Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 33
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ SKÍÐASVÆÐIÐ Í DALVÍK: Falin fjallaparadís Skíðasvæðið í Dalvík er eitt best geymda leyndarmál skíða-mannsins. „Svæðið er lítið og nánast alveg uppi við bæjardyrnar. Það er hálfvegis á láglendi og því státum við af sérlega góðu og lygnu veðri hér í brekkunum. Skíðasvæð- ið hefur að geyma ótal möguleika fyrir unga sem aldna skíðaiðkendur, byrjendur sem lengra komna. Við höf- um einnig notið sérlega góðs skíða- veðurs í vetur og búin að hafa hvað flesta opnunardaga af öllum skíða- svæðunum,“ segir Gerður Olofsson, formaður Skíðafélags Dalvíkur. Á staðnum er leiga á skíðabúnaði og brettum fyrir unga sem aldna. Því miður er ekki boðið upp á leigu á gönguskíðum. Brekkur við allra hæfi „Við erum með tvær skíðalyftur og troðum brekkurnar fyrir skíða iðkendur á flestum getustigum. Þeir allra hörðustu taka lyftuna alla leið og ganga svo áfram upp á topp fjallsins með fjallaskíðin sín. Þaðan geta þeir rennt sér niður eftir ótroðnum leiðum í púðursnjó,“ segir Gerður. Skíðasvæðið í Dalvík er lítið og þar liggur einmitt sjarminn. Svæðið er fullkomið fyrir minni hópa, fjölskyldur og vinahópa. „Fólki finnst notalegt að koma hingað því hér týnist enginn. Hér er fallegur skíðaskáli þar sem seldar eru veitingar eins og vöfflur og kakó. Einnig er gistiaðstaða í skálanum, bæði svefnpokapláss og sér herbergi með uppábúnum rúmum. Einnig leggjum við gönguskíða- brautir þegar viðrar til þess. Göngu- skíðahringurinn er í gullfallegum skógarreit hér neðan við skíðasvæðið. Gönguvanir geta jafnvel ákveðið að lengja ferð sína, t.d. alveg upp að Mosa. Ég mæli þá með að fólk fái ráðleggingar frá heimamönnum um skemmtilegar gönguskíðaleiðir.“ Páskagleði í fjallinu Um páskana verður mikil gleði í fjallinu. „Við verðum með okkar árlega Páskaeggjamót fyrir litla skíða iðkendur á aldrinum 3–8 ára. Stemningin er alltaf skemmtileg á þessu móti og allir fá páskaegg þegar þeir koma niður brekkuna. Einnig erum við með samhliða svigmót fyrir fyrirtæki. Þá keppa tveir í einu niður fjallið. Þetta er alltaf vinsælt og lang- flest fyrirtæki hér í bænum sem taka þátt í keppninni.“ Frítt er á svæðið fyrir börn á leik- skólaaldri. Opnunartími yfir páskana er frá 10–16 alla daga. Sími: 466-1010 Endilega fylgist með okkur á ski- dalvik.is og á Facebook: Skíðasvæði Dalvíkur SUNDLAUGIN Á DALVÍK: Fullkominn endir á góðum skíðadegi Eftir góða salíbunu í brekkunni er fátt betra en að skella sér í sjóð-heitt sund. Á Dalvík er glæsileg sundlaug með 25 metra útisundlaug, vaðlaugum, lóni, tveimur stórum renni- brautum, köldum potti og tveimur heitum pottum ásamt gufu þar sem dásamlegt er að láta líða úr þreyttum vöðvum eftir langan dag í fjöllunum. Lengdur opnunartími „Sundlaugin var öll tekin í gegn árið 2017 og er ein hin glæsilegasta á svæðinu þótt ég segi sjálfur frá. Um páskahelgina höfum við ákveðið að færa opnunartí- mann til að koma til móts við skíðafólk,“ segir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á Dalvík. Um páskahelgina verður því opið frá 10–18. (Venju- leg helgaropnun er 9–17) Annars er opið á mán.– fim. frá 6.15–20, fös. frá 6.15–19 Íþróttamiðstöð Dalvíkur Svarfaðarbraut 34, Dalvík. Sími: 460-4940 Nánari upplýsingar má nálgast á dalvikurbyggd. is og Facebook: Íþrótta- miðstöðin á Dalvík Þegar veður leyfir þá er grillað í fjallinu. Páskakanínan og Grýla. Íþróttamiðstöð Dalvíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.