Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Side 3
Sagnasjóður handa nýrri öld
Íslendingasögur og þættir
í nýrri og glæsilegri fimm binda heildarútgáfu
Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson.
Útgáfan er skreytt 40 myndum eftir dönsku listakonuna Karin Birgitte Lund.
Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir
51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formálar
sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýr-
ingar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda sem
varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn og
verjur. Þá fylgir útgáfunni
sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í
sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni
sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum,
haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunn-
indum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reim-
leikum, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Bækurnar fimm eru einstaklega vandaðir prentgripir
www.vinland@centrum.is • sími: 8937719 • 5627950
„Íslendingasögurnar eru úrvalsverk
heimsbókmenntanna og fá enn nýtt
líf í þessari vönduðu útgáfu Saga
forlagsins. Þær hafa öllu öðru fremur
skapað og styrkt vitund Íslendinga
sem þjóðar við útmörk Evrópu og
verið okkur siðferðislegur leiðarvísir
og vísidómsbrunnur. Enn eru þær
sístarfandi að mótun okkar og mikil-
vægi þeirra er augljóst á hvaða tímum
sem er - og kannski sérstaklega nú á
okkar dögum.“
Arnaldur Indriðason:
„Við Íslendingar eigum engar fornar
borgir með höllum og höfuðkirkjum,
listasöfnum eða háskólum. En við
eigum fornar bækur með listaverkum
á borð við Íslendingasögur og það eru
okkar dýrgripir, hallir og höfuðkirkjur,
listasöfn og háskólar.“
Einar Kárason:
„Íslendingasögurnar bjóða okkur að
setjast við fótskör formæðra okkar og for-
feðra þar sem við heyrum þau sjálf segja frá
sigrum sínum og sorgum, vonum og ótta. Enn berst
þaðan hvinur af sverðum og gustur hnífbeittra orða.“
Gerður Kristný: