Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 50
50 29. mars 2019
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 4. júní 1920
S
kagarokk var í senn mesta
ævintýri íslenskrar tón-
listar og ein harkalegasta
brotlendingin. Nokkrir
bæjarbúar á Akranesi tóku sig
saman og pöntuðu tvær af stærstu
rokksveitum veraldar til að koma
og spila í íþróttahúsinu í tilefni af
afmæli bæjarins. Tónleikarnir ollu
titringi, bæði hjá aðdáendum og
guðhræddum efasemdarmönn-
um.
Hróarskelda Íslands
Í byrjun árs 1992 var tilkynnt að
tvennir stórir tónleikar skyldu
haldnir á Akranesi um haustið í
tilefni af afmæli bæjarins. Þá voru
fimmtíu ár síðan Ytri-Akranes-
hreppur fékk kaupstaðarréttindi.
Ekki dugði að panta Sálina hans
Jóns míns eða Stuðmenn til þess
að fagna slíkum tímamótum. Nei,
nokkrar af stærstu rokkstjörnum
veraldar skyldu koma spila í
íþróttahúsinu helgina 25.–26.
september þetta ár; skosku rokk-
ararnir Jethro Tull á fyrra kvöldinu
og myrkraprinsinn sjálfur, Ozzy
Osbourne, á því seinna.
Sigurður Sverrisson, ritstjóri
Skagablaðsins, var forsvarsmaður
þeirra sem að tónleikunum stóðu.
En auk hans lögðu tveir aðrir ofur-
hugar, tvenn félagasamtök og þrjú
fyrirtæki í bænum út fyrir tónleik-
unum. Að flytja inn tónlistar atriði
til Íslands er ávallt fjárhagsleg
áhætta en tónleikahaldararnir
voru búnir að reikna út að þeir
þyrftu að fá 3.000 gesti í heildina til
þess að koma út á sléttu. Á
hvort kvöldið gátu þeir selt
2.500 miða, á 3.200 krónur
í forsölu eða 3.800 á staðn-
um.
Strax var farið að tala
um að gera Skagarokk að
árlegum viðburði og hugtakinu „Hróarskelda Íslands“ hent fram.
Einnig var gantast með að Reyk-
víkingar öfunduðust út í Skaga-
menn fyrir að geta haldið tónleik-
ana.
Beðið fyrir vesalingum
Strax heyrðust mótbárur frá guð-
hræddum. Gunnari Þorsteinssyni,
forstöðumanni Krossins, leist illa
á að Ozzy kæmi til landsins enda
væri hann hvað verstur af óguð-
legum þungarokkurum.
„Við munum biðja Guð um að
hreinsa þessa óværu af landinu
sem allra fyrst og hjálpa þess-
um vesalingum á Akranesi, sem
eru að kalla þetta yfir sjálfa sig og
æskulýðinn þar,“ sagði Gunnar í
samtali við Tímann þann 30. jan-
úar 1992.
„Ozzy Osbourne er einn af
forvígismönnum illskunnar í
tónlistinni og hefur verið fað-
ir þessara djöflatónlistarmanna
meira og minna, enda hefur
hann verið sýktur bæði af lyfj-
um og djöflum alla sína tíð. Þetta
er maður kominn fast að fimm-
tugu og á alveg ótrúlegan feril að
baki. Við munum biðja fyrir Ak-
urnesingum á okkar bænastund-
um hér í Krossinum, því þetta er
ljót sending fyrir þetta góða bæj-
arfélag.“
Var þetta ekki í fyrsta sinn
sem meðlimir Krossins báðu fyr-
ir tónleikagestum á þennan hátt.
Töldu þeir sig hafa verið bæn-
heyrða þegar tónleikar Whitesna-
ke í Reiðhöllinni árið 1990 og
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Skagarokk
strandaði á skeri
n Tónleikar Black Sabbath og Jethro Tull n Fyrirbænir Krossara n Gríðarlegt tap
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Gunnar Þorsteins-
son Forstöðumaður
Krossins.
Ian Anderson Forsprakki Jethro Tull.
Black Sabbath Aðeins
250 miðar seldust.