Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Page 17
FÓKUS 1729. mars 2019
Þ
að býr einhver barátta
í mér, af hverju er þetta
svona erfitt?“ segir einstæð,
nokkurra barna móðir, sem
er að ferma núna í apríl. Konan
býr utan Reykjavíkur og engin að-
stoð í boði þar sem hún býr, en
íbúum höfuðborgarinnar stendur
einhver aðstoð til boða. Útborguð
mánaðarlaun hennar eru jafnhá
og leigan sem hún greiðir og berst
hún alla mánuði við að ná endum
saman. „Ég er í leiguhúsnæði og
greiði 200 þúsund krónur í leigu og
síðan hita og rafmagn. Ég er að fá
útborgað um 200 þúsund krónur á
mánuði og húsaleigubætur upp á
50 þúsund krónur.“
Gat ekki staðið við loforð
Konan á foreldra og systkini, en
eins og hún segir sjálf þá hefur
hver og einn nóg með sitt, þrátt
fyrir að allir séu af vilja gerðir til
að veita henni aðstoð. „Mér líð-
ur mjög illa ef ég þarf að biðja for-
eldra mína um aðstoð. Þau eiga
bara nóg með sitt. En stundum
fæ ég matarpoka frá þeim. Ég veit
að þau og systkini mín myndu
vilja gera allt fyrir mig, en hver og
einn á nóg með sitt. Við erum ekki
efnamikil fjölskylda,“ segir konan
og bætir við að barnsfaðir hennar
taki oft ekki vel í beiðni hennar um
aðstoð, en hann muni þó greiða
einhvern hluta af fermingarkostn-
aðnum. „En eigi að síður á ég erfitt
með að greiða minn hluta. Yfir-
leitt þegar ég bið hann um aðstoð
þá endar það með einhverju rifr-
ildi og það sé mér að kenna hvað
hlutirnir kosta í dag.
Ég hef hingað til, eins og um
jól og slíkt, sótt um styrk hjá
Mæðrastyrksnefnd á Akranesi,
en hún hefur bent mér á að tala
við prestinn á staðnum, sem vís-
ar mér beint aftur til Mæðrastyrks-
nefndarinnar.
Fjárhagsstaðan hjá nefndinni
er svo bág í ár að hún hefur gefið út
að það verði engin páskaaðstoð,“
segir konan. „Það kom tímabil þar
sem ég var atvinnulaus. Þá átti ég
mjög erfitt og fór nokkrar ferðir
til Mæðrastyrksnefndar í Reykja-
vík og sótti mér aðstoð þar. Og
mér þótti það afar erfitt, standa
í þessari röð og eins þakklát og
ég var fyrir aðstoðina þá fannst
mér ég ítrekað vera að koma með
eitthvað heim sem hentaði okk-
ur ekki. Á því tímabili þá þurfti ég
að fá lánað hér og þar og það hafa
orðið vinslit hjá mér þar sem mér
tókst ekki að standa við loforð um
að greiða til baka.“
Margt dýrt í gangi hjá
börnunum
Eins og oft vill verða hjá einstæð-
um foreldrum sem hafa ekki mik-
ið milli handanna þá er konan
búin að vanrækja sjálfa sig. „Ég
þyrfti fyrir löngu að vera farin til
tannlæknis, en ég skulda honum
svo mikið að ég er komin í klípu.
Það var byrjað á einhverri rótar-
aðgerð, svo hætti ég að geta borg-
að. Ég má ekki eiga greiðslukort og
hann vildi ekki semja við mig um
greiðslur, þannig að þetta er eitt-
hvað sem ég sé ekki fram á að geta
lagað og greitt fyrir.“
Fermingarkostnaður er þó
ekki það eina sem setur strik í
fjárhaginn í ár. „Það er svo margt
dýrt annað í gangi hjá börnunum
mínum, eitt þeirra er að fara í
ferð á vegum skólans, annað er
í Skólahreysti og að fara í skíða-
ferðalag. Ég er svo glöð þegar þau
vilja taka þátt í einhverju að ég get
ekki annað en reynt að eiga fyrir
slíkum útgjöldum. Fjárhagsáætl-
unin sem ég var búin að gera, þar
sem ég sá fyrir mér að geta skrap-
að saman 5.000 krónur hér og þar,
hún er farin algjörlega út um þúf-
ur.“
Auk þess þarf eitt barna henn-
ar á sérfræðiaðstoð að halda og
bendir konan á að þó að tímar
hjá sálfræðingi og geðlækni séu
endurgreiddir, þá fylgi því samt
sem áður kostnaður að koma
barninu til læknanna.
„Þarf eitthvað að skreyta?“
Fermingarundirbúningurinn er
ekki kominn langt á veg. „Það er
ekki mikið komið sem ég er búin
að borga, þar sem ég hef ekki átt
pening. Matarinnkaupin eru eftir,
ég trúi ekki öðru en að við for-
eldrarnir munum skipta þeim til
helminga. Börnin eiga ekki spari-
föt, við höfum ekki keypt slíkt
undanfarin ár, bara reynt að láta
þetta sleppa. Ég er ekki einu sinni
byrjuð að hugsa um gjöf.
Ég er í hópnum Fermingarund-
irbúningur á Facebook og ég loka
bara augunum þegar ég sé suma
póstana þar. Barnið mitt hefur ekki
miklar áhyggjur af þessu og spyr
bara: „þarf eitthvað að skreyta?“
Þetta verður bara nett hjá okkur,
það er allavega ekki mikill pening-
ur að fara í skreytingar.“
Konan segist síðustu ár oft hafa
skrópað í veislum sem henni og
börnum hennar hefur verið boð-
ið í þar sem hún hefur einfald-
lega ekki haft efni á að kaupa gjaf-
ir. „Nú ber svo við að um leið og ég
er að ferma er okkur boðið í ferm-
ingarveislur hjá vinum og ættingj-
um. Ég vil ekki vera að skrópa hjá
fólki sem ég vil að komi til okkar í
veislu.
Fjárhagsáhyggjur gera mann
veikan, ég kláraði allt veikinda fríið
mitt í fyrra, því ég fékk taugaáfall í
tvígang. Í stað þess að vera glað-
ur þegar einhver á afmæli eða það
eru að koma jól, þá eykur slíkt bara
á áhyggjur manns.
Ég held svo oft að betri tímar
séu að koma, en þá kemur alltaf
eitthvað nýtt upp á.“ n
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
Einstæð móðir
sem er að ferma er
föst í viðjum fátæktar
n Ekki leyft sér að huga að gjöf n Vinslit vegna lána„Virkilega vont að
vera alltaf með
peningaáhyggjur
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is