Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Síða 24
24 FÓKUS - VIÐTAL 29. mars 2019 G ísli Einarsson er fyrir löngu orðinn landsmönnum að góðu kunnur. Hann hefur starfað við fréttamennsku og dagskrárgerð hjá RÚV í hart­ nær tvo áratugi og haldið uppi fjöri á árshátíðum og þorrablótum jafn lengi. Blaðamaður DV keyrði í Borgarnes einn blíðviðrisdag til að ræða við Gísla, en þar býr hann og hefur starfsaðstöðu. Gat ekki orðið bóndi Gísli er Borgfirðingur í húð og hár, alinn upp á bænum Lundi í Lundarreykjadal. Foreldrar hans stunduðu búskap framan af og fjölskyldan stór. Gísli er elstur fimm alsystkina og auk þess bjuggu fleiri úr stórfjölskyldunni á býlinu. Sjálfur lýsir hann sér sem ódælum á barnsárum. „Ég var ábyggilega óþolandi. Var frekur og með mikla athyglis­ þörf. Ég held að það hafi ekkert breyst,“ segir Gísli og glottir. „Óþekkur var ég og þoldi oft ekki við í heila kennslustund. Ég hefði ekki viljað umgangast mig sem barn.“ Það er alltaf stutt í brosið og hláturinn hjá Gísla. Meira að segja þegar rætt er um brostnar vonir. „Eins og aðrir strákar í sveitinni langaði mig að verða bóndi en það kom ekki til greina. Ég var haldinn svo miklu frjókornaofnæmi að sumrin fóru illa með mig. Öfugt við krakka sem sendir voru í sveit á sumrin þá var ég sendur úr sveit, til ömmu og afa í Reykjavík. En þegar ég var orðinn nógu gamall til að gera gagn þá beit ég á jaxlinn og harkaði sumrin af mér, með hor niður að hné og hita.“ Voru engin meðöl við þessu? „Jú, jú, það voru til lyf og þetta átti einnig að eldast af mér. En þetta var svo mikið að búskapur kom ekki til greina sem framtíðar­ starf. Jafnvel þó að mér þætti fátt skemmtilegra en að veltast um í heyi heima á bæ.“ Samvinnuskólinn og kaupfélagið Á unglingsárunum lá leiðin í Sam­ vinnuskólann á Bifröst til að taka stúdentspróf. Skólinn var versl­ unarskóli byggður upp í kring­ um samvinnuhreyfinguna. Gísli segir hins vegar að þar hafi hann lært svo margt meira sem hafi nýst honum síðar meir enda skólinn óhefðbundinn að mörgu leyti. „Menn fóru þangað til þess að læra að verða Framsóknarmenn,“ segir Gísli og hlær. „Það sem vakti mestan áhuga hjá mér var félags­ lífið, sem var á þeim tíma eigin­ legur hluti af náminu. Þú þurftir til dæmis að vera í ákveðnum klúbb­ um, umgangast fólk, stýra fund­ um, koma fram og halda ræður. Ég man enn þá hvað mér fannst hræðilega erfitt að stíga í púltið í fyrsta skipti, en ég hef ekki þagað síðan. Þetta er sá hluti af náminu sem hefur fleytt mér lengst.“ Hann segir að markmið skól­ ans hafi að stórum hluta verið að ala nemendur upp í að verða fé­ lagsmálafrömuði. Hafðir þú áhuga á að taka þátt í stjórnmálum? „Einhvern tímann fékk ég þá flugu í hausinn. En þegar ég fór að hugsa betur út í þetta komst ég að því að ég yrði frábær frambjóð­ andi en ömurlegur þingmaður. Ég get kjaftað endalaust og ég held að framboðið sjálft sé skemmtilegi hlutinn af pólitíkinni. En að sama skapi grunar mig að þessi fjögur ár sem líða á milli séu drepleiðinleg. Ekkert nema langir og leiðinlegir fundir.“ Stefnan var þess í stað tekin á annan máttarstólpa Framsóknar­ flokksins, kaupfélögin. Þegar Gísli útskrifaðist árið 1988 starf­ aði hann stuttlega hjá Kaupfélagi Borgfirðinga og tók síðan við sem verslunarstjóri Kaupfélags Skag­ firðinga á Hofsósi. Í kaupfélaginu kynntist hann eiginkonu sinni, Guðrúnu Huldu Pálmadóttur. Eiga þau þrjú börn og tvö barna­ börn í dag. Gísli segir bæði stað­ inn sjálfan og samfélagið á Hofsósi einstakt og þar eigi fjölskyldan enn marga góða vini. En þau fluttu aft­ ur í Borgarfjörðinn nokkrum árum síðar og þá tók allt annar kafli við. Lenti í sjónvarpi „Mig hafði lengi dreymt um að skrifa eitthvað en hafði svosum engan áhuga á fjölmiðlum nema blöðum,“ segir Gísli. „Ég hafði gaman af því að skrifa smásög­ ur og ritgerðir. Ég skrifaði að­ eins í héraðsblaðið Feyki í Skaga­ firðinum og fljótlega eftir að ég flutti aftur í Borgarfjörðinn fór ég að skrifa pistla fyrir Borgfirðing. Á þessum tíma jókst áhuginn og ég var orðinn mjög heitur fyrir því að komast í blaðamennsku.“ Gísli fann sig vel á héraðsfrétta­ blöðunum. Þar gat hann skrif­ að allt frá léttmeti upp í alvar­ legar fréttir en hafði jafnframt mikið frelsi í störfum sínum. Árið 1996 tók hann við ritstjórn Vestur­ landspóstsins en það gekk brösug­ lega og varð skammlíft ævintýri. Gísli var hins vegar ekki af baki dottinn. Hann settist niður með Magnúsi Magnússyni atvinnu­ ráðgjafa og þeir komu öðru blaði á legg árið 1998. Var það Skessu­ horn sem þykir nú eitt burðugasta héraðsfréttablað landsins. Gísli „Mér finnst það vera mannréttindi að fá að vera tekinn fyrir í gríni, hvort sem maður á við einhverja fötlun að stríða, tilheyrir ákveðinni kynhneigð eða hvað svo sem það nú er. ogSveitapiltur spennufíkill n Gísli Einarsson vildi verða bóndi n Varð óvart sjónvarpsstjarna n 20 ár í veislustjórn Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is MYNDIR: HANNA/DV Framhald á síðu 41

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.