Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 36
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Ævintýraveröld fyrir fjölskyldufólk
Páskarnir eru eitt stærsta ferðatímabil Íslendinga enda tilvalið að brjóta upp á grá-
mann og vorhretið með því að skella
sér í stuttar dagsferðir út á land.
Í Þorlákshöfn er að finna eina af
flottari sundlaugum landsins sem
dregur fólk hvaðanæva að. Laugin
var endurbyggð og tekin í notkun með
pomp og prakt í ágústbyrjun 2008.
Sundlaugin er með glæsilegu úti-
svæði með tveimur glænýjum heit-
um pottum sem voru teknir í gagnið
síðastliðið sumar, 25 metra laug fyrir
sundgarpa, tvær vatnsrennibrautir,
vaðlaug og fyrirtaks eimbað. Að auki
eru bæði inni- og útiklefar.
Skrautfjöðrin er innisvæðið
„Krúnudjásn sundlaugarinnar í
Þorlákshöfn er þó án efa innisvæð-
ið.“ Þar er að finna stórkostlega
ævintýraveröld fyrir ungviðið.
Innilaugin er 45 sentimetra djúp
vaðlaug með fjöldanum öllum af
skemmtilegum leiktækjum. „Hér eru
fötur, sveppur með fossi, leikkastali,
rennibrautir, vatnsspúandi ormur og
margt fleira. Laugin er um 35°C og
lofthitastig er einnig í kringum 35°C
sem hentar krökkunum sérstaklega
vel. Foreldrarnir geta haft góða
yfirsýn frá bakkanum og geta fylgst
vel með börnum sínum ofan í lauginni.
Aðrir skemmta sér við að leika sér
ofan í lauginni með krökkunum.“
Laugin trekkir að
„Það eru margar barnafjölskyld-
ur sem gera sér sérstakar ferðir úr
Reykjavík hingað til Þorlákshafnar, til
þess að skella sér í sund. Enda þótt
laugarnar á höfuðborgarsvæðinu séu
fjölmargar, þá er þar ekkert að finna
í líkingu við það sem við erum með
hér. Börnin elska að fá að leika sér
óhindrað í laug sem er sérstaklega
hönnuð fyrir þau, með fullt af
leiktækjum og nóg vatn til að skvetta
framan í grunlausa foreldra sína. Á
virkum morgnum er sérlega vinsælt
fyrir nýbakaða foreldra að gera sér
ferð hingað. Þá er einstaklega rólegt
og hentar þá vel að fara í laugina
með þau allra yngstu.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni olfus.is og Facebook-síð-
unni: Sundlaug Þorlákshafnar
Vetraropnun, 1. september til 31.
maí:
Virka daga: 07.00–21.00
Um helgar: 10.00–17.00
Hafnarbergi 41, 815 Þorlákshöfn
Sími: 480-3890
SUNDLAUGIN Í ÞORLÁKSHÖFN: