Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 20
20 FÓKUS 29. mars 2019
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR
86.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús á 2 hæðum
286 M2
7
BOÐGRANDI 3, 107 REYKJAVÍK
48.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
96 M2
4
LEIÐHARMAR 12, 112 REYKJAVÍK
98.000.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Einbýli á 2 hæðum
280 M2
7
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
Ég hef ekki upplifað neitt nei-
kvætt gagnvart mér sjálfum, en
hef lesið ýmislegt á netinu og oft
fæ ég kjánahroll vegna þess hvern-
ig talað er um þetta. Fyrir mér er
þetta hetjusaga, eitthvað sem ég
er stoltur af og ég er alveg opinn
með. Ég get talað um þetta eins
og enginn sé morgundagurinn. Ég
hef meira að segja rætt um um-
skurðinn á McDonald’s hérna í
Danmörku. Umskurður er ekki
eitthvað til þess að skammast sín
fyrir og það getur enginn breytt
þínum skoðunum. Við eigum að
vera opin með það sem við gerum,
hvort sem það eru kynfæri okkar
eða ekki. Þau eru ekkert til þess að
skammast sín fyrir.“
Halldór segir að umræðan um
umskurð megi ekki vera eins nei-
kvæð og hún hefur verið, þar sem
margir karlmenn þurfi að gangast
undir þessa aðgerð til þess að geta
lifað góðu lífi. Segist hann ræða
umskurðinn mjög opinberlega
og að oft hafi hann komist að því
að karlmenn í kringum hann séu
einnig umskornir, aðeins vegna
þess að hann ræddi það að fyrra
bragði.
„Við eigum að gera það sem við
getum til þess að lifa betur og ekki
vera feimin við að vera við sjálf.
Það er ekki erfitt að opna þessa
umræðu. Átt þú erfitt með að fá
standpínu? Farðu til læknis. Átt
þú erfitt með sjálfsfróun? Farðu til
læknis. Við eigum ekki að forðast
lækna, við eigum að leita til þeirra.
Þeir hjálpa okkur.“
Ekki öll typpi eins
Annar maður sem blaðakona
ræddi við tók ákvörðun um að
koma ekki fram undir nafni en
þótti viðfangsefnið þó það mik-
ilvægt að hann var einnig tilbú-
inn til þess að deila reynslu sinni.
Hann köllum við Ragnar. Ragnar
segist ekki hafa séð mikið rætt um
málefnið, en að ungum karlmönn-
um ætti að vera kennt að getnað-
arlimir séu ekki allir eins og að hjá
sumum séu gallar sem gæti þurft
að laga.
„Læknar höfðu tvisvar sinnum
framkvæmt aðgerð sem víkkaði
forhúðina. Í bæði skiptin virkaði
aðgerðin tímabundið eða var illa
gerð. Ég var ekki viss og ákvað því
sjálfur að fara í þessa aðgerð. For-
húðin var of þröng og komst ekki
niður fyrir kónginn í fullri reisn. Ég
stundaði kynlíf án örvunar, í raun
og veru, fram að því. Svo var þrifn-
aður leiðinlegur, forhúðarostur al-
gengur og óþefur einnig. Munn-
mök og kynlíf sjálft var dauft og
ég var búinn að eyða yfir tuttugu
árum í að ímynda mér hvernig
það væri að stunda kynlíf þar sem
typpið fengi örvun. Það þótti mér
leiðinlegt.“
Ragnar segist ekki hafa verið
mjög kvíðinn fyrir aðgerðinni
sjálfri en hafði hann þó áhyggjur
af því að getn-
aðarlimur hans
yrði afar viðkvæmur
eftir að forhúðin yrði fjar-
lægð.
„Stundum fann ég sársauka
þegar hann gægðist út fyrir húð-
ina og skrapaðist við buxur. Ég
snerti hann sjaldan sjálfur þar
sem það var óþægilegt. Þetta er
eitthvað sem gerðist vegna þess
að hann hafði aldrei verið snertur
en eftir aðgerð vandist snerting
fljótt og þetta er ekki vandamál í
dag. Ég hafði líka haft áhyggjur af
því að missa forhúðina sem er til-
finningarík og fitl við hana veitti
unað. Þessar áhyggjur voru þó
óþarfar því þrátt fyrir að sá hluti
af forhúðinni sem eftir stendur sé
ekki næmur fyrir örvun þá er húð-
in rétt fyrir neðan kónginn og að
ytri húðinni sem eftir stóð enn þá
næm.“
Fannst hann ekki geta rætt
vandamálið upphátt
Ragnar segist ekki hafa verið feim-
inn við að ræða aðgerðina enda
fannst honum alveg eðlilegt að
þurfa á henni að halda.
