Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Side 33
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
SKÍÐASVÆÐIÐ Í DALVÍK:
Falin fjallaparadís
Skíðasvæðið í Dalvík er eitt best geymda leyndarmál skíða-mannsins. „Svæðið er lítið og
nánast alveg uppi við bæjardyrnar.
Það er hálfvegis á láglendi og því
státum við af sérlega góðu og lygnu
veðri hér í brekkunum. Skíðasvæð-
ið hefur að geyma ótal möguleika
fyrir unga sem aldna skíðaiðkendur,
byrjendur sem lengra komna. Við höf-
um einnig notið sérlega góðs skíða-
veðurs í vetur og búin að hafa hvað
flesta opnunardaga af öllum skíða-
svæðunum,“ segir Gerður Olofsson,
formaður Skíðafélags Dalvíkur. Á
staðnum er leiga á skíðabúnaði og
brettum fyrir unga sem aldna. Því
miður er ekki boðið upp á leigu á
gönguskíðum.
Brekkur við allra hæfi
„Við erum með tvær skíðalyftur og
troðum brekkurnar fyrir skíða iðkendur
á flestum getustigum. Þeir allra
hörðustu taka lyftuna alla leið og
ganga svo áfram upp á topp fjallsins
með fjallaskíðin sín. Þaðan geta þeir
rennt sér niður eftir ótroðnum leiðum
í púðursnjó,“ segir Gerður.
Skíðasvæðið í Dalvík er lítið og þar
liggur einmitt sjarminn. Svæðið er
fullkomið fyrir minni hópa, fjölskyldur
og vinahópa. „Fólki finnst notalegt að
koma hingað því hér týnist enginn.
Hér er fallegur skíðaskáli þar sem
seldar eru veitingar eins og vöfflur
og kakó. Einnig er gistiaðstaða í
skálanum, bæði svefnpokapláss og
sér herbergi með uppábúnum rúmum.
Einnig leggjum við gönguskíða-
brautir þegar viðrar til þess. Göngu-
skíðahringurinn er í gullfallegum
skógarreit hér neðan við skíðasvæðið.
Gönguvanir geta jafnvel ákveðið að
lengja ferð sína, t.d. alveg upp að
Mosa. Ég mæli þá með að fólk fái
ráðleggingar frá heimamönnum um
skemmtilegar gönguskíðaleiðir.“
Páskagleði í fjallinu
Um páskana verður mikil gleði í
fjallinu. „Við verðum með okkar
árlega Páskaeggjamót fyrir litla
skíða iðkendur á aldrinum 3–8 ára.
Stemningin er alltaf skemmtileg á
þessu móti og allir fá páskaegg þegar
þeir koma niður brekkuna. Einnig
erum við með samhliða svigmót fyrir
fyrirtæki. Þá keppa tveir í einu niður
fjallið. Þetta er alltaf vinsælt og lang-
flest fyrirtæki hér í bænum sem taka
þátt í keppninni.“
Frítt er á svæðið fyrir börn á leik-
skólaaldri.
Opnunartími yfir páskana er frá
10–16 alla daga.
Sími: 466-1010
Endilega fylgist með okkur á ski-
dalvik.is og á Facebook: Skíðasvæði
Dalvíkur
SUNDLAUGIN Á DALVÍK:
Fullkominn endir á góðum skíðadegi
Eftir góða salíbunu í brekkunni er fátt betra en að skella sér í sjóð-heitt sund. Á Dalvík er glæsileg
sundlaug með 25 metra útisundlaug,
vaðlaugum, lóni, tveimur stórum renni-
brautum, köldum potti og tveimur
heitum pottum ásamt gufu þar sem
dásamlegt er að láta líða úr þreyttum
vöðvum eftir langan dag í fjöllunum.
Lengdur opnunartími
„Sundlaugin var öll tekin í gegn árið 2017
og er ein hin glæsilegasta á svæðinu
þótt ég segi sjálfur frá. Um páskahelgina
höfum við ákveðið að færa opnunartí-
mann til að koma til móts við skíðafólk,“
segir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi á Dalvík.
Um páskahelgina verður
því opið frá 10–18. (Venju-
leg helgaropnun er 9–17)
Annars er opið á mán.–
fim. frá 6.15–20, fös. frá
6.15–19
Íþróttamiðstöð Dalvíkur
Svarfaðarbraut 34,
Dalvík.
Sími: 460-4940
Nánari upplýsingar má
nálgast á dalvikurbyggd.
is og Facebook: Íþrótta-
miðstöðin á Dalvík
Þegar veður leyfir þá er grillað í fjallinu.
Páskakanínan og Grýla.
Íþróttamiðstöð Dalvíkur