Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Side 43
FÓKUS - VIÐTAL 4329. mars 2019
Eftir nokkrar ferðir í Costco var
Siggi orðinn uppiskroppa með
pláss heima hjá sér. „Ég var með
200 rúllur af klósettpappír og tíu
lítra af súrsætri sósu og eitthvað
svona sem mig vantaði bara ekki
neitt, þannig að ég hef ekki farið í
Costco lengi. Mér fannst mig vanta
þetta, en auðvitað vantaði mig
ekkert af þessu, en ég hef til dæmis
ekki keypt klósettpappír núna í ár.“
Hann gerði sér stundum ferð í
Costco bara til að geta tekið upp
myndband, en hann hefur ekki
sett inn slíkt síðan í fyrrasum-
ar, enda bæði afsakaður vegna
slyssins og einfaldlega ekki átt er-
indi þangað að eigin sögn. „Ein-
hleypur maður þarf ekki að fara
nema svona tvisvar á ári.“
Þekktur sem Costco gaurinn
Siggi mættur aftur í verslunina eft-
ir nokkurra mánaða fjarveru.
Athyglissjúkur einfari
Siggi hefur fundið athyglissýk-
inni farveg á fleiri stöðum en sem
Costco gaurinn. Hann var í Útvarp
Suðurlandi með morgunþátt fyrr
á árum og segist hafa fengið góða
útrás þar. Einnig var hann kominn
á fullt með Leikfélagi Suðurlands
þegar hann slasaðist og aðalhlut-
verk í sýningu sem gekk mjög vel
meðan Siggi lá bataleguna. „Sem
er leiðinlegt fyrir mig þar sem ég
hélt að ég væri ómissandi,“ segir
Siggi, sem lék áður aðalhlutverkið
í Naktir í náttúrunni sem gekk fyr-
ir fullu húsi þrjátíu sýningar, fyllti
Þjóðleikhúsið og var valin besta
áhugamannasýningin. Í henni
kom Siggi nakinn fram, allt fyrir
frægðina og athyglissýkina.
„Þar fékk maður aldeilis mat
fyrir athyglissýkina. Ég held að
þetta sé eitthvað í karakternum.
Við þurftum ekki að slást um
athygli bræðurnir,“ segir Siggi og
bætir við að honum finnist best að
vera einn. „Ég er soldið tvöfaldur
að því leytinu, athyglissjúkur ein-
fari.“
Leikfélagið var fyrsta félags-
starfið sem Siggi tók sér fyrir hend-
ur og kom það mörgum á óvart.
„Ég hef forðast félagsstörf eins og
heitan eldinn, sennilega af því að
þar er oftast svona rammi og ég
funkera illa innan hans. Ég er líka
með bullandi athyglisbrest, algjör
sveimhugi úti um allt og að þurfa
að mæta alltaf klukkan þetta ein-
hvers staðar, það hentar mér ekki.
Að vera lengi á sama vinnustað er
helvíti fyrir mér og ég verð leiður
á öllu undir eins. Maður er svolítið
klofinn persónuleiki.“
Siggi gekk í leikfélagið á þeim
forsendum að leikritið yrði að-
eins sýnt tíu sinnum eða svo. „Það
kom mér á óvart með leikritið
hvað mér fannst gaman. Ég er svo-
lítið svekktur yfir að hafa ekki byrj-
að fyrr að leika, þetta er það al-
skemmtilegasta sem ég geri,“ segir
Siggi, en segist of gamall fyrir leik-
listarskóla, en hann muni klár-
lega leika meira í áhugamanna-
leikhúsi. Hann hefur tekið að sér
veislustjórn, en ekki fundist það
gaman. „Ég er með svolítið svart-
an húmor sem höfðar ekkert alltaf
til meirihlutans, ég get ekki far-
ið og skemmt einhvers staðar og
sagt eitthvað sem mér finnst ekki
fyndið og stundum sjokkerar mað-
ur fólk.“
Yngri bróðir Sigga, Sólmundur
eða Sóli, hefur komið mikið fram
sem uppistandari og hefur Siggi
einnig gert eitthvað af því. „En ef
þú hefur ekki virkilega gaman af
því þá gerir þú það ekki sérstak-
lega vel. Sóli hefur virkilega gam-
an af þessu og hann er mjög latur
þannig að það er þægilegt fyrir
hann að vera í þessu þar sem þetta
er ekki erfiðisvinna,“ segir Siggi og
brosir stríðnislega. „Þetta er búið
að vera markmið hjá honum svo-
lítið lengi að vera skemmtikraftur
og hann er með meðfædda
hæfileika í þetta. Hann hefur alltaf
verið góður að herma eftir og verið
mjög fyndinn. Ég er svo sem talinn
fyndinn en þetta hentar mér alls
ekki.“
Blaðamaður spyr hvort leið-
sögumaðurinn komi til greina og
svarar Siggi að það myndi eflaust
henta honum ágætlega. Hann seg-
ist þó ekki vanur að gera fram-
tíðarplön, helst ekki til lengri tíma
en næstu tveggja til þriggja daga.
„Það hefur komið vel út, það gerist
alltaf eitthvað óvænt og skemmti-
legt, mér finnst það mjög gaman.
Þegar mér er boðið í afmæli verð
ég að setja áminningu í símann og
láta hann pípa, ekki daginn áður
heldur sama dag.“
Í áhugamannaleikhúsi Siggi er
að eigin sögn athyglissjúkur ein-
fari.
