Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 26
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019KYNNINGARBLAÐ BLACK BEACH TOURS: Ógleymanleg upplifun í Þorlákshöfn Það er fátt skemmtilegra en fjórhjólaferð eða RIB-bátaferð í heillandi umhverfi. Fyrirtækið Black Beach Tours býður upp á slíkar ferðir í Þorlákshöfn. Fjaran þar er einkar falleg, um 10 kílómetra löng sandströnd (eldfjallaströnd) sem nær frá Ölfusá að bænum og mætir þar tilkomumiklum klettaveggjum að vestanverðu. Ógleymanlegt er að fara þarna um á fjórhjóli eða RIB- -báti. „Við erum frekar ný í þessum bransa, byrjuðum rekstur sumarið 2017 og árið 2018 var fyrsta heila árið í rekstri og má segja að við séum enn í uppbyggingarfasa. Við erum líka búin að opna 10 herbergja gisti heimili, Black Beach Guest- house, og setja upp þrjá bústaði (e. cottage) rétt fyrir utan bæinn við golfvöllinn. Þorlákshöfn hefur ekki boðið upp á mikið fyrir ferðamenn í gegnum tíðina og við orðið talsvert á eftir mörgum öðrum bæjum hvað þennan bransa varðar. En þetta er að breytast hratt og hér hafa opnast margir möguleikar í ferðaþjónustu á síðustu árum, til dæmis eru hér góðir veitingastaðir, glæsileg íþrótta- aðstaða, sundlaug og góð aðstaða fyrir tjaldgesti. Hér í nágrenninu eru líka ýmsir gistimöguleikar og nokk- uð gott framboð af afþreyingu, eins og til dæmis hestaleigur og -sýningar, kajakleiga og hellaskoðun í Lavatunnel, svo dæmi séu tekin,“ segir Össi hjá Black Beach Tours og bætir við: „Þótt við séum tiltölulega ný í bransanum hafa viðtökur verið mjög góðar og vanalega förum fram úr væntingum viðskiptavina, hvort sem um er að ræða litla eða stóra hópa, Íslendinga eða erlenda gesti, og við erum virkilega ánægð með þær góðu umsagnir sem hafa birst meðal annars á Tripadvisor, Google og Facebook. Okkar markmið er að gera okkur enn sýnilegri og við höfum væntingar um að auka vöru- framboðið og fá fleiri gesti.“ Black Beach Tours býður upp á fjórhjólaferðir allt árið um kring. Í boði eru einnar og tveggja klukkustunda ferðir eftir ströndinni og hins vegar þriggja tíma ferðir þar sem farið er um hraun og slóða vestur í Selvog og að Strandarkirkju. RIB-bátaferðir eru í boði á tímabilinu maí til október og er þar hægt að velja á milli 30 mínútna adrenalínferðar, klukkustundar langrar ferðar og tveggja tíma ferðar, en sú síðastnefnda liggur vestur í Krýsuvíkurbjarg. Einnig er hægt að splæsa saman fjórhjólaferð og RIB- -bátaferð (Comboferð) sem er afar skemmtileg blanda. Einnig er boðið upp á sérferðir (e. private tours) á bæði fjórhjól og í RIB-bátaferðir, en að auki er hægt að fara í sjóstöng á Auðdísi sem er 40 feta mótorsnekkja og yfirleitt þarf ekki að fara langt til að komast í góða veiði. Black Beach Tours er með mjög góða aðstöðu fyrir starfsmanna- og vinahópa þar sem hægt er að bjóða upp á veitingar eftir ferðir, allt eins og hentar hverjum hópi. Á www.blackbeachtours.is er að finna nánari upplýsingar um allar ferðir og verð. Ef um hópa er að ræða er best að óska eftir tilboðum með tölvupósti á info@blackbeachtours.is eða með því að hafa samband í síma 556-1500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.