DV frá því að kveikt hefði verið í bílskúr, skor­ ið í morgunverðartjald og húsgögn með dúkahníf á gistiheimili við Flókagötu. Sigurlaug Rúna Guð­ mundsdóttir, eigandi gistiheim­ ilisins, sagði að Sergey lægi undir grun en hún var með umgengnis­ rétt tveggja barna fyrir hönd ætt­ ingja. Sagði hún að Sergey væri ósáttur við fyrirkomulag sýslu­ manns. Sergey var ákærður fyrir að hafa hótað fyrrverandi eiginkonu sinni í tölvupósti. Viðurkenndi hann að hafa sent póstinn þar sem meðal annars stóð: „Ég skal gera líf þitt að hreinu helvíti, hrekja þig út í sjálfsmorð, bannsett druslan þín og þegar þú lætur verða af því tek ég af þér stærðarinnar mynd svo þú getir notið þess þegar þú mætir í Víti að vera merkileg persóna.“ Var hann sýknaður af ákærunni þar sem engin bein hótun um refsiverðan verknað þótti felast í orðunum. n Á þessum degi, 29. mars 845 – Innrásarher víkinga, sennilega undir forystu Ragnars loðbrókar, fer með ránum og ofbeldi um París. Ragnar loðbrók innheimtir svimandi hátt gjald fyrir að yfirgefa borgina. 1792 – Gústav III., konungur Svíþjóðar, andast eftir að hafa verið skotinn í bakið á grímudansleik í Konunglegu óperunni í Stokkhólmi 113 dögum fyrr. 1871 – Hljómleikahöllin Royal Albert Hall í London er opnuð formlega af Viktoríu drottningu. 1951 – Hjónin Ethel og Julius Rosenberg er sakfelld fyrir áform um njósnir. Síðustu orðin „Mér hefur aldrei liðið betur.“ – Leikarinn, handritshöfundurinn, leikstjórinn, og fleira, Douglas Fairbanks eldri (1883–1939) Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is SERGEY GAYSIN DÆMDUR FYRIR BROT GEGN FYRRVERANDI EIGINKONU SINNI n Stórt fíkniefnamál til rannsóknar n Margoft komist í kast við lögin „Sendi hann þann, 28. febrúar árið 2016, mynd af henni í kynlífs- athöfn á fjölskyldumeðlimi og unnusta hennar. Brenndur bílskúr Sigurlaug sagði Sergey liggja undir grun. Skemmdur bíll Sergey neitaði að hafa spreyjað á hann. Sergey Gaysin DV hefur áður greint frá málum honum tengdum. q MIKIÐ ÚRVAL FLOKKUNARÍLÁTA www.igf.isKomdu flokkunarmálunm í lag HÉR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.