Líkamleg slys ekkert á við
andlega erfiðleika
Fyrir nokkrum árum fór Siggi yfir
um andlega og var lokaður inni á
geðdeild að eigin ósk. Hann seg-
ist aldrei hafa verið þunglyndur,
en fékk taugaáfall í apríl 2012,
um þremur mánuðum eftir skiln-
að. „Ég var að vakna eftir þrettán
mánaða samband og vissi ekkert
hver ég var og það var ekkert bjart
framundan. Ég er nú mjög bjart-
sýnn maður að eðlisfari, en þarna
var ég kominn á ystu brún og sá
enga leið út nema þú veist,“ segir
Siggi og á þar við sjálfsvíg, þótt
hann nefni orðið ekki, „en sem
betur fer gerði ég það ekki, held-
ur fór og lét leggja mig inn, það var
ekkert annað í boði.
Ég rankaði við mér á síðustu
stundu, eiginlega, það var mjög
gott, fór í viðtöl og meðferðir og
fékk ákveðin verkfæri til að tak-
ast á við kvíða og slíkt. Ég hef ekki
fundið fyrir þessum einkennum
síðan. Þetta kom mér algjörlega í
opna skjöldu, þetta var svolítið úr
mínum karakter og segir manni að
það geta allir lent í þessu.“
Siggi hefur lent í tveimur alvar-
legum slysum og segir þau ekkert
við hliðina á andlega áfallinu. „Að
brjóta í sér beinin er hégómi við
hliðina á því að glíma við djöfla í
hausnum á sér.“ Hann segir mikil-
vægt að horfa á andleg veikindi al-
veg upp á nýtt: „Þetta kostar ekk-
ert smá mörg mannslíf á hverju
ári. Og ef þú kemst inn á geðdeild
þá er þér hent út daginn eftir eins
og með mig, ég hefði ekki þurft
að vera lengur, en það eru örugg-
lega aðrir sem eru sendir út of
snemma. Ég held að það sé of al-
gengt að fólk fái ekki viðeigandi
hjálp.
Það verður að fara að stokka upp
í þessum málaflokki, þetta er skelfi-
legt. Ef það myndu 35 karlmenn
lenda í bílslysum á hverju ári, þá
yrði eitthvað gert, það yrði stofnuð
nefnd og fleira. Það er allt of mikið
vesen að leita sér hjálpar, ég varð
hreinlega að segja að ég væri að
fara að drepa mig til að fá að kom-
ast inn á geðdeild. Ég varð að láta
loka mig inni, það var það sem var,“
svarar hann aðspurður hvort að
viðtalsmeðferðir hefðu ekki nægt.
„Þetta var það alvarlegt, það var
svona þriggja mánaða aðdragandi
að þessu, ég var steinhættur að sofa
og ég fann að ég varð að fara inn á
geðdeild.“
Blaðamaður spyr hvort andleg-
ir erfiðleikar hafi aftur látið á sér
kræla þegar hann lenti í bílslysinu
í fyrra. „Ég var svo glaður að vera á
lífi að ég leyfði mér ekki að hleypa
neikvæðum hugsunum inn. Auð-
vitað er maður oft neikvæður og
fúll, en ef maður leyfir því að taka
yfirhöndina þá geta bara hræðileg-
ir hlutir gerst. Andlegir sjúkdóm-
ar eru miklu, miklu verri en ein-
hver beinbrot, ég tala bara af eigin
reynslu um það. Þegar þú ert bú-
inn að kynnast því að vera svona í
hausnum, það er sársauki sem er
ekki hægt að lýsa, það verður allt
svo lítilfjörlegt við að lenda í slíku.“
Siggi segir að það hafi hjálpað
honum mikið í bataferlinu að hann
hann fékk að vera með börnin sín.
„Ég var mjög mikið með þau á eft-
ir og það hjálpaði mér mjög mikið.
Ég hefði ekki viljað missa af
andlegu erfiðleikunum, það er svo
skýtið þar sem þetta var erfiðasti
tími lífs míns. Ég hef aldrei þrosk-
ast jafn mikið á stuttum tíma eins
og þá, ég hefði aldrei sagt það þá,
en geri það í dag þótt þetta hafi ver-
ið ógeðslegur tími. Sumir ná sér
aldrei af svona, og verða hreinlega
öryrkjar, ég hef fullan skilning á því.
Ég var bara heppinn, það var ekk-
ert öðruvísi.“
Blaðamaður og Siggi eru sam-
mála um að minnka þurfi for-
dóma gagnvart andlegum sjúk-
dómum, þar sem margir veigri sér
við að leita hjálpar vegna fordóma.
„Þetta verður aldrei 100 prósent
leyst, en það er klárlega hægt að
gera miklu miklu betur, hvað held-
ur þú að það myndi spara ríkissjóði
mikla peninga að laga þetta. Þetta
er allt saman skóli ef maður tek-
ur því rétt og setur sig ekki of mik-
ið í fórnarlambsgírinn. Það hefur
aldrei neitt slæmt komið fyrir mig
nema ég hafi átt sök á því sjálfur,
en svo á maður ekkert að kenna
alltaf sjálfum sér um og berja sig.
Þú munt alltaf finna utanaðkom-
andi aðstæður sem eru vondar fyrir
þig og auðvitað kemur fyrir að ein-
hver gerir þér eitthvað illt, en þú
mátt ekki hjakka stöðugt í því. Hver
er sinnar gæfu smiður, það er bara
þannig.“ n
„Að brjóta
í sér bein-
in er hégómi við
hliðina á því að
glíma við djöfla
í hausnum á sér
MYND: HANNA/DV