Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 17
FÓKUS 1729. mars 2019 Þ að býr einhver barátta í mér, af hverju er þetta svona erfitt?“ segir einstæð, nokkurra barna móðir, sem er að ferma núna í apríl. Konan býr utan Reykjavíkur og engin að- stoð í boði þar sem hún býr, en íbúum höfuðborgarinnar stendur einhver aðstoð til boða. Útborguð mánaðarlaun hennar eru jafnhá og leigan sem hún greiðir og berst hún alla mánuði við að ná endum saman. „Ég er í leiguhúsnæði og greiði 200 þúsund krónur í leigu og síðan hita og rafmagn. Ég er að fá útborgað um 200 þúsund krónur á mánuði og húsaleigubætur upp á 50 þúsund krónur.“ Gat ekki staðið við loforð Konan á foreldra og systkini, en eins og hún segir sjálf þá hefur hver og einn nóg með sitt, þrátt fyrir að allir séu af vilja gerðir til að veita henni aðstoð. „Mér líð- ur mjög illa ef ég þarf að biðja for- eldra mína um aðstoð. Þau eiga bara nóg með sitt. En stundum fæ ég matarpoka frá þeim. Ég veit að þau og systkini mín myndu vilja gera allt fyrir mig, en hver og einn á nóg með sitt. Við erum ekki efnamikil fjölskylda,“ segir konan og bætir við að barnsfaðir hennar taki oft ekki vel í beiðni hennar um aðstoð, en hann muni þó greiða einhvern hluta af fermingarkostn- aðnum. „En eigi að síður á ég erfitt með að greiða minn hluta. Yfir- leitt þegar ég bið hann um aðstoð þá endar það með einhverju rifr- ildi og það sé mér að kenna hvað hlutirnir kosta í dag. Ég hef hingað til, eins og um jól og slíkt, sótt um styrk hjá Mæðrastyrksnefnd á Akranesi, en hún hefur bent mér á að tala við prestinn á staðnum, sem vís- ar mér beint aftur til Mæðrastyrks- nefndarinnar. Fjárhagsstaðan hjá nefndinni er svo bág í ár að hún hefur gefið út að það verði engin páskaaðstoð,“ segir konan. „Það kom tímabil þar sem ég var atvinnulaus. Þá átti ég mjög erfitt og fór nokkrar ferðir til Mæðrastyrksnefndar í Reykja- vík og sótti mér aðstoð þar. Og mér þótti það afar erfitt, standa í þessari röð og eins þakklát og ég var fyrir aðstoðina þá fannst mér ég ítrekað vera að koma með eitthvað heim sem hentaði okk- ur ekki. Á því tímabili þá þurfti ég að fá lánað hér og þar og það hafa orðið vinslit hjá mér þar sem mér tókst ekki að standa við loforð um að greiða til baka.“ Margt dýrt í gangi hjá börnunum Eins og oft vill verða hjá einstæð- um foreldrum sem hafa ekki mik- ið milli handanna þá er konan búin að vanrækja sjálfa sig. „Ég þyrfti fyrir löngu að vera farin til tannlæknis, en ég skulda honum svo mikið að ég er komin í klípu. Það var byrjað á einhverri rótar- aðgerð, svo hætti ég að geta borg- að. Ég má ekki eiga greiðslukort og hann vildi ekki semja við mig um greiðslur, þannig að þetta er eitt- hvað sem ég sé ekki fram á að geta lagað og greitt fyrir.“ Fermingarkostnaður er þó ekki það eina sem setur strik í fjárhaginn í ár. „Það er svo margt dýrt annað í gangi hjá börnunum mínum, eitt þeirra er að fara í ferð á vegum skólans, annað er í Skólahreysti og að fara í skíða- ferðalag. Ég er svo glöð þegar þau vilja taka þátt í einhverju að ég get ekki annað en reynt að eiga fyrir slíkum útgjöldum. Fjárhagsáætl- unin sem ég var búin að gera, þar sem ég sá fyrir mér að geta skrap- að saman 5.000 krónur hér og þar, hún er farin algjörlega út um þúf- ur.“ Auk þess þarf eitt barna henn- ar á sérfræðiaðstoð að halda og bendir konan á að þó að tímar hjá sálfræðingi og geðlækni séu endurgreiddir, þá fylgi því samt sem áður kostnaður að koma barninu til læknanna. „Þarf eitthvað að skreyta?“ Fermingarundirbúningurinn er ekki kominn langt á veg. „Það er ekki mikið komið sem ég er búin að borga, þar sem ég hef ekki átt pening. Matarinnkaupin eru eftir, ég trúi ekki öðru en að við for- eldrarnir munum skipta þeim til helminga. Börnin eiga ekki spari- föt, við höfum ekki keypt slíkt undanfarin ár, bara reynt að láta þetta sleppa. Ég er ekki einu sinni byrjuð að hugsa um gjöf. Ég er í hópnum Fermingarund- irbúningur á Facebook og ég loka bara augunum þegar ég sé suma póstana þar. Barnið mitt hefur ekki miklar áhyggjur af þessu og spyr bara: „þarf eitthvað að skreyta?“ Þetta verður bara nett hjá okkur, það er allavega ekki mikill pening- ur að fara í skreytingar.“ Konan segist síðustu ár oft hafa skrópað í veislum sem henni og börnum hennar hefur verið boð- ið í þar sem hún hefur einfald- lega ekki haft efni á að kaupa gjaf- ir. „Nú ber svo við að um leið og ég er að ferma er okkur boðið í ferm- ingarveislur hjá vinum og ættingj- um. Ég vil ekki vera að skrópa hjá fólki sem ég vil að komi til okkar í veislu. Fjárhagsáhyggjur gera mann veikan, ég kláraði allt veikinda fríið mitt í fyrra, því ég fékk taugaáfall í tvígang. Í stað þess að vera glað- ur þegar einhver á afmæli eða það eru að koma jól, þá eykur slíkt bara á áhyggjur manns. Ég held svo oft að betri tímar séu að koma, en þá kemur alltaf eitthvað nýtt upp á.“ n MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS Í REYKJANESBÆJARhjarta Einstæð móðir sem er að ferma er föst í viðjum fátæktar n Ekki leyft sér að huga að gjöf n Vinslit vegna lána„Virkilega vont að vera alltaf með peningaáhyggjur Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.