Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 29. mars 2019
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Jóri hvetur fólk til að
hugsa vel um umhverfið
Þ
ættirnir hafa hreyft við
mörgum og vakið upp um-
ræðu í þjóðfélaginu. Jór-
mundur Kristinsson, eða
Jóri, 27 ára gamall nuddari og
hjúkrunarfræðinemi sem bú-
settur er í Grindavík er einn af
þeim sem urðu fyrir miklum áhrif-
um vegna þáttarins. Helgina sem
fyrsti þátturinn var sýndur stofn-
aði hann hóp á Facebook, Hvað
getum við gert?, þar sem „mark-
miðið er að fá fólk til að tala
saman, deila, spá og spekúlera,
því við getum þetta ekki nema
saman.“
Jóri segir: „Ég hef miklar
áhyggjur af lífsháttum okkar og
áhrifum sem við höfum á um-
hverfið og lífríkið. Ég hef á síðustu
árum verið að taka mína lífshætti
í gegn og reynt að gera þetta litla
sem venjuleg heimili geta gert. Ég
horfði síðan á þáttinn Hvað höfum
við gert? á RÚV um daginn og ég
hreinlega grét. Ég áttaði mig á að
það þarf að gera svo miklu meira
en að flokka rusl og fara með fjöl-
nota poka út í búð. En hvað? Hvað
getum við gert? Þannig kom hug-
myndin að hópnum. Hálfgert svar
við þessum þætti og þessu vanda-
máli. Þarna getur fólk deilt hug-
myndum og vangaveltum, gjörð-
um og markmiðum sem stefna á
betri lífshætti.“
En hvaða skref ert þú sjálfur
að taka til að hugsa betur um
jörðina, endurvinna og annað?
„Ég reyni að minnka plast-
notkun þar sem ég get, nota
sápur, sjampó, tannkrem,
tannbursta sem eru ekki í
umbúðum til dæmis. Ég
segi nei við einnota drasli eins og
kaffibollum, hnífapörum og rör-
um. Ég keyri um á hybrid-bíl, ég
borða ekki kjöt, ég kaupi ekki föt
nema þau hafi vottun um sann-
gjarna og sjálfbæra framleiðslu.
Þetta eru hlutir sem allir geta gert,“
segir Jóri og bætir við að þetta hafi
engin áhrif á lifnaðarhætti manns,
en ef allir gerðu þetta hefði það
stór áhrif á heildarmyndina.
„Þú þarft ekki nýjasta tækið,
nýjasta bolinn, nýjasta þetta
og nýjasta hitt. Láttu hlutina
endast, á bak við hvern hlut
sem þú átt er stór slóð af
framleiðsluferli, sem því
miður er ekki alltaf fallegt,
þetta er ekki einnota og
þetta vex ekki á trjám. Við
þurfum ekki allt. Ég sjálfur
er alls ekki saklaus, en ég er
alltaf að reyna að gera betur,
og það ættu allir að gera.“
Myndi verðlaunakerfi
hvetja fólk til endurvinnslu?
Jóri býr í Grindavík og nýlega
kom græna tunnan í bæjarfélag-
ið. Jóri segir að fólk sé að reyna
að endurvinna, en hins vegar
sé lítil hvatning til þess. Sem
dæmi megi nefna vandamál
í fjölbýli, þar séu of fáar
tunnur, þær fyllist
fljótt og fólk gef-
ist upp. „Það
nennir ekki
að flokka því það er ekki
pláss í tunnunni. Mér
finnst líka að til að
þetta virki þá þyrfti að
vera smá verðlauna-
kerfi, líkt og með dósir
og endurgjald eða eitt-
hvað í þá áttina. Ég veit
ekki hvernig, en kannski
veit það einhver ann-
ar, til þess er hópurinn.
Veist þú hvernig við get-
um vakið áhuga hjá fólki
að flokka rusl?“
Hópurinn fór vel af
stað og strax á fyrsta degi
voru meðlimir orðnir 200,
í dag eru þeir að nálgast
500. „Fólk er að taka þátt
í umræðum og það eru
margir að gera heilmikið
til að skilja minna fótspor
eftir sig. Ég vona að fleiri
komi í hópinn og taki þátt í
umræðunni. Við verðum að
gera eitthvað, við komumst ekki
hjá því, ekki lengur. Gerum þetta
saman. Verðum góðar fyrirmynd-
ir og skiljum eftir betri
heim fyrir komandi
kynslóðir.“
Hér fyrir neðan eru nokkrar
setningar úr fyrsta þætti Hvað
höfum við gert?
„Jörðin er eina heimili okkar og
við erum að fara illa með hana.“
„Það að draga úr neyslu, nota
minna af auðlindum, fara betur
með, það er kjarni málsins. Við
leysum ekki vandamál með því að
búa til meira drasl með betri hætti.
Við leysum vandamálið með því
að nota minna drasl.“ – Stefán
Gíslason umhverfisstjórnunar-
fræðingur
„Við gætum orðið fólkið sem
tók það á sig að breyta framtíð-
inni til góðs.“ – Guðni Elísson, pró-
fessor við íslensku- og menningar-
deild HÍ
„Eins og staðan er í dag þá erum
við á braut sem er stórhættuleg.“
– Halldór Þorgeirsson, formaður
Loftslagsráðs
„Þessi áhrif eru alþjóðleg, það
er ekki hægt að flýja eitt né neitt.“
– Guðmundur Hálfdánarson, for-
seti Hugvísindasviðs HÍ
„Ósjálfbær lífsstíll okkar
mannanna breytir ekki aðeins
veðurfari og loftslagi á jörðinni
heldur útrýmir dýra- og plöntu-
tegundum, mengar vatn, sýrir haf-
ið og sóar og ofnýtir dýrmætar og
takmarkaðar auðlindir. Náttúran
ræður ekki við hvernig við högum
lífi okkar, svo vistkerfið lætur und-
an.“ – Sævar Helgi Bragason, um-
sjónarmaður þáttanna
„Njótum partísins meðan það
endist og svo er þetta búið.“ n
Í heimildaþáttunum Hvað höfum við gert? sem
sýndir eru á RÚV er fjallað um loftslagsbreytingar
á jörðinni, hvað valdi þeim, hvaða áhrif þær hafi og
hvernig við getum brugðist við þeim. Fjallað er um
áhrif neysluhyggju nútímans á loftslagsbreytingar
og hvaða lausnir við getum komið með til að draga
úr breytingunum og aðlagast nýjum og sjálfbærari
lifnaðarháttum.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is