Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 36
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Ævintýraveröld fyrir fjölskyldufólk Páskarnir eru eitt stærsta ferðatímabil Íslendinga enda tilvalið að brjóta upp á grá- mann og vorhretið með því að skella sér í stuttar dagsferðir út á land. Í Þorlákshöfn er að finna eina af flottari sundlaugum landsins sem dregur fólk hvaðanæva að. Laugin var endurbyggð og tekin í notkun með pomp og prakt í ágústbyrjun 2008. Sundlaugin er með glæsilegu úti- svæði með tveimur glænýjum heit- um pottum sem voru teknir í gagnið síðastliðið sumar, 25 metra laug fyrir sundgarpa, tvær vatnsrennibrautir, vaðlaug og fyrirtaks eimbað. Að auki eru bæði inni- og útiklefar. Skrautfjöðrin er innisvæðið „Krúnudjásn sundlaugarinnar í Þorlákshöfn er þó án efa innisvæð- ið.“ Þar er að finna stórkostlega ævintýraveröld fyrir ungviðið. Innilaugin er 45 sentimetra djúp vaðlaug með fjöldanum öllum af skemmtilegum leiktækjum. „Hér eru fötur, sveppur með fossi, leikkastali, rennibrautir, vatnsspúandi ormur og margt fleira. Laugin er um 35°C og lofthitastig er einnig í kringum 35°C sem hentar krökkunum sérstaklega vel. Foreldrarnir geta haft góða yfirsýn frá bakkanum og geta fylgst vel með börnum sínum ofan í lauginni. Aðrir skemmta sér við að leika sér ofan í lauginni með krökkunum.“ Laugin trekkir að „Það eru margar barnafjölskyld- ur sem gera sér sérstakar ferðir úr Reykjavík hingað til Þorlákshafnar, til þess að skella sér í sund. Enda þótt laugarnar á höfuðborgarsvæðinu séu fjölmargar, þá er þar ekkert að finna í líkingu við það sem við erum með hér. Börnin elska að fá að leika sér óhindrað í laug sem er sérstaklega hönnuð fyrir þau, með fullt af leiktækjum og nóg vatn til að skvetta framan í grunlausa foreldra sína. Á virkum morgnum er sérlega vinsælt fyrir nýbakaða foreldra að gera sér ferð hingað. Þá er einstaklega rólegt og hentar þá vel að fara í laugina með þau allra yngstu.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni olfus.is og Facebook-síð- unni: Sundlaug Þorlákshafnar Vetraropnun, 1. september til 31. maí: Virka daga: 07.00–21.00 Um helgar: 10.00–17.00 Hafnarbergi 41, 815 Þorlákshöfn Sími: 480-3890 SUNDLAUGIN Í ÞORLÁKSHÖFN:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.