Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 16
16 FÓKUS 29. mars 2019 Fermingarkostnaður hleypur á hundruðum þúsunda n Veitingarnar dýrastar n Hægt að spara með netverslun H in árlega fermingarvertíð nálgast óðfluga og að ýmsu er að huga þegar kemur að undirbúningnum. Um er að ræða mikilvæg tímamót í lífi fermingarbarnsins og fjöl- skyldunnar, en það getur kostað sitt að leiða barnið í fullorðinna manna tölu. Þannig getur kostn- aður vegna fermingarhalds auð- veldlega farið upp í hálfa milljón króna samkvæmt lauslegri úttekt DV. Fermingarfræðslan Gjald vegna fermingar hjá Þjóð- kirkjunni er um 20.000 krónur. Inni í því er kostnaður vegna ferm- ingarfræðslu og gjald fyrir leigu á fermingarkyrtli. Þá bætist í sum- um tilvikum við gjald vegna bóka og vegna ferðalaga sem tengjast fermingarfræðslunni. Veisluhald Hægt er að spara umtalsverðar fjár- hæðir með því að halda fermingar- veisluna í heimahúsi, en það er þó ekki á allra færi. Samkvæmt lauslegri könnun DV er nær ómögulegt að finna sal til leigu á höfuðborgar- svæðinu undir 40 þúsund krónum og á sumum stöðum getur leigan farið upp í 200 þúsund krónur. Þá er mismunandi hvort þjónusta starfs- manna sé innifalinn. Algengt er að greiða þurfi sérstaklega fyrir þjón- ustu eins eða tveggja starfsmanna. Algengt tímagjald er þá á bilinu 3.500 til 4.500 krónur. Kostnaður tengdur boðskortum fer eftir fjölda gesta en sé miðað við 80 gesti þá má gera ráð fyrir rúmlega 10 þúsund krónum sem fela þá í sér prentun á kortum, umslög og frí- merki. Veitingar Veitingar eru líklega stærsti kostn- aðarliðurinn við fermingarhaldið en kostnaðurinn getur þó verið afar misjafn. Til að mynda geta kökuboð verið ódýrari kostur en heitir réttir og þá er hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir með því að útbúa veitingar heima. Í þessu til- viki er miðað við að allar veitingar séu keyptar utan úr bæ. Flestir telja fermingartertuna ómissandi á veisluborðið. Verð á slíkri tertu fer að sjálfsögðu eft- ir stærð, en er sjaldnast undir 20 þúsund krónum. Hér er miðað við að nóg sé til af tertu fyrir 80 gesti. Margvíslegur kostnaður Langoftast er splæst í ný föt fyrir fermingarbarnið og er algengt að kostnaður sé á bilinu 10 til 20 þús- und krónur. Hægt er að spara tals- vert með því að kaupa erlendis eða hjá netverslunum. Þá er ótalinn annar kostnaður tengdur útliti fermingarbarnsins. Til að mynda er algengt að ferm- ingarstúlkur fari í brúnkusprautun og förðun fyrir stóra daginn og margir kjósa fara í húðhreinsun á snyrtistofu til að líta sem allra best út. Þá er fermingarhárgreiðslan mikilvæg í augum flestra ferm- ingarstúlkna. Að lokum ber að nefna marg- víslegan kostnað tengdan ferm- ingunni og veislunni. Skreytingar á veisluborð, servíettur og kerti, að ógleymdri gestabókinni. Grafarvogskirkja Fermingarbörn krjúpa. Fermingarhald Viðmiðunarkostnaður Rétt er að taka fram að listinn hér er langt í frá tæmandi og er aðeins til viðmiðunar. Forsend- ur útreikninga eru hóflega áætlaðar og ljóst er að hægt er að áætla bæði meiri og minni kostnað við ýmsa af útgjalda- liðunum. Fermingarfræðsla (Langholtskirkja) n Fræðslugjald: 19.146 kr. n Kostnaður vegna ferðalags: 15.000 kr. n Leiga á fermingarkyrtli: 2.000 kr. n Boðskort í veislu, 50 stk: 8.750 kr. (Mynd.is) Fermingarveisla n Leiga á sal: 60.000 kr. n Þjónusta tveggja starfsmanna í þrjár klst: 20.700 kr. n Veitingar (súpa, brauð og smáréttir) fyrir 80 manns: 230.000 kr. (Veislulist) n Fermingarterta fyrir 60 manns: 54.000 kr. (Myllan) n Fermingarterta fyrir 20 manns: 13.600 kr. (Myllan) Annað: n Myndataka: 29.000 kr. (Stúdíó Dís) n Sálmabók: 2.680 kr. (Garðheimar) n Föt og skór á fermingarbarn: 16.000 kr. (Gallerí 17) n Hárgreiðsla fyrir fermingarstúlku (prufugreiðsla innifalin): 24.500 kr. (Kompaníið) n Fermingarkerti með áletrun: 3.990 kr. (Blómaval) n Servíettur, áletraðar: 3.500 kr. (Blómaval) n Gestabók: 4.260 kr. (Múlalundur) Meðalverð: 507.126 kr. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.