„Ég var kannski ekki nógu feim-
inn þar sem dag aðgerðarinnar var
ég í eldhúsinu hjá ömmu og bróðir
minn ætlaði að keyra mig og sækja,
mágkona mín var stödd þarna og
spurði mig í hvaða aðgerð ég væri
að fara og án þess að missa úr takti
sagði ég: „Ég er að fara í umskurð,“
og það sló þögn á alla í eldhúsinu,“
segir Ragnar og hlær.
Þar sem Ragnar hafði þegar
farið í tvær aðgerðir á forhúðinni
ákvað hann að fá svæfingu í þetta
skiptið. Því man hann lítið eftir að-
gerðinni sjálfri, en segir eftirleik-
inn hafa verið einfaldan.
„Ég gekk um í joggingbuxum og
víðklofa en það lagaðist fljótt. Þetta
var voða lítið mál og uppfyllti all-
ar mínar væntingar. Það var mjög
skrítið að geta snert kónginn fyrst.“
Ragnar segist ekki hafa orðið
var við mikla umræðu um aðgerð-
ir sem þessar en hann telur kyn-
færi fólks alltaf vera feimnismál að
einhverju leyti.
„Ég hef ekki upplifað neikvæða
umræðu gagnvart umskurði full-
orðinna karlmanna, en ég tel að
neikvæð umræða hafi myndast
vegna þess að fólki á að misbjóða
limlestingar á börnum byggðar á
hindurvitnum og álfasögum. Ég
hef aldrei heyrt að umskurður sé
neikvæður þegar fullorðnir menn
taka ákvörðunina sjálfir. Ástæðan
fyrir umskurði ætti samt að vera til
að heila manninn, mér finnst um-
skurður til þess að fá klámtyppi
asnaleg ákvörðun. En mér finnst
líka asnalegt að fara í brjósta-
stækkun þannig að þetta er litað
álit.“
Ragnar var tuttugu og eins árs
þegar hann lét fyrst víkka forhúð
sína og segir hann að benda mætti
ungum mönnum á þá staðreynd
að mögulegir gallar geti verið til
staðar á getnaðarlimnum sem geri
það að verkum að sumir verði að
fara í umskurð. Segist hann aldrei
hafa heyrt rætt um umskurð eða
aðrar aðgerðir á getnaðarlim áður
en hann fór sjálfur í aðgerð. Þá leið
honum eins og um vandamál væri
að ræða sem hann einn væri að
glíma við og upplifði að hann gæti
ekki rætt það við aðra.
„Það tók langan tíma fyrir mig
að átta mig á því að umskurður
væri valkostur. Ég hefði líklega
ekki farið í víkkun aftur ef ég hefði
vitað það. Það hefði líklega veitt
mér fleiri ár af betra kynlífi ef þetta
væri á allra vitorði. Einhvers stað-
ar mætti benda ungum karlmönn-
um á að typpi fæðast ekki öll jöfn,
og fara yfir algengustu gallana sem
karlmenn gætu þurft að fá lagaða.
Algengir gallar á kynfærum karla
ættu að vera hluti af kynfræðslu,
og að sama skapi fyrir stelpur. Ég
myndi að minnsta kosti benda
sonum mínum á þetta, en ég á að-
eins dætur. Ég hef hins vegar alltaf
lagt áherslu á að dætur mínar séu
ekki feimnar við lækna, sem ég
var lengi vel. Ég skammaðist mín
ekki fyrir þetta en mér finnst leitt
að mörgum konum finnist forhúð-
ir ljótar, skrítnar eða asnalegar.
En þú veist, ætli mörgum karl-
mönnum finnist ekki einhver hluti
píkunnar falla í sömu flokka. Þetta
venst allt saman.“ n
„Typpi
fæð-
ast ekki öll
jöfn og það
er ekki eitt-
hvað til að
skammast
sín fyrir
„Einhvers staðar mætti benda
ungum karlmönnum á að typpi
fæðast ekki öll jöfn.“